DJASS
SAMÚEL hefur safnað hér saman sex flottum djasslögum gömlu stórmeistaranna á bláu nótunum í tilefni af 20 ára afmæli Jazzhátíðar Reykjavíkur.
FORSÍÐA DAGSKRÁ JAZZHÁTÍÐAR REYKJAVÍKUR 2009
Djassistinn Gerry Mulligan hefði orðið 82 ára 6. apríl síðastliðinn, en hann lést 1996. Hann spilaði hér með hljómsveit sinni á Listahátíð tveimur árum áður. Hann var einn af leiðandi saxafónleikurum jazzheimsins og hlaut m.a. Grammy.
Hér má sjá hann og heyra flytja lagið Line For Lyons.
Djasspíanóleikarinn og tónsmiðurinn Herbie Hancock á aðeins eitt ár í sjötugt. Hann er enn í fínu formi og ekki er lengra síðan en í fyrra að hann vann Grammy-verðlaunin fyrir plötu ársins. Aðeins hefur ein djassplata náð þeim árangri áður. Ekki er laust við sá djass, sem karlinn spilar í dag, sé á köflum lítið eitt rokk- og sálarskotinn, en á sínum tíma átti hann stóran þátt í að endurmóta djassinn í félagi við Miles Davis. Hér er upptaka með þeim félögum á tónleikum. Með þeim spila Wayne Shorter og Ron Carter. Smella hér
Lionel Hampton hefði orðið 96 ára 12. aqpríl, en hann lést 2002. Hann lék á víbrafóninn fram yfir nírætt, en hann var einna fyrstur til að spila á víbrafón í djasshljómsveit. Líklega hefur hann náð að spila með öllum stærstu nöfnum djassins. Meðal þeirra sem hann djassaði með má telja Benny Goodman, Buddy Rich, Charlie Parker og Quincy Jones.Hampton var einn síðasti sveiflumeistarinn frá gullaldartímabili djassins til að kveðja þennan heim.
Tenór saxafónleikarinn Joe Henderson lést árið 2001, 64 ára að aldri. Hann spilaði með mörgum af frægustu djassistum sögunnar á hljómleikum og hljómplötum auk þess sem hann starfrækti sín eigin bönd. Á ferlinum hlaut hann fern Grammy-verðlaun auk ýmissa annara viðurkenninga. Á sjötta áratugnum kom hann fram með svo ólíkum tónlistar- mönnum sem Miles Davis og Blood, Sweat and Tears. Hér er hins vegar flott sjónvarpsupptaka með Tríói Jim Henderson sem gerð var í Stuttgart 1993. Smella hér
Ella Fitzgerald hefði orðið 92 ára í dag, en hún lést árið 1996. Hún var ein áhrifamesta söngkonan í djassinum á síðustu öld gjarnan nefnd First Lady of Song. Söngferillinn stóð í 59 ár og á þeim tíma hlaut hún 13 Grammy-verðlaun. Hún kom fram á tónleikum í Háskólabíói árið 1966. Hér er upptaka sem gerð var á tónleikum hennar í Stokkhólmi sama ár. Lagið sem hún syngur er Sweet Georgia Brown. Hún átti í samstarfi við alla stærstu karlana í djassheiminum, eins og t.d. Louis Armstrong. Árið sem hún kom hingað söng hún á tónleikum með bæði Duke Ellington og Dave Brubeck.
Lagasmiðurinn, hljómsveitarstjórinn, píanóleikarinn og þrettánfalldi Grammy-verðlaunahafinn Duke Ellington hefði orðið 110 ára 29. apríl síðastliðinn, en hann lést fyrir 25 árum. Hér má sjá goðið spila lagið Taka The "A" Train.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.