Tónlist | Dægurlög | 21. nóv 2008 18:37

JOPLIN: ÉG HEFÐI RIÐIÐ HVERJU SEM VAR

Gagnrýnendur eru ekki alltaf á sama máli og áhorfendur. Þannig er því farið með söng- skemmtunina sem Ólafur Haukur Símonar son setti saman um lífshlaup söng- konunnar Janis Lyn Joplin. Gagnrýnendur voru fæstir ánægðir en áhorfendur flykktust á sýninguna og voru hinir ánægðustu.

Joplin, smábæjarstúlka á unglingsaldri.
Janis Lyn Joplin fæddist 19. janúar 1943 inn í borgaralega fjölskyldu í smábænum Porth Arthur í Texas og þurfti frá unga aldri að þjást fyrir að fara ótroðnar slóðir.

 

Joplin fór mörgum fögrum orðum um föður sinn sem hún sagði hafa verið afar bók- hneigðan. "Hann var hugsandi maður sem fylgdist vel með og gaf sér góðan tíma til að spjalla við mig um lífið og tilveruna." Joplin var listhneigð og þótti gaman að lesa og mála en skólasystkini hennar báru enga virðingu fyrir slíkri iðju. Þegar þar við bættist að hún var feit og með slæma húð, þótti upplagt að veita henni gælunafnið Svínsfés.

 

ÓFRÍÐASTI NEMANDINN

Í menntaskóla var hún kjörin ófríðasti nemandi skólans. Hún fór þá þá í varnastöðu það sem eftir var ævinnar - stöðu drykkfelldrar, skemmtanasjúkrar breddu.

   Hún gekk í rokkbandið Big Brother and the Holding Campany, sem söngkona. Vinsældir plötunnar Cheap Thrills og fyrsta popphátíðin í Monterey ýttu Joplin fram í sviðsljósið. Lagið Piece of My Hearth kom fyrst á smáskífu og náði upp í fyrsta sæti Billboard-listans á aðeins átta vikum. Björninn var unninn.

 

HRIKALEGA MIKIL VÍMUEFNANEYSLA

Joplin notaði áfengi og eiturlyf daglega og þröngvaði framleiðendum Southern Comfort til að gefa sér pels fyrir allar auglýsingarnar sem hún veitti þeim, en hún sturtaði gjarnan í sig úr flöskunum frá þeim fyrir framan tónleikagesti. Hún var líka alltaf vel birg af heróíni, amfetamíni og fleiri slíkum efnum. Í byrjun ársins 1969 er hún sögð hafa verið farin að nota heróín fyrir um 200 dollara á dag. Til að hún kæmist í gegnum upptökur fyrir aðra plötu sína tók upptökustjórinn það til bragðs að hýsa hana heima hjá sér til að geta hafa haft á henni gætur og halda henni að mestu frá vímuefnum.

 

LIFI EKKI TIL ÞRÍTUGS .. .

Þegar vinir söngkonunnar grátbáðu hana að hætta að nota sterfk efni svaraði hún: "Horfist í augu við það, að ég lifi ekki til þrítugs." Hún var að taka upp þriðju plötu sína, Pearl, 4. október 1970 þegar hún sprautaði sig með mjög stórum skammti af óvenju hreinu heróíni á Landmark hótelinu í Hollywood. Einn liðsmanna hljómsveitar hennar fann hana næsta morgun dauða af of stórum skammti. Hún var þá aðeins á 28. aldursári.

 

REYNDI AÐ SELJA SIG FYRIR FIMM DOLLARA

Söngkonan var ófeimin. Stríplaðist um innan um vinina og kom ósjaldan nakin til dyra ..
Janis fór til San Francisco 18 ára og flutti inn til manns sem fleygði henni út þegar hann var orðinn þreyttur á henni. Hún reyndi að selja sig á fimm dollara og var niðurbrotin þegar tilvonandi viðskiptavinirnir ýmist hlógu að henni eða virtu hana ekki viðlits sem mannveru. Hún sagði sjálf um þetta tímabili: "Ég hefði riðið hverju sem var, tekið hvað sem var ... ég gerði það. Ég tók það, saug það, sleikti það, reykti það, sprautaði því, varð ástfangin af því ..."

 

VILDI 16 TIL 17 ÁRA SÆTA STRÁKA

Joplin var gagnkynhneigð en hafði ánægju af kynlífi með konum og átti það til að fara í þríhyrning með vinkonum sínum og mönnum sem hún pikkaði upp af götunni. Aðallega sóttist hún eftir 16 til 17 ára sætum strákum. Hún lét oft hafa eftir sér að hún væri of ljót til að laða að sér karlmenn og heyrðist segja: "Ég er stórstjarna en fæ engan til að ríða mér."

   Þessi friðelskandi Steingeit sagði einhverju sinni eftir tónleika: "Þarna stend ég á sviðinu og á í ástarsambandi við 25 þúsund manns. Svo fer ég alein heim."

   Reyndar fékk hún marga til að ríða sér, en stríðnin úr skóla sat svo í henni að hún átti erfitt með að skynja þau áhrif sem hún hafði á karlmenn. Hún skelfdist höfnun svo mjög að hún gerði sér oft upp fullnægingu vegna þeirrar meinloku að það væri hennar sök ef hún fengi hana ekki."

 

"Ég syng graðhestarokk," sagði Joplin.
HEIMSFRÆGIR REKKJUNAUTAR

Til er listi yfir rekkjunauta söngkonunnar og þar er að finna m.a. Dick Cavett, Eric Clapton, Leonard Choen, Jimi Hendrix og Jim Morrison.

   Joplin gerði greinarmun á kynlífi til afþreyingar og ástarsamböndum og íhugaði m.a. að giftast einum elskhuga sinna. Hún átti í sambandi við söngvarann Country Joe McDonald, sem kvað hana laglega og afar kvenlega.

   Hún var líka ástfangin af sveitasöngv- aranum Kris Kristoferson sem samdi fyrir hana lagið Me and Bobby McGee sem er að finna á síðustu plötu hennar. Lagið varð annað frægasta lag plötunnar, en hitt er Mercedez Benz eftir hana sjálfa við texta eftir Michael McClure og Bob Neuwirth, en lagið syngur hún án undirleiks.

 

MEÐAL MERKUSTU LISTAMANNA ALLRA TÍMA

"Ég syng enga byltingarsöngva," sagði Joplin. "Ég syng graðhestarokk." Hún naut þess greinilega að syngja. "Þegar ég syng líður mér eins og ég sé að njóta ásta í fyrsta skipti," útskýrði hún. "Það er í rauninni meira fullæjandi en kynlíf. Ég kemst í sama ástand og þegar fólk kynnist loks raunverulegri ást, þegar það hreyfir almenni- lega við einhverjum í fyrsta skipti. En á sviðinu er þetta enn rosalegra, þegar ég finn að ég næ til áheyrendafjöldans. Þá fer um mig unaðshrollur."

   Janis Joplin var skapandi snillingur sem tókst að sanna sig á skammri stundu. En það var þó ekki fyrr en aldarfjórðungi síðar sem hún var tekin inn í Frægðarhöll rokksins. Hún heldur enn þriðja sætinu á lista VH1 tónlistarstöðvarinnar yfir 100 stórkostlegustu söngkonur rokksins og árið 2004 setti tímaritið Rolling Stone hana í 46 sæti listans yfir Merkustu listamenn allra tíma.

 

Hér fyrir neðan sést Janis Joplin syngja lagið Piece Of My Heart.

 

TIL BAKA

HEIMSMYND 2009

350 tilvísanir á spennandi efni

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.

TÓNLEIKAR

STÓRSTJARNA

Ferill Elvis Costello  spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.  

HEIMSMYND

Vissir þú þetta?

Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.

RONNIE WOOD

LISTMÁLARINN: Sjáðu myndirnar

Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.

KNATTSPYRNAN

Gana á heimsmet í mannskæðum boltaóeirðum ...

Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.

KNATTSPYRNA

Tíu glæsilegustu mörk Gerrards ...

Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu nýtt vídeó með tíu glæsilegustu mörkum Steven Gerrards fyrirliða Liverpool F.C..

Í VÍNBÚÐUNUM

Gosbjór vinsæll

Þegar skilaboðin eru "Bring your own boos" er heppilegt að geta kippt með sér 2-4 gosbjórum, eða hvað það nú er sem þú getur hugsað þér að innbyrða í teitinu. Hvað þá að geta tekið með sér Mojito eða aðra uppáhalds kokkteila klára á gosflöskum. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um vnsæla gosbjóra.

SAM-PÍURNAR

Bossinn, brjóstin og söngferillinn

Samúel tínir til myndir úr fjöl- miðlum af stúlkunum þremur sem komust í þrjú efstu sæti samkeppninnar. Smelltu á myndina og síðan fyrirsögnina.

LJÓSMYNDIR

SNILLDARVERK

Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.

Afmæli 21. september

Moynahan flottust

Bridget Moynahan er flottasta afmælisbarnið 21. september  að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina.

Afmæli 22. september

Nick Cave 53 ára

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá nöfn þekktra einsaklinga sem eiga afmæli 22. september.

AFMÆLI 25. ÁGÚST

Búinn að fá nóg af samkvæmislífi

Mönnum brá í brún þegar skoski leikarinn Sean Connery afboðaði óvænt komu sína á árlegt hóf sem ber nafnið Dressed til Kilt þar sem karlar mæta í skotapilsum. Connery hafði verið auglýstur sem sérstakur heiðursgestur. Strax var leitt að því getum, að heilsa Bond leikarans gamla væri farin að gefa sig (hann varð 81 árs 25. ágúst). Ástæðan reyndist þvert á móti vera sú að hann langaði meira til að fara og spila golf á Bahama. Hann hefur nú gefið það út, að hann nenni ekki lengur að sitja heilu kvöldin í samkvæmum fína fólksins. Smelltu á fyrirsögnina.

Afmæli 20. september

Háttaði fyrir Pirelli

Sophia Loren er orðin 77 ára. Hún hefur elst vel og pósaði fyrir dagatal Pirelli fyrir aðeins fjórum árum. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLI 20. ÁGÚST

Ekki á flæðiskeri

Robert Plant er orðinn 63 ára en hefur ekkert dregið úr tónleika- haldi. Hann neitaði að taka þátt í að endurvekja Led Zeppelin til að geta sungið sem mest með söngkonunni Alison Krauss. Árið 2009 hlutu þau fimm Grammy-verðlaun fyrir plötu þar sem þau sungu saman. Plant græðir á tá og fingri, en eignir hans eru metnar á jafnvirði 15 milljarða íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra 100 laga syrpu með Led Zeppelin og aðra 100 laga syrpu með samantekt á því besta með Plant.

AFMÆLI 16. ÁGÚST

Yfir 300 milljónir platna seldar ...

Madonna varð 53 ára á þriðju- daginn. Hún hefur selt meira en 300 milljónir platna. Smelltu á fyrir- sögnina til að tengjast 100 laga syrpu með drottninguna.

Afmæli 18. september

50 ára smellur ...

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfir afmælisbörn sunnudagsins og heyra hálfrar aldar gamlan smell með einu afmælisbarnanna.

AFMÆLISBÖRN

Flott afmælisteiti!

Vinurinn Matthew Perry fagnaði afmæli á fimmtudag, en hann fæddist hálfum mánuði eftir að Samúel hóf göngu sína árið 1969. Daginn áður áttu tveir aðrir vinsælir leikarar afmæli, þeir Edward Norton og Christian Slater, báðir fæddir 1969. Það væri ekki lélegt teiti þar sem Samúel og þessir vinsælu leikarar Samfögnuðu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá nafnalistann.

AFMÆLI 17. ÁGÚST

TVEIR STÓRIR

Tveir af allra vinsælustu Hollywood leikurunum áttu afmæli 17. ágúst. Sama dag fögnuðu tveir þekktir Reykjavíkur leikarar afmælum. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLI 15. ÁGÚST

Skálað í koníaki

Síðastliðinn mánudag voru liðin 242 ár frá fæðingu Napolenos Bonaperte herforingja í Frönsku byltingunni. Ekki ólíklegt að einhverjir hafi notað það tækifæri til að skála í koníaki. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLI 14. ÁGÚST

Ekki eina fallega afmælisbarnið ...

Hin fagra Halle Berry varð 43 ára á sunnudaginn. Hún var hreint ekki sú eina fallega á lista Samúels yfir afmælisbörn þann daginn ...

AFMÆLI 12. ÁGÚST

Fyrirsæta Íslands

Ásdís Rán, ókrýnd fyrirsæta Íslands, varð 32 ára 12. ágúst. Smellt á fyrirsögnina til að sjá myndasyrpur af henni.

TÓNLISTARVÍDEÓ

Sjö lagasyrpur ...

Ian Anderson, aðal sprautan í Jethro Tull, varð 64 ára í gær og trommuleikari INXS 50 ára. Fimm aðra tónlistarmenn er að finna í afmælisdagabók okkar, það eru Eddie Fischer, Michael Bivins í New Edition og Bell Biv Deveo, söngkonunarnar Patti Austin og Neneh Cherry og loks Bobby Hatfield, sem söng Unchained Melody. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á lagasyrpur með þeim öllum.

AFMÆLI 3. ÁGÚST

Foringinn 48 ára

Gítarleikarinn, söngvarinn og aðal sprautan í Metallicu varð 48 ára í gær. Metallica spókaði sig á sviði Egilshallar eigi alls fyrir löngu. Bandið verður þrítugt á þessu ári og hefur selt meira en 100 milljónir platna. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á 100 laga syrpu með Metallicu.

AFMÆLI 8. ÁGÚST

Ósk lang flottust

Ósk Norfjörð er lang  flottasta afmælisbarn mánudagsins að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá listann.

AFMÆLI 7. ÁGÚST

Íslandsvinkonan

Hin nýbakaða Íslandsvinkona Charlie Theron er fallegasta afmælisbarn sunnudagsins að mati Samúels. En nokkrar í viðbót komu sterklega til greina. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLI 3. ÁGÚST

FYRR OG SÍÐAR

Martin Sheen komst í gær á áttræðisaldur. Til vinstri er mynd af honum er hann hóf ferilinn. Synir hans, leikararnir Charlie Sheen og Emilio og Ramón Estevez eru afar líkir honum eins og hann leit út á yngri árum. Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLI 1. ÁGÚST

Afmæli 1. ágúst

Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfir fólk úr röðum hinna fallegu og frægu sem áttu afmæli í fyrradag.

AFMÆLI 28. JÚLÍ

Birgitta flottust

Birgitta Haukdal verður hiklaust að teljast fallegasta afmælisbarn fimmtudagsins. Ljósm.: ÞJM Smelltu á fyrirsögnina.

AFMÆLI 24. JÚLÍ

Falleg jafnaldra

Móðir Jennifer Lopez fór á fæðingardeiildina til að eiga stúlkukindinaa daginn sem fyrsta tölublað Samúels rann af stað í prentvélunum. Samúel finnst Lopez ótvírætt vera fallegasti jafnaldri sinn. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá meira.

MYNDLIST

Óvenjuleg aðferð við myndsköpun

Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.

AFMÆLI 31. JÚLÍ

Teiti í tugthúsinu?

Veslings Snipes komst á sex- tugsaldurinn í gær. Spurning hvort honum hafi gefist tækifæri til að fagna afmælinu, en hann er kominn skammt á veg með að afplána þriggja ára fangelsisvist vegna skattaskulda. Smelltu á fyrirsögnina.

TÓNLISTARVÍDEÓ

Í fyrstu tónleika- ferðina tólf ára

Færeyska söngkonan og laga- höfundurinn Eyvør Pálsdóttir er 28 ára. Tólf ára gömul fór hún í söngferðalag með færeyskum karlakór og þrettán ára kom hún fyrst fram sem sólóisti. Smelltu á fyrirsögnina.

TÓNLISTARVÍDEÓ

Tónlistarflytjendur í stórum stíl ...

Tónlistarmenn voru áberandi á lista Samúels yfir afmælisbörn miðvikudags  eins og svo oft áður. Samúel er með tengla inn á lagasyrpur með þeim öllum. Smelltu á fyrirsögnina og þú kemst í snertingu við tengla inn á vídeó með Santana, Pearl Jam, Chris Cornell, Simple Minds, Mark-Almond, Kim Carnes, T G Sheppard, John Lodge, Jo Ann Campbell og The Moody Blues. 

AFMÆLI 14. JÚLÍ

Orðinn fimmtugur

Samúel heldur því ekki fram að leikarinn Jack Earle Haley sé fallegasta afmælisbarn föstu- dagsins og enn síður Freddy Krueger (sem hann leikur), en Stanton er óneitanlega góður leikari. Smelltu á fyrirsögnina.

TÓNLISTARVÍDEÓ

Ian Paice öflugur

Trommuleikarinn Ian Paice (63) hefur spilað með Deep Purple og Whitesnake sem báðar hafa komið hingað til lands. Einnig hefur hann spilað með Paul McCartney, Garry Moore og The Velvet Underground svo aðeins fáeinir séu nefndir. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á hann með sönnum snillingum.

AFMÆLI 29. JÚNÍ

Tvö afmælisteiti

Hin önnum kafna söngkona Nicole Scherzinger mætti í tvö afmælisteiti í Las Vegas sem haldin voru henni til heiðurs. Bæði sama daginn og tveimur dögum áður en hún átti afmæli. Hún þurfti að vera sest í sæti dómara við hlið Símonar Cowell og Paulu Abdol í X-Factor í gær. Smelltu á fyrirsögnina og heyrðu það nýjasta með Nicole og slatta af lögum þar sem hún syngur með Pussycat Dolls.

AFMÆLI 22. JÚNÍ

100 laga syrpa með CyndiLauper

Cyndi Lauper heillaði íslenska áhorfendur í Hörpu nýverið. Smelltu á fyrsögnina til að rifja upp 100 lög með þessum nýja Íslandsvini.

AFMÆLI 21. JÚNÍ

Ný frá Ray Davies

Íslandsvinurinn Ray Davies úr Kinks er á stöðugum hljóm- leikaferðlaögum en hann kemst á eftirlaunaaldur í dag, 21. júní. Hann vinnur að nýrri plöu í stúdíói sem Kinks gerðu til einkonota fyrir 40 árum. Sjáðu glænýja upptöku frá vinnslu plötunnar í stúdíóinu.

AFMÆLI 18. JÚNÍ

When I get older

When I'm 64, söng McCartney með Bítlunum. Síðan eru liðin 44 ár og hann vantar aðeins eitt ár í sjötugt. Lifið brosir samt við honum - vel hærðum með nýja kærustu. Smelltu á fyrirsögnina og komdu þér í tengsl við 100 laga syrpu með stráknum.

AFMÆLI 13. JÚNÍ

Þær eru ríkastar

Yngstu einstaklingarnir sem hafa orðið milljarðamæringar í dollurum talið af eigin rammleik. Smelltu á fyrirsögnina til sjá meira.

TÓNLISTARVÍDEÓ

Vídeó hneykslar

Kanye West fær rapparann Jay-Z til liðs við sig í vídeói við nýjasta lag sitt, Monster. Auk þess er puntað upp á það með nokkrum hvítum fyrirsætum sem virðast steindauðar. Það fer fyrir brjósið á mörgum. Smelltu á fyrirsögnina og dæmdu sjálfur, lesandi góður!

TÓNLIST

Tom Jones 71. árs og sprellfjörugur

Þegar Sir. Tom Jones var fenginn til Íslands fyrir rúmum 20 árum þótti mönnum sem nú færi að verða síðasti séns að sjá karlinn á sviði. Hann er 71 árs og fyllir tónleikasali í Las Vegas þegar honum sýnist og nýjasta platan hans er tekin upp við undirleik rokkhljómsveitar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann flytja lag af nýju plötunni og 100 lög til viðbótar.

AFMÆLI 24. MAÍ

Dylan sjötugur

Dylan varð sjötugur 24. maí. Smelltu á fyrirsögnina. Samúel rifjar upp lagið sem færði Dylan Óskarinn og Gullna hnöttinn á aldamótaárinu.

AFMÆLI 1. JÚNÍ

Væri orðin 91 árs

Marilyn Monroe hefði orðið 91 árs 1. júní, en hún lést af of stórum skammti svefnlyfja árið 1962 aðeins 36 ára gömul. Smelltu á fyrirsögnina.

KYNÞOKKI

Flott fyrirsæta

Janessa Brasil er fyrirtaks ljós- myndafyrirsæta. Smelltu á fyrirsögnina til að ganga úr skugga um það hvort þú sért ekki sammála.

TÓNLISTARVÍDEÓ

Paul Simon með sína tólftu plötu

Paul Simon var að hefja sinn frægðarferil um það leiti sem Samúel hóf göngu sína fyrir liðlega 40 árum. Nú er hann að senda frá sér sitt 12. albúm. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann flytja eitt laganna. 

BLUES

Vinur Dóra allur

Texas blúsarinn Pinetop Perkins er látinn, 97 ára að aldri. Hann spilaði um tíma með Blue Ice Band (Vinum Dóra), í Chicago fyrir miðjan tíunda áratuginn og lék með þeim hér á landi. Hann sagði sjálfur að plata sem hann gaf út með Dóra og félögum væri hans besta. Þegar hann spilaði á blúshátíð í Reykjavík 2009 sæmdi Blúsfélagið hann með heiðursfélagaorðu. Perkins var margverðlaunaður. Í síðasta mánuði tók hann við sínum síðustu verðlaunum, Grammy. Smelltu á fyrirsögnina.

HEIMSMYND Í APRÍL

10 bestu '60 lögin

Tímaritið Rolling Stone dregur fram tíu bestu dægurlög sjötta áratugarins. Smelltu á fyrir-sögnina til að sjá og heyra.

KVIKMYNDIR

Uppreisn apanna

Síðla sumars verður frumsýnd ný mynd um apa. Er fastlega gert ráð fyrir að hún eigi eftir að njóta sömu vinsælda og myndirnar um apaplánetuna hér á árum áður. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fyrsta úrdráttinn úr  Rise of the Planet of the Ape.

RONALDO

Á nærbrókinni og syngjandi Amor

Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu þrjú vídó (neðst á síðunni) með knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo syngja rómantískt lag og spóka sig á nærbrókinni. Allt fyrir Armani.

Samúel á Pressunni

KLÍKA ÞORGEIRS

Samúel kannaði fyrir Pressuna hvað varð af stelpunum tveimur sem hölluðu sér upp að barnum með Þorgeiri Ástvalds fyrir 30 árum og sungu um fjólublátt ljós. Smelltu á fyrirsögnina.

HÍBÝLI

Heimili íslenskra arkitekta í USA hlýtur verðlaun

Arkitektarnir Tryggvi og Erla Dögg hafa rekið arkitektastofur í Kaliforníu og Luxembourg. Húsið sem þau sjálf byggðu yfir sig og börnin í Santa Monica hlaut viðurkenningu tímaritsins Interior Design 2010 sem útsjónarsam- asta hönnun ársins 2010. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndir frá heimili þeirra og einnig myndir af húsi sem þau hönnuðu fyrir kvikmyndagerðarmann í Hollywood. Mynd: David Lena.

TÖLVULEIKIR

Franz um 15 leiki

Franz Gunnarsson hefur prófað fimmtántölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um þá og sjá vídeókynningar.

LEIÐBEININGAR

DAÐURSDRÁP

Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.

VÍDEÓ

Bannaðar sjón- varpsauglýsingar!

Í tilefni af því að hérlendis voru veitt í vikunni verðlaun fyrir bæði bestu og verstu auglýsingarnar í íslensku sjónvarpi skellti Samúel inn tilvísunum á nokkrar auglýs- ingar sem bannað er að sýna í sjónvarpi erlendis. Smelltu á fyrirsögnina  og njóttu!