Á meðan Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í útvarpshúsinu við Efstaleiti voru Brit-verðlaunin afhent með pompi og prakt í Earl’s Court í London síðast- liðið fimmtudagskvöld.
Meðal þeirra hljómsveita sem tróðu upp voru U2, Girls Aloud og The Pet Shop Boys, en þeir fengu heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til breskrar tónlistar. Velska söngkonan Duffy fékk þrenn verðlaun á Brit-tónlistarhátíðinni. Hún var valin besta breska söngkonan og besti nýliðinn og plata hennar, Rockferry, var valin besta plata síðasta árs.
Heitustu fréttirnar frá bresku Brit verðlaunaafhendingunni voru ef til vill ekki hverjir hlutu verðlaun heldur hitt, að breska hljómsveitin Coldplay, sem tilnefnd var til fernra verðauna, hreppti ekki svo mikið sem ein. Þeir voru heldur lukkulegri eftir afhendingu bandarísku Grammy-verðlaunanna, en þar var hljómsveitin tilnefnd til átta verðlauna og hlaut tvenn. Er ekki sagt að enginn sé spámaður í eigin föðurlandi? Robert Plant gæti líka tekið undir það, en hann var ekki einu sinni tilnefndur til Brit-verðlauna en hlaut fimm Grammy-verðlaun fyrr í mánuðinum.
Listinn yfir alla verðlaunahafanna fer hér á eftir.
Besta breska hljómplatan – Duffy Rockferry
Besta breska hljómsveitin – Elbow
Besta breska smáskífan – Girls Aloud The Promise
Besti breski söngvarinn – Paul Weller
Besta breska söngkonan - Duffy
Besti breski nýliðinn – Duffy
Besti breski flytjandinn á sviði – Iron Maiden
Alþjóðlega platan – Kings of Leon Only By The Night
Alþjóðlega hljómsveitin – Kings of Leon
Alþjóðlegi sóló karlinn – Kanye West
Alþjóðlega sóló stelpan – Katy Perry
Verðlaun gagnrýnenda – Florence & The Machine
Besti breski uppstökustjórinn – Bernard Butler
Sérstök heiðursverðlaun – Pet Shop Boys
SMELLA HÉR til að fara á heimasíðu Brit-verðlaunanna
Hér fyrir neðan er stutt fréttamynd frá Brit-hátíðinni.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.