Funksveitin Mama’s Bag var stofnuð á vormánuðum ársins 2008 og hefur haft í nógu að snúast síðan.
Sönkonan María Magnúsdóttir leiðir bandið. Hún útskrifaðist frá Tónlistarskóla FÍH síðastliðið vor og hefur einmitt vakið athygli að undanförnu með lagi sínu Not your housewife , funkskotið popplag, sem hljómað hefur víða á útvarpsstöðvum.
Mama's Bag spilar soul og funk ábreiður ásamt frumsömdu efni söngkonunar Maríu Magnúsdóttur. Fínasta músík. Segjast þau í bandinu vera undir áhrifum frá James Brown, Aretha Franklin, D'Angelo, Erykah Badu, Amy Winehouse, Stevie Wonder og fleiri útlendingum lífs og liðnum.
Hljómsveitina skipa auk Maríu, Stefán H. Henrýson á hljómborð, Kristján Hafsteinsson á bassa, Sigfús Ómar Höskuldsson á trommur, Ragnar Árni Ágústsson á saxófón og Rafn Emilsson á gítar.
Til að fá hugmynd um hvað hér er á ferðinni skal bent á heimasíðu Mama's Bag á My Space: http://www.myspace.com/mamasbag
Dívan María er auk þess með sína eigin síðu:
http://www.myspace.com/mariamagnusdottir
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.