Lagið I'm Free samdi Pete Townshend , gítarleikari hljómsveitarinnar Who og forsprakki hennar. Lagið var hluti af stærra verki, rokk-óperunni Tommy. Sögupersónan Tommy öðlast frelsi á ný þegar móðir hans brýtur spegil sem hefur fangað piltinn. Hann hafði aðeins getað horft á eigin spegilmynd og annað ekki.
Townshend naut dyggrar aðstoðar Kit Lamberts, umboðsmanns hljómsveitarinnar, við að koma Tommy á koppinn. Faðir umbans var nefnilega þaulkunnugur söngleikjaforminu og voru feðgarnir duglegir við að kvetja gítarleikarann til að gera Tommy að óperu en láta ekki tveggja platna albúm nægja.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
Tommy fór á svið 1969 og I'm Free fór á toppinn, en nokkur lög óperunnar til viðbótar hljómuðu mikið og víða, eins og Pinball Wizard og Tommy Can You Hear Me? Tommy gat að lokum státað af Tony-verðlaununum ásamt mörgum fleiri viðurkenningum.
KEN RUSSEL GERÐI KVIKMYND
Árið 1975 gerði Ken Russell skrambi góða kvikmynd sem byggðist á óperunni. Í aðalhlutverkum voru þau Oliver Reed og Ann-Margret, en í hlutverki Tommy varRoger Daltrey, söngvari Who. Elton John átti líka eftirminnilega framkomu í kvikmyndinni eins og sjá má HÉR
SVIÐSETNINGAR VÍÐA UNDIR ALDAMÓTIN
Með árunum var Tommy sviðsettur hér og hvar, m.a. í San Diego í Kaliforníu árið 1992 og ári síðar á Broadway. Tommy var sýndur á nýjan leik á West End í London 1995 og sama ár var hann frumsýndur í Hollandi og í Toronto í Kanada. Sýningar stóðu samfleytt í þrjú ár í Toronto, en hollenska sýningin fór hins vegar um alla Evrópu.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.