Vídeó dagsins sýnir rúmlega sex mínútna langa fréttafrásögn síðan 1965 þar sem gerð er grein fyrir hljómleik- um the Kinks í Reykjavík. Baldvin Jónsson, sem þá var enn innan við tvítugt, hafði í einhverri rælni tekið upp á því að semja við bresku hljómsveitina um að koma hingað til hljómleikahalds. Þegar svo leið að Íslandsferðinni hálfu ári síðar gerðist það að nýtt lag frá hljómsveitinni skaust upp í fyrsta vinsældalistans í Bretlandi og víðar. Það var lagið You Really Got Me .
PABBI GEKKST Í ÁBYRGÐ
GÍTAR, BASSI OG TROMMA ...
„Þá finnst mér það merkilegt, þegar ég lít til baka, hvað það þurfti lítið af hljóð- færum og umstangi til að halda tónleika miðað við í dag,” bætti hann við. Enda var það nú svo, að hann gat leyft sér að vera með tvenna tónleika sama daginn, klukkan sjö og ellefu.
„Við færðum bara til hliðar trommusettið og þá fáu hátalara sem stóðu á sviðinu til að hægt væri að vera með bíósýningu klukkan níu, en það hefði verið full dýrt að kaupa hana út. Svo var græjunum bara ýtt inn á svið aftur fyrir seinni tónleik- ana. Núna eru þyngdin á hljómflutningstækjunum talin talin í tonnum.”
ÓTRÚLEGAR TEKJUR
- Græddir þú ekki feitt á þessum tónleikum, Baldvin?
„Jú, það voru ótrúlegar tekjur sem höfðust upp úr þessu öllu og ekkert nema sælar minningar. Tónleikahaldið með Kinks er eitt af skemmtilegustu atvikum í mínu lífi og er samt af mörgu að taka,” viðurkennir Baldvin fúslega.
The Kinks gistu á Hótel Borg og héldu sig mest innan dyra enda hótelið um- kringt æstum aðdáendum. Notaði Ray Davies tímann vel til tónsmíða og er m.a. grunaður um að hafa lagt hér drög að laginu I’m On an Island, sem kom síðar út á plötu með the Kinks.
ENN Í DAG TREKKIR RAY DAVIES VEL AÐ
The Kinks átti ríkan þátt í Bresku innrásinni svokölluðu, þegar breskar rokksveitir lögðu rokkheiminn að fótum sér á 7. áratugnum, og ruddu um leið brautina fyrir aðrar rokksveitir, gjarnan í harðari kantinum, en You Really Got Me hefur stund- um verið sagt fyrsta þungarokkslagið, jafnvel fyrsta pönklagið.Hljómsveitin átti stöðugu fylgi að fagna í hartnær tvo áratugi, einkum í Banda- ríkjunum þar sem vinsældir sveitarinnar urðu jafnvel enn meiri en í Evrópu. The Kinks var innvígð í Frægðarhöll rokksins – Rock and Roll Hall of Fame – árið 1990 og hefur Ray Davies átti góðu gengi að fagna sem sólólistamaður, leikari, söngleikjahöfundur og sjónvarps- og kvikmyndatónskáld síðustu áratugi.
Farðu inn á skemmtilega heimasíðu Ray Davies með því að SMELLA HÉR
Á vídeói dagsins má sjá upphitunarhljómsveitirnar tvær, Bravó frá Akureyri og Tempó, en síðan flytja the Kinks lagið You Really Got Me. SMELLA HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.