Söngkonan Hera Björk hafnaði í öðru sæti í úrslitakeppninni í Danmörku þegar keppt var um hvaða lag verði framlag Dana í Eurovison keppninni í Moskvu í vor. Lagið sem bar sigur úr bítum heitir Believe Again og er sungið af Niels Brinck.
Fyrir fimm árum hóf Hera Björk söngnám hjá K atrínu Sadolin í Danmörku og lauk þar námi á síðasta ári. Er þar komin ein skýringin á því að hún sprettur nú upp sem sólósöngkona í dönsku undanúslitunum fyrir Eurovison, en fram til þessa hefur h ún sinnt bakraddasöng fyrir íslenska keppendur á þeim vettvangi, núna síðast í Belgrad.
Það má eiginlega segja, að Somday s é samnorrænt verkefni því að auk þess sem söngkonan er sótt til Íslands eru þrír af fjórum höfundum lagsins sænskir.
Hera Björk hefur kosið að búa áfram í Danmörku, enn um sinn að minnsta kosti. "Danmörk er jú mitt annað föðurland," segir þessa glettna söngkona. Höfundar lagsins Someday eru þau Christina Schilling og Jonas Gladnikoff, en textinn er eftir Henrik Sza bo og Daniel Schilling, en textinn fjallar um að þora að trúa á drauminn.
Höfundarnir eru allir góðir vinir og félagar. Lagasmiðirnir Christina og Jonas hafa samið tónlist í fjögur ár og átt lög í keppninni í Litháen, Albaníu og Belgíu. Auk þess að semja er Christine sjálf vin sæl söngkona og ásamt vini sínum Jónasi flutti hún eitt sinn lag í Eurovison í Búlgaríu.
Hér fyrir neðan má sjá Heru Björk flytja lagið í lokakeppninni í Kaupmannahöfn. Þeir sem kæra sig um að heyra lagið sem hafði betur á lokasprettinum geta SMELLT HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.