Hér fyrir neðan flytur Bruce Springsteen eitt af lögunum á nýju plötunni Working On A Dream.
Bruce Springsteen lék á alls oddi í leikhléi á Super Bowl, en þá kom hann fram ásamt hljómsveit sinni E-Street Band og tók Tenth Avenue Freeze-Out og renndi sér síðan beint í Born To Run. Á eftir fylgdi lagið Working On A Dream af samnefndri plötu sem var að koma út. Bossinn klikkti svo út með laginu Glory Days, sem var aldeilis ekki til að drepa stemmninguna.
Fyrir tónlistarmann, sem er að senda frá sér nýja plötu og leggja upp í margra mánaða hljómleikaferð um Bandaríkin til að fylgja henni eftir, er ekki ónýtt að fá að auglýsa sig á heitasta úrslitaleik ársins og það í beinni sjónvarpsútsend- ingu, sem áæt lað er að um 100 milljónir áhorfenda hafi fylgst með.
Bruce Springsteen var alsæll þegar hann yfirgaf leikvanginn í Tampa.
GÓÐA SKAPIÐ RAUK ÚR SPRINGSTEEN
Miðasalan hófst á netinu stundvíslega klukkan 10:00 morgunin eftir á vefsíðu Ticketmasters, sem er risinn í miðasölu í Bandaríkjunum. Og viti menn, aðeins fjórum mínútum síðar var sem þegar væri uppselt á marga af tónleikum meist- arans. Hins vegar var mönnum vísað áfram á miðasöluna TicketsNow, sem bjó svo vel að geta boðið miða í endur- sölu - á hækkuðu verði.
Þegar betur var að gáð reyndust eigendur netmiðasölunnar Tic ketsNow vera hinir sömu og reka Ticketmaster.
FORSETINN VIÐ ÞAÐ AÐ DRAGAST INN Í ÁTÖKIN
Miðakaupendur brugðust ókvæða við og fyrir hádegi þennan dag var Springsteen orðinn öskureiður, svo notað sé hans eigið orð yfir það (í lauslegri þýðingu Sam- úels!). Kvatti hann miðakaupendur til að kæra athæfið og sagðist sjálfur ætla að sækja málið
alla leið
ef á þyrfti að halda.
Einhverjir urðu til að benda honum á að risaveldið, sem stæði á bak við Ticket- master, væri í vinahópi forsetans og hefði rennt háum fjárhæðum í kosningasjóð Obama.
Springsteen kvaðst standa jafnt að vígi hvað það snerti og minnti á að hann hafi stutt Obama dyggilega á opinberum vettvangi. Veggspjöldum með þeim tveimur hafi verið dreift út um allar trissur og hann hafði verið beðinn um að koma fram í gaddinum úti fyrir þinghúsinu þegar innsetningarathöfnin fór fram.
BEÐIST AFSÖKUNAR
Áður en til þess kom að bankað væri upp á í Hvíta húsinu og spurt eftir Obama höfðu miðasalarnir séð að sér og beðist opinberlega afsökunar. Kölluðu þetta mistök. Það hefði verið vel meint að gefa miðakaupendum kost á að skipta við fleiri miðasölur en Ticketmaster. Fæstum þótti það hins vegar góður kostur að miðar sem áttu að kosta frá 99 dollurum kostuðu í endursölu hundruðir dollara og þeir í bestu sætin kostuðu allt í einu þúsundir dollara.
Ticketmaster lokaði loks á síðu sinni öllum tenglum inn á aðrar miðasölur. Annars gengur þetta gjarnan þannig fyrir sig í henni Ameríku, að miðasala, eins og Ticketmaster í þessu tilviki, kaupir alla miðanana af hljómleikahaldaranum og ber síðan alla ábyrgð á miðasölunni. Fyrir miðahrúguna á alla tónleika Bruce Springsteen, um fimmtíu talsins, höfðu þeir greitt jafnvirði 30 milljarða íslenskra króna. Áhættan engin því að það hefur ekki gerst síðan á síðustu öld að ekki væri uppselt á tónleika með The Boss.
Það tikkar síðan hratt þegar hægt er að svindla hressilega á miðas
ölunni.
ÓVÆGINN BOSS
Bruce Springsteen sendi enga hljómplötu frá sér í fyrra en árið á undan voru þær tvær. Um sumarið
kom út hljóðritun frá hljómleikum hans í Dublin og mátulega fyrir jólavertíðina kom svo út platan Magic. Sallafínn gripur.
Nýja platan,
Working On A Dream, er sú tuttugasta og fjórða í röðinni. Springsteen segist
ekki hafa verið fyrr búinn að ljúka gerð Magic en hann var byrjaður að semja fyrir þá næstu.
„Það voru hafðar hraðar hendur við alla gerð nýju plötunnar,” segir Bossinn. „Ég samdi lögin með hraði og þau voru æfð og hljóðrituð með látum. Við notuðum yfirleitt fjórðu eða fimmtu upptöku og vorum ekkert að dedúa við eitt né neitt. Við vildum hafa plötuna hráa og heillandi á þann hátt. Tónsmíðarnar og upptökurnar fóru fram í örstuttum hléum sem gáfust á hljómleikaferð okkar í fyrra og oft vorum við útkeyrðir eftir tónleika, en fórum samt í hljóðver ef það hafði verið planið. Eftir á held ég að þetta hafi gert okkur strákunum gott. Haldið okkur ferskum allan túrinn.”
Platan var hljóðblönduð í Atlanta, en hljóðrituð bæði á austur- og vesturströndinni.
Hann er harður þessi Boss.
Hér fyrir neðan flytur Bruce Springsteen eitt af lögunum á nýju plötunni. Life Itself heitir það.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.