FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR SJÁ VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐUNNI
TÖLVULEIKUR Eftirvæntingarfull bið efti r Killzone 2 náði háum hæðum hér á klakanum. Killzone varð gríðarlega vinsæll á Playstation 2 leikjavélinni og því ljóst að næsti leikur í seríunni þyrfti að standa undir miklum væntingum. Til að undirstrika vinsældirnar þá voru miðnæturopnanir á Íslandi og víðar svo þyrstir unnendur Killzone gætu svalað þorsta sínum með leiknum um leið og hann birtist.
Næsti kafli í baráttunni
Í fyrsta leiknum kynntust spilarar Helgast sem réðust til atlögu gegn mannkyninu.
Nærtækast er að lýsa Helgast sem eins konar stormsveitum í anda nasista en með rauð ljósaugu. Að sjálfsögðu náðu Helgast ekki heimaplánetu mannkynsins og því hafa jarðarbúar snúið vörn í sókn. Í Killzone 2 er baráttan háð á heimaplánetu Helgast.
Flott lúkk og sniðug gervigreind
Killzone 2 er flottur leikur. Umhverfið er raunverulegt og nýtist það vel í orrustum þar sem lykilatriðið er að skýla sér fyrir skothríð. Í leiknum ertu stundum í samfloti með herdeildum og skín þá gervigreindin í gegn. Bæði vinir sem óvinir eru sniðugir og vinna saman sem heild. Einnig nær leikurinn meiri dýpt þegar þú ert að berjast samhliða félögum þínum. Þú kynnist þeim og söguþráðurinn tvinnast með persónunum.
Skriðdrekar og skotvopn
Vopnin í leiknum eru hefðbundin, skamm- byssa, vélbyssur, hglabyssur og sprenju- vörpur eru undirstöðuvopn ásamt hand- sprengjum. Á vígvellinum eru svo öflugar hríðskotabyssur á stöndum ásamt skriðdrekum, sem eru afskaplega gagnlegir í baráttunni við Helgast.
Karakterinn getur bara borið tvö vopn í einu, sem gerir leikinn raunverulegri fyrir vikið. Rétt val á vopnum er grundvöllur fyrir árangri. Sniper riffillinn kemur að sérstaklega góðum notum í erfiðri stöðu.
Hljóðvinnslan til fyrirmyndar
Talsetningin er sannfærandi sem og öll umhverfishljóð. Greinilegt er að framleiðandinn hefur lagt mikið í að skapa flottan hljóðheim. Tónlistin límir svo allan hljóðheiminn saman og styrkir spennuna í bardögunum. Tónlistin magnast þegar eitthvað er í vændum og nær að skapa raunverulega spennu.
Fjöldaspilun
Aðall Killzone 2 er án efa fjöldaspilunin. Þar blandast saman ýmsir spilunarmöguleikar. Hefðbundnar útfærslur eins og að sigra hitt liðið og halda valdi yfir ákveðnum svæðum er til staðar. Einnig það, að elta uppi einn spilara úr hinu liðinu til að farga honum, en liðsmenn í hans liði þurfa að verja hann. Ein af hinum mörgum sniðugu leikfléttum.
Leikmenn geta valið mismunandi týpur til að spila og hafa týpurnar sér eiginleika sem gagnast liðsheildinni. Því fleiri stig, sem fást við spilun hverrar týpu, auka eiginleikana og framför í Killzone 2 veröldinni.
Lokaorð
Einspilunarhlutinn er frekar stuttur, en það skiptir ekki máli. Killzone 2 skilar þrusu skemmtun aftur og aftur í mismunandi erfiðleikastigum. Fjöldaspilunin er frábær og hvetjandi fyrir þátttakendur.
Ef þú átt Playstation 3 þá átt þú að hafa Killzone 2 í safninu þínu.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.