ENYA ER AUÐUGASTA SÖNGKONA ÍRA
Eithne N í Bhraonáin, betur þekkt sem Enya, er 49 ára. Hún er írsk söngkona, hljóðfæraleikari og lagasmiður. Hún hóf tónlistarferilinn fyrir 30 árum í bandi með fjölskyldufólki sínu áður en hún hóf sólóferilinn. Hennar fyrsta hljómplata, Watermark, kom út árið 1988 og aflaði henni heimsfrægðar fyrir einstakan söngstíl.
Platan A Day Without Rain, sem kom út á aldamótaárinu, seldist í 15 milljónum eintaka og var Enya heimsins söluhæsta söngkona árið 2001. Hún er söluhæsti sólóartisti Íra og aðeins U2 hefur tekist að selja meira af plötum í Bandaríkjunum. Af verðlaunum og viðurkenningum sem Enya hefur hlotið má nefna fern Grammy verðlaun og ekki má gleyma því, að hún hefur hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna.
Velgegnin hefur fært Enyu fúlgur fjár. Árið 2006 var hún þriðji efnaðasti írski listamaðurinn með 20 milljarða, sem nægði til að koma henni í 95. sæti Sunday Times yfir auðugustu Írana það ár. Enya getur því látið fara vel um sig og það gerir hún í kastala skammt fyrir utan Dublin. Þar er hún umkringd köttum og segist njóta þess að láta þá flaðra upp um sig. Margir aðdáendur hennar eru líka aðgangsharðir. Hefur Enya varið sem nemur 50 milljónum íslenskra króna í öryggiskerfi í kastalanum eftir að nokkrum þeirra hafi tekist að brjóta sér leið þar inn.
Hér syngur Enya lag sitt Only Time af aldamótaplötu hennar A Day Without Rain. Árið eftir kom hún fram í þætti Larry King og tileinkaði þá lagið fórnarlömbum árásarinnar á tvíburaturnana í New York. Lagið var síðan endurútgefið í nóvember og rann allur ágóði plötusölunnar til aðstandenda slökkvuliðsmanna sem létu lífið við björgunarstörf 11. september.
HEIMASÍÐA ENYU AFTUR Á FORSÍÐU
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.