Joss Stone hóf feril sinn fyrir rétt rúmum fimm árum, en þá var hún aðeins sautján ára gömul. Hún vakti þegar í stað mikla athygli með sinni fyrstu plötu, margföldu platínuplötuna The Soul Sessions.
Næsta plata hennar, Mind, Body & Soul, náði sömuleiðis margfaldri platínusölu. Fór í fyrstu vikunni á topp breska sölulistans og lagið You Had Me komst á topp tíu smáskífulistann. Bæði platan og smáskífan unnu hvor um sig til Grammy-verðlauna 2005. Tvö ár í r löð var komu Joss Stone í tónlistarheiminn fagnað með Grammy-verðlaunum.
Þriðja platan ber nafnið Introducing Joss Stone. Nýjasta plata hennar, sem kom út á þessu ári, var hljóðrituð í foreldrahúsum hennar og ber nafnið Colour Me Free.
Fram til þessa hefur söngkonan selt yfir tíu milljónir platna og unnið til BRITT-verðlauna auk áðurnefndra Grammy-verðlauna. Hún hefur jafnframt stigið sín fyrtstu spor sem leikkona, en hún fór með hlutverk nornarinnar Angelu í kvikmyndinni Eragon. Á þessu ári fer hún svo með hlutverk Önnu af Cleves, fjórðu eiginkonu Hinriks 8, í sjónvarpsþáttaröðinni The Tudors og tekur þannig við af Anitu Briem á því heimili.
Til marks um þá athygli sem hún hefur vakið má nefna, að áróðurslið Barack's Obama vestur í Bandaríkjunum bað Joss Stone um að semja einkunnar- lag fyrir kosningabaráttuna í fyrra.
Hér fyrir neðan má sjá hana og heyra syngja lagið Baby Baby Baby af plötunni Introducing Joss Stone. TIL BAKA Á HEIMSMYND
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.