TIL AÐ KAUPA MIÐA SMELLA HÉR
TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í HOLLYWOOD-KLÚBBINN SMELLIR ÞÚ HÉR
TIL AÐ SJÁ GREIN UM UNGFRÚ HOLLYWOOD 1980, SMELLIR ÞÚ HÉR
Mikill er máttur netsins. Margrét Krist- jánsdóttir, sem stundaði Hollywood stíft hér forðum daga, stofnaði af rælni sér- staka aðdáendasíðu á Facebook tileinkaða skemmtistaðnum fyrr í vetur. Eins og hendi væri veifað hafði hálft annað þúsund ‘80s unnenda skráð sig á síðuna og hafa margir smellt þar inn myndum frá gleðistundum á st aðnum. Að sjálfsögðu leiddu undirtektirnar fljótlega til þess óumflýjanlega, slegið verður upp diskódansleik á Broadway, sem verður sjö tíma maraþon. One Night Only!
Það er mánuður til stefnu, en gleðin hefst klukkan níu að kvöldi laugardagsins 4. apríl og mun standa fram undir morgun. Kristjana Geirsdóttir (Jana) verður mót- tökustjóri og tekur á móti gestum í anddyri Broadway ásamt vertinum, Arnari Laufdal og dyravörðum fyrrum Hollywood, þeim Gunnari Svavarssyni, Sigurði Garðarssyni, Rúnari Bjarnasyni og Sveini Tómassyni. Að sjálfsögðu bjóða þau upp á fordrykki. Þessa gömlu góðu, þið munið!
GÖMLU GÓÐU PLÖTUSNÚÐARN IR LOKAÐIR INNI Í BÚRINU Á NÝ
Vilhjálmur Ástráðsson verður lokaður inni í diskóbúrinu ásamt flestum plötusnúðum Hollywood. Þeirra á meðal Magnúsi Sigurðssyni, Leópold Sveins- syni og Pétri Steini Guðmundssyni.
Guðbjörg Magnúsdóttir söngkona sy ngur líka nokkur vel valin diskólög sem við munum eftir með Donnu Summer, Diönu Ross, Gloriu Gaynor og Arethu Franklin. Kolla og Simbi taka bump showið sitt fræga ásamt fleiri dönsurum og Jón Steinar hefur líka að sjálfsögðu verið fenginn til að koma og rifja upp hinn ógleymanlega dúkkudans.
TÍSKUSÝNINGARNAR ÓMISSANDI
Tískusýning á Hollywood-kvöldi er jafn sjálfsögð og diskótónlist. Guðrún Möller og Jóna Lárusdóttir úr Módel 79 bera ábyrgð á því atriði svo það verður pottþétt í þessu fína lagi. Sjálfar taka þær þátt í sýningunni ásamt fleiri góðum úr sýningarsamtökunum, svo sem eins og þeim Þorsteini Magnússyni og Reyni Kristinssyni.
Guðbjörg Magnúsdóttir kemur síðan fram að nýju ásamt söngkonunum Huldu Gestsdóttur og Rúnu Gerði Stefánsdóttur. Tak a þær saman nokkur af vinsælustu ABBA-lögunum og er ekki að efa að gestir eiga eftir að taka vel undir í söngnum. Einnig þegar Herbert Guðmundsson stígur á svið og syngur meðal annars lögin Hollywood og Can’t Walk Away.
Að því búnu tekur við dynjandi diskótónlist fram undi r sunnudagsmorgun.
SAMÚELS-STOFAN TILEINKUÐ HOLLYWOOD-DROTTNINGUNUM
Framkvæmdastjóri kvöldsins er Valþór Ólasson, en hann hefur verið iðinn við að dæla inn gömlum Hollywood-myndum á heimasíðu klúbbsins. Stöðugt bætist við safnið og verður rjóminn af því sýndur á breiðtjöldum í salarkynnum Broadway sem og í Samúels-stofunni (Norðursalurinni), sem verður einkum tileinkuð Hollywood-keppninni, sem Samúel stóð að í samvinnu við skemmti- staðinn forðum.
LAUFDAL OG FRÚ SÉRSTAKIR HEIÐURSGESTIR
Margrét upplýsti að Ólafur Laufdal og kona hans, Kristín Ketilsdóttir, yrðu sérstakir heiðursgetir. Þau eiga heiður skilinn fyrir ómetanlegt framlag til skemmtanamenningar landsmanna, sem lifir greinilega enn góðu lífi í hjörtum fyrrum gesta þeirra eins og endurspeglast í undirtektunum við heimasíðu Hollywood á Facebook.
Kynnir kvöldsins verður Bjarni Ólafur Guðmundsson. Forsala aðgöngumiða hefst eftir fáeina daga og verður auglýst á forsíðu Samúels.
Til að fara inná Hollywood-síðuna smellir þú HÉR
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.