FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR
Það er alltaf gaman þegar góðar leikja- hugmyndir verða að frábærum tölvu- leikjum því oft vill svo verða að fram- leiðendur leikja ná ekki að yfirfæra góðar hugmyndir í vöru sem sátt er um. Dead Space er leikur sem gerður er úr Manga heiminum sem fyrir þá sem ekki vita eru japanskar teiknimyndir, oft ofbeldisfullar eða með erótískum tilburðum.
Dead Space er hryllingsleikur af bestu gerð og það skín í gegn að framleiðandinn hafi lagt mikinn metnað í að gera fágaðan en í senn hörkuspennandi leik.
MISSA VITIÐ OG BREYTAST Í ÓGEÐSLEG KVIKINDI
Söguþráður leiksins er ekki frumlegur og er í raun fenginn að láni frá sci-fi myndum á borð við Alien. Djúpt í geimnum er skipið Ishimura við störf að námuvinna plánetu. Innan plánetunnar finnst svokallaður „marker" sem er leyndardómsfullt fyrirbæri sem gerir það að verkum að verkamennirnir byrja að missa vitið og breytast svo í viðbjóðsleg kvikyndi. Af dularfullum ástæðum gerist slíkt hið sama um borð í Ishimura þannig að samband skipsins við jörðina rofnar.
Dead Space er þriðju persónu skotleikur í eðli sýnu en mikil áhersla er lögð á að rannsaka umhverfi skipsins, betrumbæta búning söguhetjunnar sem og vopnin í leiknum.
... SKJÓTA EÐA SAGA ÚTLIMINA FYRST AF
Vopnin í leiknum eru margskonar t.d. vélsög, eldvörpu og lazerbyssur sem virka misvel á þá ófögnuði sem ráðast á Isaac. Öll vopn hafa tvo skotmöguleika og kemur það sér vel í mismunandi aðstæðum. Isaac getur aðeins haft fjögur vopn á sér í einu en hægt er að skipta þau út á mismunandi stöðum í leiknum í svokölluðum búðum sem selja vopnin, skotfæri og annan búnað. Í búðunum er einnig hægt að geyma hluti og selja fyrir pening sem nýtist í innkaup.
Andstæðingar Isaacs eru allmargar verur en eina leiðin til að drepa þær allar er að skjóta eða saga útlimina fyrst af. Sá gjörningur gerir leikinn mjög blóðugan en að sama skapi hika óvinirnir ekki við að skera Isaac í tvennt eða þá að afhausa hann.
ÓSMEKKLEGT EN SKEMMTILEGT
FRAMÚRSKARANDI GRAFÍK
Dead Space er mjög flottur leikur og er grafíkin framúrskarandi. Hljóðsetning er til fyrirmyndar og músíkin skapar verulega magnþrungið andrúmsloft.
Dead Space er dæmi um hvernig á að gera góðan leik og mæli ég með því að allir PS3 eigendur sem eru 18 ára eða eldri fari strax út í næstu búð og tryggi sér eintak.
Hér er vídeó til kynningar á Dead Space:
http://www.youtube.com/watch?v=67cTIWDuKXM
Hér fyrir sérð þú Dead Space vídeó þar sem tónsmíð Sigur Rósar hljómar.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.