Bergþór Smári, eða Beggi í Mood eins og hann er kallaður, hefur spilað og sungið í meira en áratug. Hann er góður og því fannst mörgum orðið tímabært að hann sendi frá sér disk með sínum bestu lögum, en þau eru orðin mörg. Svo er hann líka með gott band á bak við sig og á bróður sem er með snjallari upptökustjórum landsins.
Bandið ber nafnið Mood og bróðirinn Örlygur Smári. Diskurinn er að nánast klár og kemur út innan tveggja mánaða og hefur hlotið nafnið Mood. Innan skamms efna Beggi og Mood til tónleika vítt og breitt um landið til að kynna diskinn.
Fyrsta lagið er komið í spilun. Það heitir Warm and Strong og lofar aldeilis góðu. Þjóðlagaskotið, ljúft lag í anda Eric Clapton's. Vonandi fær blúsarinn Beggi að njóta sín vel á diskinum, en hann hefur verið vel liðtækur í þeim geira tónistarinnar, m.a. komið fram á Blúshátíð í Reykjavík.
Trúlega muna margir eftir þátttöku Begga í Söngvakeppni Sjónvarpsstöðva árið 2007, árið sem Eiríkur Hauksson bar sigur úr bítum. Beggi söng þá lag sitt Þú gafst mér allt. Glöggir gestir á lokahófi Samkeppni Samúels á Broadway í nóvember hafa svo ef til vill veitt Begga athygli á sviðinu, en hann var á meðal undirleikara Poetrix.
Hér fyrir neðan má sjá og heyra Begga Smára taka lagið Warm and Strong.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.