Ritstjóri Samúels hefur ekki lagt það í vana sinn að láta ljósmynda sig með frægu fólki þó oft hafi gefist tækifæri til þess þegar tekin hafa verið viðtöl, sem oftar en ekki eru við fólk í sviðsljósinu. Því gat hann ekki í fyrstu áttað sig á ástæðu þess að í myndasafni Samúel skildi leynast mynd af honum með Boy George nánast í fanginu. Svo rifjaðist þetta allt saman upp.
Myndin var tekin á hótelinu sem nú heitir Grand, en þar gisti Boy George er hann kom hingað til hljómleikahalds á síðustu öld. Efnt var til blaðamannafundar á hótelbarnum daginn fyrir tónleikana og máttu blaðamenn og fréttaljósmyndarar bíða dágóða stund eftir stjörnunni.
TÓK TÍMANA TVO AÐ FARÐA DRENGINN
Þegar Boy George loks sigldi seglum þöndum í salinn var honum fyrirgefin töfin. Hann hafði greinilega lagt á sig mikla vinnu við að farða sig fyrir ljósmyndatökurnar. Hann var líka svo yfirmáta alúðlegur, að það hefði enginn getað fengið sig til að nöldra í honum yfir töfinni. Fyrst gaf hann ljósmyndurunum færi á myndatökum og pósaði eins og sannkölluð drottning með miklum stæl.
Síðan kallaði hann á blaðamennina einn af öðrum til að gefa þeim færi á prívat viðtölum í stað þess að öll viðtölin yrðu eins eftir einn allsherjar blaðamannafund. Fagmannlegt.
VILDI EIGA MYND AF SÉR MEÐ KRÚTTINU
Við Adólf Ingi Erlingssonar, sem þarna vorum saman fyrir Samblöðin Samúel og Vikuna, svifum þó engu að síður saman á Boy George til að spjalla við hann um ferilinn. Kallaði söngvarinn ljúfi þá á einn úr fylgdarliði sínu og sagði honum að taka mynd af okkur þremur saman.
Ljósmyndarinn okkar, hann Gunnlaugur Rögnvaldsson, notaði þá tækifærið og tók myndina hér fyrir ofan. Myndina tók hann þegar söngvarinn hallaði sér að ritstjóran- um til að trúa honum fyrir því að sig langaði til að eiga mynd af þessum krúttlega með hálsbindið þegar heim kæmi.
MEÐ SÖMU KLIPPINGU Í DAG
Síðan eru liðin ótal mörg ár (og hár) og Samúel hefur ekki grænan grun um hvort gamla poppstjarnan varðveiti ennþá myndina af Adólfi Inga, sem er fyrir löngu orðinn íþróttafréttamaður á RÚV og hættur að skrifa fyrir Sam. En hvað sem því líður hefur Boy George tekið upp sömu hárgreiðslu og íþróttafréttamaðurinn knái.
Þá loksins veistu það, Adolf Ingi ...
Fyrst við erum að tala um Boy George látum við fljóta með eitt af hans gömlu sérkennilegu lögum, Do You Really Want To Hurt Me?
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.