MYNDIR OG TEXTI: STEINDÓR (litli bróðir Samúels.) VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐU
STÓNES ( Rolling Stones heiðrunarsveit Íslands) heldur tónleika til heiðurs stærstu og bestu rokkhljómsveit mannkynsögunnar á Sódóma Reykjavík í kvöld föstudagskvöld (1.apríl). Hljómsveitin Stónes, sem er skipuð þekktum tónlistarmönnum úr öllum áttum, hefur sannað sig sem eitt besta tónleikaband landsins og mun enginn verða fyrir vonbrigðum er þeir renna yfir öll helstu lög 40 ára ferils Rolling Stones.
MIDI.IS (Miðaverð kr. 1.500.) VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐU
Hér á eftir fara skrif Samúels um Stónes sem birtust í desember 2008. Breytingar eru ekki miklar síðan þá, en Krummi Björgvins er kominn inn sem slagverksleikari og einnig njóta Stónes liðsinnis Snorra Helgasonar úr Sprengjuhöllinni og þegar mikið liggur við mun Jens Hanson úr Sálinni blanda sér í málin.
Djöfull þarf ég að skella mér á tónleika með The Rolling Stones. Þau lög sem ég man eftir sem barn eru t.d . Paint it black, Sympathy for the devil og Gimme Shelter. Frá blautu barnsbeini hef ég verið grjótharður aðdáandi Stones, hef lesið endalaust af greinum, viðtölum, bókum og horft á allar þær tónleikaupptökur sem ég hef komist yfir. Svo þegar ég frétti að Bjössi trommari í Mínus væri að setja saman tribute-bandið „Stóns″ þá vöknuðu blendnar tilfiningar hjá mér. En jæja hann er jú töff týpa og þriðji besti trommari í heimi. Ég gaf honum því séns en var nánast búinn að ákveða hvernig ég ætlaði að rífa hann í mig þegar ég skellti mér á fyrstu tónleikana með þeim á Players.
Þegar ég kom inn á staðinn sem er skemmtileg blanda af sportpub, poolstofu, veitinga- og tónleikastað vissi ég satt að segja ekki alveg við hverju var að búast. „Fuck it, gef þessu séns,“ hugsaði ég. Það eru nú færir rokkarar í þessu bandi. Bjössi úr Mínus (Jagger), Bjarni úr Mínus (Keith), Frosti Gringó úr Esju, Biggi úr Motion Boys (hljómborð) og gaurinn úr Lights on highway (bassi).
Ég kíkti baksviðs og smellti af þeim mynd, en það vantaði bassaleikarann þannig að Hrói hljóðmaður Íslands fyllti í skarðið. Ok, ok, það verður alla vega gott sound fyrst Hrói sér um það. Þetta var svona að skána. Þeir voru helvíti flottir í réttu göllunum. Voru nú raunar frekar rólegir allir. Ég rétt náði að fá netfangið hjá Bjössa og fékk leyfi til að senda honum spurningar. Ég kannski geri það við tækifæri. Svo hlaupa þeir upp á svið.Ég gerði myndavélina klára og var nú farinn að hafa meiri trú á þessu. Bandið byrjar að spila. Enn hugsa ég; Ok ok, þetta eru færir strákar, en þetta verður samt aldrei alvöru. En svo steig Bjössi á svið. „VÁ“! Þetta er alveg að virka. Ég þykist nú vita hvernig Jagger hreyfði sig ca. 1972 þegar Stones var uppá sitt besta. Bjössi var alveg með alla réttu taktana og það myndaðist skemmtileg stemmning á staðnum.
Strákarnir í bandinu töluðu sín á milli með breksum hreim og lögin voru kynnt á bresku. Eftir tónleikana var ég alveg furðulega sáttur. Bjarni þarf að taka eitt gott skrall, helst ekki mi nna en þriggja sólarhringa vöku, svo hann nái rétta lúkkinu, en hann stóð sig eins og hetja. Frosti er alltaf skemmtilegur á bakvið settið. Ekki alveg sama tónlist og hann spilaði með Klink. Það sem ég var mest heillaður af var hversu Bjössi náði að sanfæra mig um hversu klár tónlistarmaður hann er.
Þetta hefði nú getið verið aðeins flottara ef maður miðar við sjálfan orginalinn. Fuck it, þetta voru fyrstu tónleikarnir og þegar ég spurði Bjössa hvenær næstu tónleikar yrðu svaraði hann: „Ég er ekki alveg viss.“ Það er rokk og ról, ekkert vera að hugsa um næstu tónleika bara láta þetta kvöld ganga upp.
Þeir eru alla vega á réttri leið og ég fer pottþétt á næstu tónleika með þeim. Ekki spurning. Stóns eru komnir til að vera!
Næst fer ég á tribute-tónleika með Guns´n Roses, og það eru nú ekki minni spámenn sem skipa það orginalband, sem ég var svo heppinn að sjá 1992. Snorri úr idolinu er undir mikilli pressu að gera það vel.
Þarf samt að drulla mér að sjá The Rolling Stones í eigin persónum áður en þeir hrökkva upp fyrir.
Hér fyrir neðan má sjá Stónes gera grein fyrir sér í Kastljósi í upphafi ferilsins.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.