Eartha Kitt lést á öðrum degi jóla úr krabbameini. Árið sem Samúel hóf göngu sína var Eartha Kitt að slá í gegn í hlutverki Kattarkonunnar í vinsælum sjónvarpsþætti. Hún nýtti þá vinsældir sínar til að koma andúð sinni á stríðinu í Víetnam rækilega á framfæri. Hún fékk bágt fyrir í heimalandi sínu, Bandaríkjunum, en gaf sig þá bara meira að Evrópubúum á meðan andaði köldi í hennar garð heimafyrir. Síðar átti hún eftir að veita viðtöku tveimur Emmy verðlaunum og var tilnefnd til þeirra þriðju. Hún var einnig tilnefnd til tveggja Tony og Grammy verðlauna.
MÓÐIRIN Á TÁNINGSALDRI ER HÚN ÁTTI KITT
Móðir hennar vann á baðmullarekru Suður-Karólínu. Henni var nauðgað af vinnuveitanda sínum og eignaðist Kitt þegar hún var aðeins fjórtán ára. Kitt var átta ára þegar móðir hennar varð að láta hana frá sér. Hún var send til frænku sinnar í Harlem en stakk af að heiman 15 ára gömul og hafðist lengi við á meðal flækinga.
En hún hafði metnað sem dreif hana áfram og fyrstu kynni hennar af sviði voru með vinsælum dansflokki skipuðum blökkumönnum. Með hópnum fór um hún víða um lönd og öðlaðist víðsýni og áhuga á að nema töngumál. Tungumálakunnáttuna nýtti hún svo óspart á söngferli sínum og öðlaðist þannig síðar auðveldlega vinsældir víðar en í heimalandinu. Þegar hún var eitt sinn með dansflokknum í París féll næturklúbbaeigandi fyrir söng hennar og gerði við hana samning.
KVÖTT TIL AÐ KOMA HEIM OG SKEMMTA
Söngur Eartha Kitt barst um nágrannalöndin og ekki leið á löngu þar til landar hennar voru líka farnir að leggja við hlustir. Í framhaldi buðust henni hlutverk í kvikmyndum og kabarettsýningum á Broadway, en þá hafði hún þegar komið fram á leiksviði í Frakklandi, Belgíu og Þýskalandi. Til þess var tekið er henni var boðið hlutverk á sviði í Chicago leikhúsinu, en þar tíðkaðist ekki að hleypa blökkumönnum á svið.
Meðal eftitrminnilegustu kvikmyndanna með henni má nefna St. Louis Blues frá árinu 1958, en þar var hún í aðal kvenhlutverkinu og lék á móti Nat King Cole, einnig minnast margir hennar í kvikmyndunum Boomerang og Harriet the Spy frá áttunda áratugnum. Hún lék í yfir þrjátíu kvikmyndum. Þeirri síðustu árið 2007.
HITAÐI BLÓÐIÐ Í BANDARÍKJAFORSETA
OG STJÓRNARHERRUM Í SUÐUR-AFRÍKU
Á þessu ári eru liðin fjörtíu ár síðan Lady Bird Johnson forsetafrú bauð henni í Hvíta húsið. Kitt var þá móðir átta ára gamallar telpu og lagði út af móðurhlut- verkinu er hún ávarpaði þær fimmtíu konur sem boðið var til veislunnar. Harmaði hún örlög ungu mannanna sem mæðurnar horfðu á eftir í Víetnam-stríðið til þess eins að verða skotnir þar til bana. Þessi orð hennar mæltust ekki vel fyrir hjá stjórnvöldum sem tókst að trufla feril hennar í Bandaríkjunum eins og áður er getið. Ertha Kitt fórt því í langt söngferðalag um aðrar heimsálfur. Meðal annars tróð hún upp í Suður-Afríku og gagnrýndi þá í leiðinni aðskilnaðarstefnuna fullum hálsi.
Það var alla tíð töggur í stelpunni.
Hún átti afturkvæmt í Hvíta húsið. Þá í boði Jimmy Carters forseta. Það var árið 1978, en þá hafði hún slegið í gegn í söngleiknum Timbuktu! á Broadway. Fyrir framistöðu sína þar var hún tilnefnd til Tony verðlaunanna.
FÉKK GULLPLÖTU VIKU FYRIR ANDLÁTIÐ
Eartha Kitt bar aldur sinn vel og kom fram á tónleikum um víða veröld allt fram undir það síðasta. Aðeins viku áður en hún lést veitti hún viðtöku gullplötu fyrir lagið Santa Baby, en þessu gamalkunna jólalagi hafði hún þá komið á Topp tíu listann í Bandaríkjunum.
SMELLA HÉR til að heyra og sjá jólalagið. Hafðu í huga að Eartha Kitt var orðin 79 ára gömul þegar þessi upptaka var gerð fyrir sjónvarp fyrir tveimur árum.
SMELLA HÉR til að skoða heimasíðu söngkonunnar.
HÉR er líka forvitnilegt vídeó sem gert var við lag hennar This is my life.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.