George Roger Waters varð 66 ára sunnudaginn 6. september, en hann fæddist í Surrey í Eglandi 1943. Hann er þekktastur fyrir að hafa verið bassaleikari og einn aðal lagasmiður og söngvari ensku rokkhljómsveitarinnar Pink Floyd á árunum 1964 til 1985.
Árið 2005 lauk hann loks við óperuna Ça Ira, sem hafði verið í smíðum í 16 ár. Náði plata með tónlistinni fljótt fyrsta sæti á vinsældalistum klassískrar tónlistar bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Sama ár kom hann fram með Pink Floyd á Live Aid 8 tónleikunum í London, en það var í fyrsta skipti sem hann kom fram með hljóm- sveitinni í nærri aldarfjórðung.
Árið eftir, 12. júní 2006, kom hann svo fram í Egilshöll á gríðarlega íburðarmiklum tónleikum sem báru heitið The Dark Side of the Moon Live Tour, kemur til af því að síðari hluta tónleikanna nýtti hann til að flytja hið sígilda verk Pink Floyd frá 1973 sem ber nafnið The Dark Side of the Moon. Fyrri hluta tónleikana tók hann bland af vinsælum lögum Pink Floyd og frá sólóferli sínum. Við trommurnar sat Nick Mason, trommuleikari Pink Floyd. Tónleikarnir þóttu takast afar vel, hljómburðurinn var í góðu lagi, karlinn í fanta formi og fimmtán þúsund tónleikagestir skemmtu sér konunglega.
Mánuði síðar lést Syd Barrett, sem var einn af upprunalegu meðlimum hljóm- sveitarinnar Pink Floyd, 60 ára að aldri. Lýstu Waters og félagar yfir miklum söknuði og dvínuðu líkurnar á að þeir félagarnir mundu fara saman í hljómleikaferð undir nafni Pink Floyd eins og svo lengi hefur verið í umræðunni á milli gömlu hljóm- sveitarfélaganna.
Roger Waters vinnur nú jöfnum höndum að tveimur sólóplötum. Í september leggur hjann svo upp í tónleikaferð þar sem hann ætlar að flytja The Wall. Tónleikarnir bera einfaldlega nafnið The Wall Live og getur þú lesið allt um tónleikastaðina með því að smella HÉR
Yfir 80 vídeó þar sem Roger Waters og/eða Pink Floyd koma við sögu.
Hér má sjá og heyra lagið lagið Comfortably Numb úr The Wall.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.