TIL BAKA Á FORSÍÐU SJÁ VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐU NNI
Blúsarinn Raily B.King, betur þekktur sem B.B.King er 85 ára. Hann er fæddur í Itta Bena , litlum bæ nærri Indianola í Mississippi . Tólf ára gamall hóf hann að syngja með godspell kór og keypti sér á sama tíma sinn fyrsta gítar, sem hann gaf 15 dollara fyrir.
Hann var 21 árs þegar hann kom til Memphis í Tennessee og komst að sem söngvari og plötusnúður hjá staðbundinni R&B útvarpsstöð. Sem slíkur valdi hann sér gælunafnið Beale Street Blues Boy, en stytti það síðar í B.B.
ÁHRIFAVALDURINN VAR T-BONE WALKER
Á þessum tíma hitti hann
T-Bone Walker
í fyrsta skipti. „Um leið og ég hafði heyrt hann spila sannfærðist ég um að ég yrði sjálfur að eignast rafmagnsgítar,” rifjar B.B. upp.
Þremur árum síðar var hann farinn að spila inn á hljómplötur undir handsleiðslu
Sam Philips
, sem síðar stofnaði
Sun Records
.
Til að gera langa sögu stutta var B.B.King orðinn stærsta nafnið í R&B tónlistinni á sjötta áratugnum. Plötur hans seldust í stórum stöflum og til marks um hve eftirsóttur hann var má geta þess, að árið 1956 kom hann fram á 342 hljómleikum. Sama ár stofnaði hann sína eigin hljómplötuútgáfu,
Blues Boys Kingdom
.
YFIR 15 ÞÚSUND HLJÓMLEIKAR
Í dag hefur hann komið fram rúmlega 15 þúsund sinnum. Blúsarinn er tvíkvæntur og skildi við báðar konurnar af sömu ástæðu. Þær voru ekki sáttar við að hann væri að koma fram á um 250 hljómleikum á ári. Fjarbúð er ekkert sérstaklega yndisleg til lengdar.
Árið sem Samúel hóf göngu sína (1969) mátu The Rolling Stones það svo, að enginn væri betur til þess fallinn en B.B. King að opna tónleikaferð þeirra um Bandaríkin. Hann var stærsta nafnið í þeirra huga.
Það yrði til að æra óstöðugan að rifja hér upp öll skiptin sem hann hefur komist í efstu sæti vinsældalista eða hlotið eftirsóttustu verðlaun og viðurkenningar, en það er þó rétt að geta þess, að tímaritið
Rolling Stone
setti karlinn í þriðja sæti listans yfir
100 stórkostlegustu gítarleikara allra tíma
. Á þessu ári skipaði
TIME
honum svo í þriðja sæti síns lista yfir
10 bestu rafmagnsgítarleikara sögunnar
.
KÓNGURINN SJALDSÉÐUR Á ÁRLEGRI B.B. KING HÁTÍÐ
Í fyrstu viku júní mánaðar á hverju ári er efnt til mikillar
B.B. King heimkomu hátíðar
í fæðingarbæ hans í Mississippi og í fyrra var þá opnað safn tileinkað honum. Sjálfur læt hann sjaldnast sjá sig í eigin persónu á hátíðinni.
Árið 2001 gerðist King einn helsti styrktaraðili
Little Kids Rock.
Sjóðs sem hefur það að markmiði að safna fé til hljóðfærakaupa handa efnilegum börnum í skólum fátækrahverfa vítt og breytt um Bandaríkin. Tekur karlinn hlutverk sitt í stjórn samtakanna afar alvarlega og drífur þau áfram.
Þegar B.B. King var orðinn áttræður 2006 fannst honum nóg komið af spilamennskunni og hóf röð kveðjutónleika sinna í Sheffield í Englandi og hafði sér þar til fulltingis öllu yngri blúsara, snillinginn
Gary Moore
. Í lok tónleikaferðarinnar um England tveimur mánuðum síðar var
John Myall
með honum. Það var á Wembley Arena.
ÞAÐ ER ENGIN LEIÐ AÐ HÆTTA
Eins og segir í textanum;
það er engin leið að hætta
. Það er stutt síðan B.B. King spilaði síðast opinberlega. Meðal annars hefur hann komið fram á styrktartónleikum sem
Eric Clapton
hélt undir nafninu
Crossroads Guitar Festival
þar sem spiluðu 20 af fremstu gítarhetjum samtímans. Í lok ársins 2008 kom B.B. King fram ásamt
John Mayer
í lok Grammy verðlaunahátíðarinnar.
60 upptökur þar sem B.B. King og tónlist kemur við sögu.
Hér fyrri neðan má sjá og heyra þá blúsara B.B. King og Gary Moore taka saman lagið The Thrill is Gone, sem karlinn spilaði fyrst fyrir meira en aldarfjórðungi og hefur fært honum fjölda verðlauna og viðurkenninga – og sæg af seðlum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.