Þegar útgáfufyrirtækið SENA hafi fylgst með bullandi velgengni fyrstu laga hafnfirðingsins FRIÐRIKS DÓRS tóku þeir þá ákvörðun að gera við hann útgáfusamning og hraðaði vinurinn sér í hljóðver ásamt tveimur bestu upptökuteymum landsins, Redd Lights og Stop-WaitGo. Í vetrarbyrjun var hann svo klár með 12 daga disk með frumsömdu efni sem fór beinustu leið í 6. sæti Tónlistans í fyrstu vikunni.
Á diskinum eru lögin þrjú sem hann hafði sent áður frá sér til kynningar á sér sem tónlistarmanni. Þar er fyrst að telja lagið Hlið við Hlið, sem hann sendi frá sér haustið 2009. Lagið naut þá strax mikilla vinsælda og náði m.a. öðru sæti hins Íslenska lista FM 957 og hljómar í kvikmyndinni Bjarnfreðarson.
Næst sendi hann frá sér lagið Á sama stað, en það lag hljóðritaði hann með rapparann Erp Eyvindarson sér við hlið. Þriðja lagið gaf hann svo út síðasta vor, en það er lagið Fyrir hana, en myndband með því lagi sló rækilega í gegn á netinu.
Á nýja diskinum er líka að fnna lagið Hún er alveg með'etta, sem hefur hljómað títt á útvarpsstöðvum síðustu vikur. Á diskinum koma fleiri flottir við sögu, þeirra á meðal Jón bróðir hans Jónsson og Blaz Roca ásamt því að Friðrik Dór, Steindi Jr. og Ásgeir hafa sameinað krafta sína að nýju í glænýjum slagara.
Á frjálsa alfræðiritinu Wikipediu má sjá eftirfarandi upplýsingar um FH-inginn: Friðrik Dór Jónsson (fæddur 7. október 1988) hóf feril sinn með hljómsveitinni Fendrix en eftir að þeir komust ekki í úrslit í Músiktilraunum hætti hljómsveitin. Friðrik Dór spilaði þar á trommur en hann hefur æft á hljóðfærið frá því hann var smástrákur. Eftir ferilinn með Fendrix fór Friðrik Dór í Verzlunarskóla Íslands þar sem hann tók þátt í söngleiknum Welcome to the Jungle. Þar söng Friðrik Dór titillagið auk þess sem hann söng fjölmörg önnur lög, aðeins á fyrsta ári sínu í skólanum. Friðrik Dór tók þátt í fleiri söngleikjum á vegum Verzlunarskólans, þar má nefna söngleikinn Á Tjá og Tundri. Í menntaskóla var Friðrik Dór nokkuð áberandi í félagslífinu, hann tók þátt í fjölmörgum Morfískeppnum fyrir ræðulið skólans en þar var hann frummælandi. Hann tók einnig þátt í ýmsum verkefnum á vegum skólans, svo sem annál og þá var hann meðlimur í 12:00 á síðasta ári sínu í Verslunarskólanum.
Hér fyrir neðan má sjá Friðrik Dór syngja lagið Hlið við Hlið, sem kom honum sam- stundis á kortið. Píurnar sem punta upp á vídeóið tóku þátt á Ungfrú Reykjavík 2009.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.