Hlustaðu á Impossible. Til að hlýða á söng Karenar smellir þú HÉR
Smella hér til að hlýða á 29 lög Karenar á You Tube
Stúdíóupptaka á laginu In The Future neðst á síðunni
SAMÚEL kynnti Karen Pálsdóttur í nóvember 2008 undir fyrirsögninni "Nú mega Torrini og Lay Lowe fara að vara sig.". Samúel stendur enn keikur við þau orð þrátt fyrir þá erfiðleika sem Karen átti við að glíma í beinni sjónvarpsútsendingu á undankeppni Eurovision. Þá léku mistök tæknimanna sjónvarpsins söngkonuna grátt, en eins og fram hefur komið í fréttum var playback of lágt stillt þegar Karen hóf upp raust sína. Hlýddu á stúdíóupptöku á laginu með því að smella á vídeóið hér neðst á síðunni og smelltu líka á linkinn sem vísað er á hér efst á síðunni. Þá skilur þú hvers vegna höfundar lagsins áræddu að fá þessa ungu stúlku til að flytja lag þeirra In The Future. Við eigum eftir að heyra mikið í Karen Pálsdóttur í framtíði nni. Samúel er sannfærður um það. Hér á eftir fer grein samúels frá því 2008 óbreytt.
SAMÚEL telur sig hafa fundið næstu súpersöngkonu Íslands, sem á eftir að veita Lay Low og Emilíönu Torrini harða samkeppni fyrr en varir. Hún heitir Karen, er aðeins 15 ára gömul og stundar nám við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Sá skóli hefur í áratugi getað státað af einhverjum besta skólakór landsins. En Karen hefur aldrei sungið með kór. Hún syngur sóló.
“Ég hef alltaf haft gaman af að syngja og þegar ég var orðin tólf ára fór ég eina önn í söngskóla Þorvaldar Bjarna. Síðan hef ég verið í söngskóla Maríu Bjarkar og verið í einkatímum hjá Regínu Ósk,” segir Karen og hrósar Eurovision dívunni í hástert. ”Mér finnst alltaf jafn gaman að mæta í tíma hjá Regínu. Hún hefur kennt mér mjög mikið og er frábær kennari. Bæði þægileg og skemmtileg. Okkur gengur vel að vinna saman. Svo er bara aðalatriðið að hafa gaman af því sem verið er að æfa, og það hef ég.”
ÁHUGASAMIR UMBOÐSMENN HAFI HRAÐANN Á
Foreldrar Karenar heita Auður Sólmundsdóttir og Páll Róbertsson. Hvorugt þeirra hefur lagt stund á söng eða hljóðfæraleik. Karen segist hins vegar hafa mesta löngun til að gera dægurlagasöng að framtíðarstarfi sínu sé þess kostur.
Til vara gæti Karen hugsað sér að læra snyrtifræði.
Þegar Karen er spurð að því hverjar séu hennar eftirlætis söngkonur kemur ekki á óvart að þar komi nafn dívunnar fyrst upp. Síðan nefnir hún Beyonce og Christinu Aguilera.
SÖNGDÍVAN Í BAKRÖDDUM HJÁ KAREN
Samúel heyrði fyrst í Karen með því að fara inn á My Space síðuna hennar þar sem hún er með spilara þar sem hægt er að heyra hana syngja nokkur lög eftir sjálfa sig og aðra. Lögin setti hún inn í fyrravor og hafa nú hátt í 50 þúsund manns hlýtt á sönginn. Fínar hljóðritanir og undravert að þar skuli hafa verið um íslenska heimilisiðnað að ræða.
Þegar Samúel hafði uppi á henni var hún aftur á móti komin í almennilegt hljóð- ver með Regínu Ósk og hljóðupptökustjórinn var heldur ekki af verri endanum, nefnilega Örlygur Smári, sem á m.a. heiðurinn af laginu sem Eurobandið flutti svo eftirminnilega í Ukraníu í vor. Karen var að hljóðrita frumsamið danslag og söngkennarinn hennar taldi það ekki eftir sér að vera í bakröddum. Ekki amalegt.
KAREN KEMST ÞANGA ETH; SEM HÚN ÆTLAR SÉR
“Karen er rosalega samviskusöm og dugleg að æfa sig,” segir Regína. “Hún hugsar um sönginn dag og nótt og það segir mér að hún er með ástríðu fyrir þessu, sem er algerlega málið í þessum bransa. Ég hef vitað frá fyrstu söngtím- unum að hún ætlar sér langt. Svona hæfileikarík og áhugasöm mun hún komast þangað sem hún ætlar sér.”Nýja lagið fer sennilega ekki í spilun fyrr en eftir áramót. En þangað til má hlýða á söng Karenar á My Space eins og áður segir. “Ég og vinur minn, Óskar Axel, höfum verið að gera tónlist saman í tæp tvö ár. Hann rappar og ég syng. Við höfum komið fram við ýmis tækifæri eins og á 17.júni og Landsmóti hestamanna. Svo tókum við þátt í Músíktilraunum núna í vor, ásamt vini okkar Daniel Alvin. Við komumst í annað sæti.”
HÉR HEYRIR ÞÚ SÖNG KARENAR
Rétt er að benda á, að á You Tube er að finna upptöku frá þessum flutningi þeirra. Kannski ekki sérlega fagmannlega unnin en viljir þú líta á myndbandið smellir þú HÉR
Betri upptöku á laginu Unglingar, og fleiri lögum Karenar, má heyra á My Space síðu hennar með því að smella HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.