AFTUR Á FORSÍÐU VÍDEÓ MEÐ BO NEÐST Á SÍÐUNNI
(Ath.: Eftirfarandi grein var skrifuð 2009.)
„Maður stimplar sig inn árið 1967 og út 2000,” sagði Björgvin Halldórsson í viðtali sem Ásgeir Tómasson tók við söngvarann fyrir meira en aldarfjórðungi eða árið 1982. Annað hvort hefur Bo gleymt að rífa af dagatalinu eða hann kann ekki á stimpilklukku. Hann sýnir alla vega ekki á sér neitt fararsnið enn sem komið er.”
Björgvin hefur fengið yfir 30 þúsund manns á sólótónleika í Laugardalshöll á tólf mánaða tímabili. En það var einmitt í Höllinni sem hann var forðum kjörinn Popp- stjarna ársins. Það var árið 1969, sama ár og tímaritið Samúel hóf göngu sína, eða fyrir 40 árum.
NÝKOMNIR ÚT ÚR BÍLSKÚRNUM
Í viðtalinu sem Samúel átti við poppstjörnuna þrettán árum síðar var hann spurður út í þau ónot sem ýmsir nýliðar í dægurlagatónlistinni höfðu verið með í hans garð. Þótti þeim Bjöggi þá vera farinn að heyra til eldri kynslóð tónlistarmanna og ekki almennilega getað skipað sér á bekk með þeim sem þá voru að sinna dægurlagafluttningi. Var hann sár?
„Nei, síður en svo. Ég lít mikið frekar á þetta sem kompliment,” svaraði Bo spurningu Samúels 1982. „Ég er ákaflega hress yfir gróskunni sem ríkir hér í rokkinu. En mér finnst vera búið að skruma hana dálítið upp. Þetta er ósköp svipuð bylgja og var fyrir einum tólf árum. Það hafa komið fram margir góðir tónlistarmenn upp á síðkastið en þó nokkrir hafa ekki lokað bílskúrs- hurðinni almennilega á eftir sér ennþá. Það eru helst þeir sem hæst hafa.
Bubbi til dæmis – það er nú alltaf verið að tala um hann. Ég kann nú ágætlega við margt sem hann er að gera. Hann er að skríða úr púpunni. Samt finnst mér hann alltaf vera bestur sem blúsari. Tónlistin hjá Þey er góð þó hún sé full þunglynsileg fyrir minn smekk. En það breytir engu. Öll tónlist á fullan rétt á sér.”
BUBBI HVATVÍSARI Í GARÐ BJÖGGA ÁRI ÁÐUR
Það vekur aðdáun Samúels hve hófsamur Bjöggi var hér í orðum sínum um Bubba sem var öllu hvatvísari í garð Bjögga og félaga hans árið áður. Til upprifjunar skal hér gripið niður í viðtal Samúels við Bubba árið áður en viðtalið við Bjögga var tekið. Þar sagði Bubbi: "Mér finnst í lagi þó að ég hafi sagt við Brimkló og þá: Ég er löggiltur hálfviti og hlusta á HLH og Brimkló. Þeir áttu það alveg skilið. Það var tími til kominn að einhver gæfi þeim á kjaftinn í sambandi við það sem þeir voru að gera. Vegna þess að allir hafa þessir menn verið að gera góða hluti.Ég er alveg tilbúinn að standa frammi fyrir því að að einhver komi og segi: Ég er lög- giltur hálfviti og hlusta á Bubba. Það er mjög eðlilegt. Ekki kannski eftir ár, en kannski eftir tvö eða þrjú ár verð ég kominn á þá grund- vallarlínu. Alveg sama þótt ég mundi þróast áfram tónlistarlega og gera sömu tónlistar- legu hlutina. Þetta er bara lögmál. Þetta er lögmál markaðarins. Lögmál lífsins."
Svo mörg voru orð Bubba - sem hefur raunar verið í seinni tíð ósköp önugur í garð þeirra sem hafa gagnrýnt hann, svo ekki sé meira sagt ...
Það er þó rétt að minna hér á að þeir Bubbi og Bjögga hafa fyrir löngu sæst heilum sáttum. (Þvi til sannindamerkis er afmælisgrein Bubba á Pressan.is þar sem hann segir um Bjögga sextugan: "Allt sem Björgvin gerir er algjörlega pottþétt, eitthvað villt og hrátt er ekki hans stíll. Björgvin hefur sungið fyrir þjóðina í áratugi og er löngu elskaður og dáður. Við eigum fjölda góðra og frábærra söngvara hér á landi sem syngja dægurtónlist en það eru aðeins þrír í mínum huga sem sannarlega eru risar sem skemmtikraftar og söngvarar. Sá fyrsti er Haukur Morthens, hinn er Raggi Bjarna og sá þriðji er Björgvin Halldórsson." Til að lesa allan pistil Bubba smellir þú HÉR.
EKKERT TÖLVUPOPP, TAKK FYRIR!
Í viðtalinu við Bjögga, sem vel að merkja var tekið fyrir rúmum aldarfjórðungi, barst tölvutækni í tal. Bjöggi hafði nýlokið hljóðritun sólóplötu sinnar Á hverju kvöldi í London þar sem upptökustjóri og hljóðfæraleikarar voru allir erlendir snillingar.
„Þó svo að þessar tölvur séu orðnar mikils ráðandi á markaðnum núna jafnast ekkert á við mannlegt band í topp formi,” sagði Bo 1982. „Ég er með öðrum orðum íhaldssamur á mannlegu vitleysurnar í tónlistinni. Enda héldum við á plötunni þeim mannlegu göllum sem komu þar fyrir. Tölvurnar eru sem betur fer ekki búnar að ná þeim enn og gera vonandi aldrei.”
Það verður heldur ekki sagt að Björgvin Halldórsson hafi misst sig í tölvutækninni þegar tölvupoppið reið yfir …
Hér er eitt got með Bjögga á tónleikum í troðfullri Laugardalshöll - sjö árum eftir að hann ætlaði að vera búinn að stimpla sig út ...
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.