VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐUNNI: YOU LITTLE FRUITCAKE AF PLÖTU INGA
Samúel birti viðtal við ungan, hafnfirskan ævintýramann fyrir sex árum, Inga Örn Gíslason að nafni. Hann var staddur þá stundina í Singapoore á vegum fyrirtækisins TLG, dótturfyrirtækis Virgin, sem hafði leigt þangað risavaxið loftfar af sama tagi og gamli Zeppelin-belgurinn var. Ingi er lærður flugvirki og hafði fylgt farinu um fjarlægustu lönd. Í lok samtalsins viðurkenndi hann að draumurinn væri að snúa sér að tónlistinni. “Ég keypti gítar í Kína og er farinn að æfa mig á hann,” sagði Ingi. “Kannski maður komi með nokkur lög í ferðatöskunni þegar maður kemur heim.”
Núna, sex árum síðar, er Ingi staddur hér heima með nýjan geisladisk. Diskurinn ber nafnið Human Oddities og hefur að geyma frumsamin lög sem Ingi samdi á ferðum sínum um heiminn á vegum TLG. Slegið var upp útgáfutónleikum te; NASA við Austurvöll síðastliðið föstudagskvöld, en þar kom okkar maður fram ásamt átta manna hljómsveit.
Til að heyra fjögur lög af diskinum SMELLIR ÞÚ HÉR
GERÐI ÞAÐ GOTT MEÐ FEITRI OG FÍNNI
Sannleikurinn er sá, að þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ingi lætur frá sér heyra opin- berlega. Fyrir um áratug söng Ingi nefnilega lag sem náði talsverðri spilun. Það var lagið “Feit og fín”. Á þeim tíma tróð hann upp á Gauknum og þótti góður.“Þetta var allt saman meira í gríni gert. Ég held það hafi tekið okkur Helga, félaga minn, hálftíma að hljóðrita lagið og við vildum ekki fyrir nokkurn mun spila það aftur. Í dag skil ég nú ekki hvaða kæruleysi það var. En lagið gerði það samt nokkuð gott,” sagði Ingi í viðtalinu við Samúel hér um árið. “Eigi ég eftir að taka til við tónlistina aftur verður það af fullri alvöru,” bætti hann svo við – og stóð við það.
MEÐ RICHARD BRANSON Í EFTIRDRAGI í HONG KONG
Þegar viðtalið var tekið fyrir sex árum hafði hann starfað í um tvö ár sem flugvirki TLG-loftfarsins og hafði þá farið um svo ólík lönd sem England, Spán, Kína og Indónesíu svo einhver séu nefnd. Næstu tvö árin á eftir fylgdi hann loftfari sem fór á milli allra fylkja Bandaríkjanna. Tilefni þessara loftsiglinga var að auglýsa hin ýmsu vörumerki sem sjá mátti utan á farinu. Vörumerki eins og Sony, Mazda, Nokia, Boeing og Budweiser. Á TLG nokkur risavaxin loftför sem fyrirtækið leigir í þessum tilgangi út um allan heim og eru áhafnir hvers þeirra um tólf til fjórtán talsins.
Ingi segist aldrei hafa hitt eiganda Virgin, milljarðamæringinn Richard Branson. “Hann spratt þó upp í Hong Kong þegar við vorum að vinna þar og fékk flugmanninn til að draga sig á eftir loftskipinu á sjóskíðum. Hress náungi, Branson.”
Það er þó ekki fyrir tilstilli þessa spræka eiganda Virgin útgáfufyrirtækisins sem Ingi er nú kominn með afurðir sínar á disk. En það er ævintýri útaf fyrir sig hvernig það atvikaðist.
FYRIR TILVILJUN Í UPPTÖKUR HJÁ MARGFÖLDUM VERÐLAUNAHAFA
Eftir að Ingi hætti störfum hjá TLG ákvað hann að gera alvöru úr draumnum um að taka tónlistina alvarlega. Hann fór til Rotterdam í Hollandi þar sem hann lagði stund á nám í tónsmíðum. Síðan hélt hann til London þar sem hann var í hér um bil eitt ár.Í skólanum í Rotterdam kynntist hann einna best hollenskum strák sem var að læra hljóðstjórn. Skólafélagann langaði loks til að fá umsögn um hæfni sína á því sviði hjá einum virtasta upptökustjóra heims, Scott Matthews, sem er með hljóðver í San Francisco og hefur á síðustu tuttugu árum stýrt upptökum á tónlist margra af merkustu hljómlistarmönnum samtímans.
Eftir að hafa hlýtt á upptökurnar sendi Mathews stráknum stutta umsögn um þær sem slíkar, en hafði mestan áhuga á vita hver hljómlistarmaðurinn væri. Til að gera langt mál stutt: Hollendingurinn er enn heima í sínu Hollandi en Ingi endaði í Kaliforníu þar sem hann varði sex vikum með Scott Mathews sem vildi ólmur fá að taka upp disk með lögum hans.
MATRÖÐ Í FANGAKLEFANUM HANS AL CAPONE
“Þetta er ótrúlega fær náungi og kröfuharður,” sagði Ingi í viðtali við Samúel að upptökum loknum. “Hann er að sjálfsögu með sitt eigið hljóðver, Tiki Town, og þar er allt fullt af hljóðfærum sem hann spilar á eftir þörfum. Jafn vígur á þau öll. Við vorum bókstaflega að allan tímann og þegar við tókum stuttar pásur greip hann gjarnan eitthvert hljóðfærið til að lofa mér að heyra hugmyndir sem að gagni gætu komið í lögunum.”
Viðurkenningarnar hefur Mathews hlotið fyrir upptökur á plötum ekki ófrægari hljóm- listarmanna en The Beach Boys, Johnny Cash, Roseanne Cash, Eric Clapton, Elvis Costello, Ry Cooder, Jerry Garcia, Robert Cray, John Fogerty, John Hiatt, John Wesley Harding, George Harrison, John Lee Hooker, Mick Jagger, Booker T. Jones, Patti Labelle, Huey Lewis, Nick Lowe, Steve Miller, Van Morrison, Aaron Neville, Roy Orbison, Steve Perry, Bonnie Raitt, Joey Ramone, Keith Richards, Todd Rundgren, Carlos Santana, Boz Scaggs, Ringo Starr, Barbra Streisand, Brian Wilson og Neil Young. Allir hafa þessir listamenn unnið að upptökunum í þessu sama hljóðveri og Mathew oftar en ekki komið að hljóðfæraleik þegar honum hefur þótt ástæða til.
MATRÖÐ Í FANGAKLEFANUM HANS ALCAPONE
Ingi segir að Mathews sé uppátækjasamur með afbrigðum. Sem dæmi um það nefnir hann þá hugmynd hans að taka eitt lagið upp í hinu sögufræga fangelsi á eyjunni Alcatraz úti fyrir San Francisco. Þangað var farið með allar græjur og eitt lagið tekið upp í klefanum sem á sínum tíma hýsti þann alræmda mafíós Al Capone. Lagið snýst um martraðir og því fannst upptökustjóranum sjálfsagt að leita á viðeigandi slóðir til að hljóðrita það.
Í DREIFINGU Í BANDARÍKJUNUM OG BRETLANDI
Það verður spennandi að fylgjast með gangi disksins í Bandaríkjunum, en Mathews hefur fengið rétta aðila til að annast þar dreifingu. Segir Ingi hann hafa mikinn metnað til að koma diskinum í kynningu vestanhafs. Sjálfur hefur Ingi svo fengið breskan umboðsmann, sem hann kynnist í London, til að annast kynningu og dreifingu í Bretlandi og víðar í Evrópu.
Þú kest á heimasíðu Inga með því að SMELLA HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.