FRANZ GUNNARSSSON SKRIFAR LEIKJARÝNI
Resistance leikurinn var einn af stóru titlunum sem playstation 3 eigendur fengu að smakka á þegar tölvan kom á markað og þótti ansi góður biti. Þar segir frá faraldrinum Chimera sem þekur jörð- ina á fjórða áratugnum og þurftu spilarar að taka á honum stóra sínum til að stýra sögupersónunni Nathan Hale og skjóta ógrynni af alls kyns vættum sem fylgdu faraldrinum ásamt verum úr öðru sólkerfi.
Ísland í aðalhlutverki
Í Resistance 2 heldur söguþráðurinn áfram og hefst baráttan á Íslandi eða nánar tiltekið á Hólum. Landslagið er kunnuglegt og gott ef ég heyrði ekki búta úr íslenska þjóðsöngnum óma í bakgrunnstónlistinni. Nathan Hale er snúinn aftur og hefur veiran leikið hann grátt því kappinn er hægt og rólega að breytast í óvætt sjálfur. Honum er haldið í skefjum með sprautum, sem hann fær frá vísindamönnum bandaríkjahers sem fá hann til liðs við sig.
Í grunninn er leikurinn fyrstu persónu skotleikur með djúpum sögu- þræði, sem ég fer ekki nánar út í enda engin ástæða að skemma fyrir leikmönnum.
Stór, stærri, stærstur
Framleiðendur leiksins hafa greinilega viljað hafa hann íburðameiri en þann fyrri því leikurinn státar af stærsta skrímsli sem nokkur leikmaður hefur þurft að kljást við og þá erum við að tala um kvikindi á stærð við skýja- kljúf. Þetta gerir leikinn mjög dramatískan og sýnir að framleið- endur eru byrjaðir að teygja út möguleika playstation 3 tölvunnar.
Sniðugir óvinir með betri vopn
Gervigreindin hefur verið bætt ásamt grafíkinni og iðar nú leikurinn af lífi, andstæðingar eru sniðugir og vinna meira saman til að reyna kála þér. Vopnin eru margskonar og hafa öll tvo eiginleika í bardögum, sem koma sér vel fyrir leikmenn. Gott er að velja vopnin vel því þau nýtast misvel.
Fjöldabardagar og fjöldaspilun
Nathan Hale fær oft aðstoð frá hermönnum og ekki veitir af þegar sjón- varpsskjárinn er hreinlega morandi af óvinum. Samvinna er lykillinn og svo spillir ekki fyrir, að 32 spilarar geta barist á netinu. Það lengir líftím- ann á leiknum svo um munar.
Framhald, eða hvað?
Resistance 2 er alveg þrælskemmtilegur og naut ég þess að spila hann. Söguþráðurinn kemur á óvart og þá sérstaklega endirinn sem lætur góðar Hollywood myndir líta illa út. Resistance 2 er tilvalinn fyrir skotglaða spil- ara og þá sérstaklega ef þeir vilja skjóta í tætlur óvætti á okkar ástækra landi.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.