Hér fyrir neðan sjást úrdrættir úr sjónvarpsviðtölum við Plant, Krauss og T-Bone. (8:39)
Robert Plant, söngvari bresku rokkhljómsveitarinnar Led Zeppelin og sveitasöngkonan Alison Krauss hlutu í Los Angeles gærkvöldi fimm Grammy-verðlaun, þar á meðal fyrir bestu plötu ársins og einnig smáskíf- una, sem eru að sjálfsögðu tvö eftirsóknarverðustu verðlaunin, en þau Plant og Krauss nædu sér í öll verðlaunin sem þau höfðu verið tilnefnd til.
Tónlist þeirra Plants og Krauss er einskonar bluegrass/pop/classic rock blanda, sem hefur lagst afar vel í tónlistarunnendur og platan því selst í bílförmum og tónleikar þeirra verið afar vel sóttir. Á plötunni flytja þau m.a. gamalkunnug þjóðlög og R&B slagara, en plötuna unnu þau un dir öruggri handleiðslu T-Bone Burnett, sem stóð einnig á bak við tónlistina í Oh Brother Where Art Thou, sem var valin plata ársins 2002.
ALISON KRAUSS HEFUR NÚ HLOTIÐ 26 GRAMMY-VERÐLAUN
VILL FREKAR TÚRA MEÐ KRAUSS EN ZEPPELIN
Árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína, gáfu Led Zeppelin út tvær fyrstu breiðskífur sínar. Þeir komu saman í fyrra á einum tónleikum og voru félagar hans orðnir harðákveðnir í að fara í hljómleikaferð í tilefni 40 ára afmælis hljómsveitarinnar í ár. En Plant blés þá ætlan þeirra út af borðinu fyrir stuttu og kvaðst hafa meiri áhuga á að túra með Krauss um heiminn, en á planinu eru tónleikar bæði austan hafs og vestan. Og víst er að þau gætu bætt við mörgum tónleikum eftir að hafa unnið til Grammy-verðlaunanna í gærkvöldi. Plant hefur látið hafa það eftir sér, að hann vilji gjarnan ráðast í gerð nýrrar plötu með Alison Krauss í ljósi þeirrar velgengni sem þau njóta sem dúett.
SKAUT UNGLINGUNUM REF FYRIR RASS
Þeir fjórir, sem einnig voru tilnefndir til Grammy-verðlauna fyrir bestu plötu ársins, voru Coldplay, Radiohead, Lil Wayne og Ne-Yo. Gamli góði Plant var því að skjóta unglingunum ref fyrir rass, en enginn keppinauta hans um aðal verðlaunin var fæddur þegar hann hóf að rokka með Led Zeppelin. Hver segir svo að það sé ekki líf eftir fertugt?
Hér fyrir neðan sjást úrdrættir úr sjónvarpsviðtölum við Plant, Krauss og T-Bone. (8:39)
SMELLA HÉR til að skoða heimasíðu Plant og Krauss
SMELLA HÉR til að fara inn á heimasíðu Roberts Plant
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.