Nektarspretturinn er einn af föstu liðunum á Hróarskelduhátíðinni og í hitamollunni, sem ríkir á hátíðinni í ár, þótti mönnum ekki verra að geta tínt af sér spjarirnar áður en þeir tóku sér stöðu fyrir sprettinn. Hlaupararnir voru þrjátíu alls, fimmtán af hvoru kyni.
Meðal hlauparanna voru þrjár stúlkur um tvítugt, þær Gunnhildur, Stína og Karólína. Það fór ekki á milli mála hvaðan þær komu. Þær höfðu nefnilega haft fyrir því að mála norska fánanan þar sem hann hefði nú raunar ekki sést undir venjulegum kringumstæðum eins og þessi ljósmynd norska Dagblaðsins sýnir. MEIRA
Hátíðin er sjálfstætt góðgerðarfélag og lætur allan ágóða renna til góðgerðar- og menningarmála. Hún dregur að sér fólk hvaðanæva úr heiminum. Hátíðin er skipulögð af hópi fólks sem kallar sig "The Roskilde Charity Society" og starfar allan ársins hring ásamt þúsundum sjálfboðaliða víðs vegar um Evrópu.
Tónlistardagskrá Hróarskeldu þykir með þeim bestu í heimi og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á hátíðinni má heyra allt frá frumlegri rokktónlist til suðrænnar sveiflu. Einnig er í boði ýmis konar þjónusta og dægradvöl, svo sem kvikmyndahús, listasýningar, íþróttir, götuleikhús, fataverslanir og plötubúðir svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin leggur mikla áherslu á umhverfismál og sem dæmi má nefna endurvinnslu á flöskum og dósum á svæðinu. Hátíðin er haldin rétt fyrir utan Roskilde sem er um 35 km fjarlægð frá Kaupmannahöfn. MEIRA
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.