Natalie Portman hlaut Óskarinn í fyrra fyrir hlutverk sitt í myndinni Black Scan.
Vill gera stelpumynd í anda Superbad
Óskarsverðlaunahafinn Natalie Portman, sem varð þrítug 9. júní, er trúlofuð ballettdansaranum Benjamin Milleoied, sem hún kynntist við tökur myndarinnar The Swan og eiga þau von á barni í sumar. En Portman gengur með fleira í maganum, hana langar til að gera kvikmynd í félagi við gamla skólasystir.
Myndin er sögð vera stelpumynd í anda gamanmyndarinnar Superbad. Hún hefur hlotið vinnuheitið BYO (Bring Your Own) og fjallar um tvær ólíkar stelpur sem eru tuttugu og eitthvað.
Báðar hafa þessar aðal persónur myndarinnar verið óheppnar í ástarmálum en ákveða að gera eina tilraun enn til að finna ástina og bjóða vinkonum sínum í teiti þar sem hver þeirra á að hafa með sér einn piparssvein.
Portman hefur hug á að fara með annað hlutverkið og framleiða kvikmyndina. Anne Hathaway hefur verið orðið við hitt aðalhlutverkið.
Af kærustuparinu Portman og Millipied er það svo að frétta, að fyrir fáeinum dögum rituðu þau undir bréf til Bandaríkjaforseta þar sem skorað er á hann að beita sér fyrir því að samkynhneigðir geti gengið í heilagt hjónaband. Undirskriftasöfnun hófst í mars og hafanú yfir 100 þúsund manns skrifað undir áskorunina, sem þykir kannski lélegt á íslenskan mælikvarða. Meðal þeirra sem skrifað hafa undir eru Anne Hathaway, Jane Lynch, Eric McCormack, Martin Sheen, Ellen Degeneres, Mya og LeAnn Rimes.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.