Ég er ljósmyndari og hef verið að leita að andliti eins og þínu.
Ég er lýtalæknir og hef verið að leita að andliti eins og þínu.
Má ég hafa ánægjuna af næsta dansi.
Nei, ég vil njóta hans líka.
Hvernig gastu orðið svona undur falleg?
Mér hlýtur að hafa áskotnast þinn hluti líka.
Ertu til í að eiga með mér stefnumót á laugardaginn?
Því miður, ég verð með höfuðverk alla næstu helgi.
Svona, hvað ertu að að hika? Bjóddu mér út.
Allt í lagi, farðu út.
Hverju svaraðir þú ef ég bæði þig um að giftast mér?
Ekkert, ég get ekki bæði hlegið og talað í senn.
Ég er viss um að ég geti gert þig afar hamingjusama.
Hvernig þá? Ertu kannski að fara?
Get ég fengið nafnið þitt?
Til hvers? Áttu ekki þitt eigið?
Eigum við að skella okkur í bæinn og sjá bíómynd?
Æi, ég er búin að sjá hana.
Heldur þú að það hafi verið örlögin sem komu okkur saman?
Nei, ég hallast frekar að því að þafi verið bölvuð óheppni.
Hvar hefur þú verið allt mitt líf?
Að fela mig fyrir þér.
Hef ég ekki séð einhvers staðar áður?
Jú, þess vegna er ég hætt að fara þangað.
Er þetta sæti laust?
Já, og sætið mitt verður það líka ef þú sest.
Sæl skvísa, hvað er merkið þitt?
AÐGANGUR BANNAÐUR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.