SJÁ VÍDEÓ NEÐST Á SíÐUNNI
Þybbinn og vandræðalegur steig Paul Robert Potts fram á sviðið í forkeppni Britain's Got Talent í sumarbyrjun 2007. Sonur strætisvagnastjóra og kassadömu í stórverslun. Þegar hann opnaði munninn til að svara fyrstu spurningu dómaranna kom í ljós að þessi 37 ára gamli náungi frá Wales var með skakkar tennur.
Þegar farsímasalinn Paul Potts upplýsti, að hann ætlaði að taka óperu fyrir dómarana gátu þeir ekki leynt vantrú sinni eða öllu heldur angist. Hafa þeir allir viðurkennt það fúslega á eftir, að þeim hafi engan vegin litist á blikuna og aðeins óttast það versta. Það má líka sjá mjög glöggt á upptökum frá keppninni og kemur raunar fram í máli þeirra á myndbandinu hér neðst á síðunni. En á sömu stundu og Paul Potts hóf upp raust sína varð öllum ljóst, að hér færi nýr stór- tenór og hakan á Cowell seig niður á bringu.
SAMNINGUR UPP Á JAFNVIRÐI 180 MILLJÓNA ÍSLENSKRA KRÓNA
Simon Cowell gerði við hann milljón punda útgáfusamning í snatri og fyrr en varði höfðu fjórar milljónir eintaka af geisladiskinum One Chance selst í heiminum og diskurinn komist í fyrsta sæti vinsældalista í fjórtán löndum. Í heimalandi hans, Bretlandi, komst diskurinn í tvölfalda platínumsölu og á Nýja Sjálandi sem og í Danmörku, Svíþjóð og Suður-Kóreu í þrefalda platínumsölu, en í síðast talda landinu sat diskurinn nítján vikur í fyrsta sæti vinsældalistans.
BYRJAÐI Á AÐ HERMA EFTIR PAVAROTTI
Það kom á daginn að þessi ólánslegi afgreiðslumaður hjá Bílasímahúsinu í Bristol í Wales hafði spreytt sig á óperusöng víðar en í sturtunni heima. Þegar hann tók Nessun Dorma úr óperunni Turandot fyrir dómarana hafði hann bæði notið náms og sviðsreynslu. Hann fékk strax dálæti á sönglistinni í unglingaskóla og söng með skólakór og sömuleiðis í kirkjukórum.
Hann spreytti sig í fyrsta skipti á óperusöng í karókíkeppni árið 1999 og var þá dressaður upp í hlutverk Luciano Pavarotti. Sama ár tók hann þátt í hæfileikakeppn- inni My Kind of Music. Hann fór ekki með sigur af hólmi en hafði þó átta þúsund pund upp úr krafsinu sem hann notaði til að fara um stund til náms í óperusöng á Ítalíu. Þar stóð honum til boða að syngja fyrir framan sjálfan Pavarotti sem hann hafði hermt eftir skömmu áður.
SÖNG BARA Á KARÍÓKÍBÖRUM Í FJÖGUR ÁR
Að námi loknu buðust honum nokkur misstór hlutverk í uppfærslum áhugamanna um óperusöng, en árið 2003 varð hann fyrir skakkaföllum sem leiddu til þess að hann tróð í besta falli upp á karíókíbörum. Þá var það sem hann ákvað að þreyta inntökupróf í keppnina Britain's Got Talent, sem hann hafði séð auglýsta á netinu.
Hann komst í úrslit keppninnar 17. júní á síðasta ári. Þar sló hann rækilega í gegn eins og fyrr segir en tvær milljónir sjónvarpsáhorfenda greiddu honum atkvæði, sem er met í atkvæðagreiðslu keppninnar.
Það næsta sem Paul vissi var að hann átti m.a. að mæta í hljóðver til að gera hljómplötu, æfa söngatriði til að flytja fyrir framan Englandsdrottningu og syngja á tónleikum með stórsöngkonunni Katherine Jenkins.
Fyrsta platan kom út um mánuði síðar og nú eru hafnar upptökur á þeirri næstu.
KYNNTIST KONUNNI Á NETINU - NÝFLUTT Á HERRAGERÐ
Þau eru barnlaus og létu barneignir ekki hvarfla að sér fyrr en eftir sigurinn í keppninni í fyrra. Hann segir að hann hafi ekki haft neina yfirdráttarheimild á bankareikningi sínum og átt í vandræðum með að græja 15 punda yfirdrátt þegar söngurinn gerði hann skyndilega að margmilljóner. Eftir að milljónirnar hafa sópast að honum fyrir hljómdiskasölu og tónleikahald treysti hann sér loks á dögunum til að kaupa huggulegan herragarð fyrir 450.000 £ nærri bernskustöðv- unum í Wales. Í Bristol á hann tvo bræður og eina systur. Faðir hans hefur ekið strætis- vagni en móðir hans verið kassadama í stórmarkaði.
Fyrir hálfu öðru ári þekktu hann tæpast næstu nágrannar hans á Port Talbot stræti þar sem hann átti heima. Til marks um vinsældir Paul Potts í dag má geta þess, að hann var nýlega gerður að heiðurs- borgara í Tanian í Taiwan.
ÞVERS OG KRISS UM HEIMINN
Síðastliðið hálft annað ár hefur verið annasamt hjá þeim hjónum, en Paul Potts hefur komið fram á 103 einsöngstónleikum víða um heim.
Paul stóð til boða að hljóðrita næstu plötu sína í einu fullkomnasta hljóðveri Los Angeles, en hann kaus fremur að taka upp í fyrirtaks hljóðveri í Stokkhólmi svo hann ætti auðveldara með að skjótast heim í hléum til að njóta samverustunda með konu sinni í nýja slotinu. Skal engan undra. Hann hefur ferðast rúmlega 153 þúsund kílómetra milli 30 landa frá því hann stóð fyrir framan Simon Cowell á þjóðhátíðar- degi okkar Íslendinga í fyrra.
SMELLTU HÉR til að sjá myndbandaröð sem rekur feril Paul Potts frá því hann steig á svið hæfileikakeppninnar Britain's Got Talent í fyrravor.
SMELLTU HÉR til að skoða heimasíðu Paul Potts.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.