FORSÍÐA BESTU LÖGIN VIDEÓ NEÐST Á SÍÐUNNI FRÁ WOODSTOCK
WOODSTOCK
Útgefendur SAMÚELS fögnuðu því með smá teiti laugardagskvöldið 16. ágúst 1969 að upplag fyrsta tölublaðs tímaritsins var á þrotum aðeins hálfum mánuði eftir útkomu. Í útvarpsfréttum það kvöld var sagt frá því að allt væri farið úr böndunum í bænum Bethel í New York. Þar í grennd hafði verið auglýst þriggja daga tónlistarhátíð og gert ráð fyrir um 50 þúsund áheyrendum, eða svipuðum fjölda og sótti góða rokktónleika á íþróttavöllum. Á þessa tónleika streymdu hins vegar hundruðir þúsunda áheyrenda. Urðu þeir á endanum hálf milljón talsins.
Strákarinir á Samúel, þeir Ómar Valdimarsson, Þorsteinn Eggertsson og Þórarinn Jón Magnússon, voru ekki vitund hissa á aðsókninni. Í Sam-teitinu voru spilaðar nýjustu vinylplötur Jimi Hendrix, Janis Joplin, Santana, Canned Heat, The Who, The Band, Creedence Clearwater Revival, Joe Cocker, Blood, Sweat & Tears, Joan Baez, Crosby, Stills, Nash & Young og Grateful Dead. Allar þessar hljómsveitir og fleiri til voru að spila þessa helgi fyrir hippana í Bethel.
WOODSTOCK EKKI Í WOODSTOCK
Upprunalega átti að halda tónlistarhátíðina í Woodstock og var hún auglýst undir því stað- arnafni. Með aðeins fárra daga fyrirvara kom í ljós að ekki væri hægt að halda hátíðina þar vegna andstöðu fjölmargra íbúa svæðisins. Á elleftu stundu náðist samkomulag við Max Yasgur, frístundabónda um 70 km suðvestur af Woodstock. Leigði hann landsskika sinn undir tónleikahaldið fyrir 75 þúsund dollara. Það fór þó svo að öll sveitin var undirlögð. Það fer nefnilega töluvert fyrir hálfri milljón manna.
TIL AÐ FÁ BETRA SÆTI
Hugmyndina að tónleikunum átti kvikmynda- tökumaðurinn Michael Wadleigh, sem einkum hafði tekið fréttamyndir og tekið þátt í gerð heimildarmynda. Framleiðandi myndarinnar var Bob Maurice. Tónleikahaldið var í huga Wadleigh einföld leið til að kvikmynda helstu tónlistargoð samtímans án þess að þurfa sjálfur að flandra á milli staða. Í viðtali, sem Samúel birti við hann eftir frumsýningu myndarinnar hálfu öðru ári síðar, gaf hann sáraeinfalda skýringu á kvikmyndagerðinni: „Ég gerði Woodstock til að fá betra sæti.”
NÝ KVIKMYND UM WOODSTOCK
„Þegar við komum frá Woodstock með 315 þúsund fet af filmu, hefðum við getað gert mjög vinstri sinnaða kvikmynd. Mjög í anda þessara barna sem á tónleikunum voru," segir Wadleigh. „Myndin hefi getað fjallað einvörðungu um eiturlyf, tónlistina, þjóð-
félagslegar breytingar, sítt hár og nekt – nýtt siðgæði. Við hefðum getað brugðist við eins og margir kvikmyndagerðarmenn gera, það er að hlusta ekki nema á annan aðilann. En ég held að við höfum tekið heiðarlegri afstöðu í og með vegna þess að við urðum að hafa skemmtun líka í huga.”
Tímaritið Rolling Stones setur Woodstock-tónleika efst á lista yfir stærstu stundir rokksögunnar og kvikmyndin hlaut Óskarsverðlaunin sem besta heimildarmynd ársins.
Núna, fjörtíu árum eftir tónleikana, er verið að frumsýna kvikmynd sem snýst um tónleika- haldið og ber hún nafnið Taking Woodstock. Til að sjá heimasíðu myndarinnar smellir þú HÉR
LIFE-myndasyrpa frá Woodstock 1969. Smella hér.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.