09.09.09. Þessa mögnuðu dag- setningu ber upp á miðvikudag- inn 9. september nk. og verða 1000 ár þangað til hún birtist næst. Það verða stórtónleikar haldnir til heiðurs John Lennon á Nasa þennan dag og hefjast þeir kl. 9. Eru tónlei karnir á vegum Zonet, fyrirtækis Óttars Felix Haukssonar , sem gekkst einmitt fyrir minningartónleikum um Lennon nokkrum vikum eftir að Bítillinn var myrtur.
Einvala lið söngvara og hljóð- færaleikara stígur á svið og verða tónleikarnir tvískiptir. Fyrir hlé verða flutt níu lög Lennons frá Bítlaárunum 1963-1969 og eftir hlé verða flutt önnur níu lög Lennons frá New York tímabilinu 1970-1980. Níu söngvarar koma fram: Björgvin Halldórs, Daníel Ágúst, Egill Ólafs, Haukur Heiðar jr., Helgi Björns, Ingó, Jóhann Helga, Krummi og Stefán Hilmars.
Bandið verður ekki af verri end- anum. Á hljómborð leikur Maggi Kjartans, Villi Guðjóns og Jón Elvar Hafsteins á gítara, Jón Ólafsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur.
FORSÍÐA GET BACK MEÐ THE BEATLES JOHN LENNON MYRTUR
John Lennon var sérlega upptekinn af tölunni níu og birtist hrifning hans í ýmsum myndum. Örlög hans tengdust þessari tölu með ýmsum hætti. Ekki aðeins það að hann ætti afmæli þann níunda, heldur fæddist sonur hans, Sean, einnig níunda.
Lennon hitti Brian Epstein, umboðsmann Bítlanna, í fyrsta sinn í Cavern-klúbbnum þann níunda. Yoko Ono hitti hann í fyrsta sinn 9. nóvember 1966, níu árum eftir að hann hitti Paul McCartney og níu árum áður en Sean, sonur hans, fæddist. Hann samdi þrjú lög með tölunni níu í titlinum, One after 909, Revolution 9 og #9 Dream.
Níu gekk upp í allar tölur varðandi búsetu hans í Dakota-byggingunni við Central Park í New York. Byggingin var númer 1881. Hún stóð við 72. stræti og íbúðin var nr. 72. Hann var skotinn til bana árið 1980, seint að kvöldi þess 8. desember í New York, þá var nýr dagur runninn upp, 9. desember, í Liverpool á Englandi, fæðingar- stað John Lennons.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.