Á morgun, 09.09.09, daginn sem Lennon-tónleikarnir verða á NASA, kemur út heildarsafn LP-platna The Beatles á geisladiskum í endurhljóðblönduðum útgáfum. Er þar um að ræða allar tólf hljóðversplötur Bítlanna, auk Magical Mystery Tour-plötunnar og safnplatnanna Past Masters Vol I. og II, sem verður komið fyrir á einum diski.
Öllum fjórtán útgáfunum fylgir DVD-mynd- diskur með heimildarmyndum um gerð þeirra. Einnig myndarlegt umslag með margskonar fróðleik. Þá kemur einnig út boxið The Baeatles in Mono, en þar er að finna lög af tíu Bítlaplötum sem voru hljóðblandaðar í mono.
TÖLVULEIKURINN THE BEATLES - ROCK BAND
Enn er ekki allt upp talið, því á miðvikudaginn kemur einnig út tölvuleikurinn The Beatles: Rock Band. Sá þriðji í Rock Band-seríunni. Geta fjórir leikmenn myndað hljómsveit með hljóðfærum og hljóðnemum. Eru 45 lög í leiknum sem hægt er að spila og radda að hætti Bítlanna. Á meðan sjást Bítlarnir sjálfir spila lögin með aðstoð sýndarveruleika.
Endurhljóðblandanir á gömlum, vinsælum lögum eru algengar, en síðan The Beatles hætti árið 1969 (árið sem Samúel hóf göngu sína) hefur sárasjaldan verið hreyft við meistaraverkum þeirra. Verður hin viðamikla útgáfa á lögum þeirra næsta miðvikudag því að teljast til verulegra tíðinda.
Hópur sérfræðinga í Abbey Road-hljóðverinu í London, þar sem lögin voru mörg hver hljóðrituð forðum daga, eyddu fjórum árum í endurhljóðblöndun platnanna og nýttu til fullnustu nýjustu tækni við verkið.
O9.09.09 STÓR DAGUR FYRIR AÐDÁENDUR
Á Bítlaárunum voru biðraðir fyrir utan hljómplötudeild Fálkans á Laugavegi hvert sinn sem sala á nýrri Bítlaplötu hófst. Samúel gerir ráð fyrir að margur Bítlaaðdáandinn eigi eftir að næla sér í safnið strax á morgun. Annað kvöld er svo tilvalið að fagna útgáfudeginum á NASA þegar landslið okkar í dægurlagasöng kemur saman til að heiðra minningu John Lennons. Útgáfudaginn ber einmitt upp á 09.09.09, en eins og kunnugt er hafði Lennon mikið dálæti á tölunni níu, sem honum fannst vera mikil örlagatala í lífi sínu.
Heimasíða The Beatles með greinargóðum upplýsingum um ofangreinda útgáfu.
Hér fyrir neðan er stutt kynningarvídeó fyrir endurútgáfu Bítlalaganna.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.