Verður umkringdur
aðdáendum í Hörpu
FORSÍÐA TÓNLIST 80 LÖG MEÐ CULLUM HEIMASÍÐA
Jamie Cullum lék á alls oddi í Hörpu í gærkvöldi, fimmtudagskvöldið 23. júní, á tónleikum sem stóðu í ríflega tvo tíma. Ferð í Laugardalslaugina og humarsúpa hjá Sægreifanum hafði greinilega gert honum gott. Uppselt var á hljómleika hins 31. árs gamla enska djass-poppara. Aukamiðar höfðu verið settir í sölu þegar ákveðið var að nota í fyrsta skipti sæti umhverfis sviðið. Þeir aðgöngumiðar ruku sömuleiðis út. Cullum á ekki langan tónlistarferil að baki, en hefur þegar selt um 50 milljón hljómdiska. Hann hefur troðfyllt hljómleikahallir vestan hafs og austan og verið með eigin þátt á BBC.
Foreldrar Jamie Cullum hafa hvorugt fengist við tónlist, en amma hans, sem fædd er í Rússlandi, flutti til Berlínar á sínum yngri árum og söng þar á næturklúbbum.
Fyrstu 500 diskarnir með tónlist Jamie Cullum voru pressaðir fyrir tæpum ellefu árum. Hann stóð sjálfur fyrir þeirri plötugerð og varði til þess þeim 48 sterlings-pundum sem hann átti í sparibauknum. Í dag er verið að selja eintakið af þeirri frumútgáfu fyrir 600 pund stykkið, sem svarar til 112 þúsund íslenskra króna.
Cullum varð frægur í einu vetvangi þegar hann brilleraði í sjónvarpsþætti hins vinsæla Parkinsons árið 2003. Í framhaldi var honum boðinn 150 milljóna útgáfusamningur hjá Sony. Árið eftir hlaut hann BRIT verðlaunin sem stærsta uppgötvun ársins. Síðan hefur hann hlotið Grammy verðlaunin og fleiri eftirsóknarverð verðlaun. Hann var meðal annars tilnefndur til Golden Globe fyrir tónlistina sem hann samdi fyrir kvikmynd Clint Eastwood Gran Torino og þrisvar hefur hann verið tilnefndur til BRIT verðlaunanna.
Á tónleikum þykir Jamie Cullum vera einstakur skemmtikraftur Hann spilar á píanó, en hann er einnig góður á trommur og gítar. Blandar hann saman eigin tónsmíðum og klassískum djass og popplögum á skemmtilegan hátt.
Jamie er mjög vinsæll í Bretlandi en auk tónlistarinnar er hann umsjónarmaður djassþáttar á BBC 1 sem slegið hefur öll hlustunarmet. Jamie er mikið eftirlæti almennings í Bretlandi og kemur oft fram á verðlaunaafhendingum og fleiri slíkum uppákomum.
Undanfarin ár hefur vegur Jamie Cullum farið vaxandi og tónleikastaðir kappans farið stækkandi. Jamie er reglulegur gestur á stærstu tónlistarhátíðum heims eins og Glastonbury og Coachella. Það er því einstakt tækifæri að sjá þennan frábæra tónlistarmann leika listir sínar í aðalsal Hörpu Eldborg.
Hér fyrir neðan er viðtal sem GMTVB átti við Jamie Cullum í vor. Til að heyra 80 laga syrpu með honum skaltu SMELLA HÉR.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.