Lagið My Way á uppruna sinn að rekja til franska lagsins Comme D'habitude (ísl.: Eins og venjulega) eftir Claude Francois. Franska útgáfan segir frá manni sem er að skilja, ástin dagaði uppi í ömurleika hversdagslífsins. Til að heyra og sjá höfundinn flytja lagið smellir þú HÉR
Söngvarinn Paul Anka uppgötvaði lagið á tónleikaferð um Frakkland, umskrifaði það og gaf því nafnið My Way. Í hans útgáfu segir textinn frá manni sem lítur sáttur yfir farinn veg, Paul Anka gaukaði laginu að vini sínum Frank Sinatra sem snaraði því á plötu. Lagið varð síðan eins konar einkennislag Sinatra og hann komst ekki upp með annað en að syngja það á öllum sínum tónleikum upp frá því. Paul Anka söng það einnig á plötu, en hans flutningur féll gjörsamlega í skuggann.
SEX SINNUM Í EITTHVERT TOPPSÆTANNA TVÖ FYRSTU ÁRIN
Lagið hljómaði víða um veröld og í Bretlandi komst það sex sinnum í eitthvert toppsætanna á árunum 1970 til 1971. Enn í dag mun það eiga metið þar í landi fyrir langlegu á vinsældalistum. Ekki nóg með það, heldur fór breska söngkonan Dorothy Squires með lagið tvívegis inn á bresku listana í kjölfarið á Sinatra.
Elvis Presly tók svo lagið upp í lok síns ferils og gerði því góð skil. Eftir dauða kóngsins 1977 var hljómleikaútgáfu af flutningi hans á laginu smellt á plötu og komst hún í 22. sæti vinsældalista í Bandaríkjunum og enn hærra í Bretlandi, eða í níunda sæti.
JAFNVEL SUNGÐ AF SEX PISTOLS
Svo má ekki gleya því að breska punk-hljómsveitin Sex Pistol s hljóðritaði sína útgáfu af laginu tíu árum á eftir Sinatra. Lagið fór á breiðskífu þeirra The Great Rock 'N' Roll Swindle. Þá var söngvari hljómsveitarinnar dáinn. Lagið hljómaði undir kreditlista kvikmyndarinnar The Goodfellas.
"PABBA LEIDDIST LAGIÐ ..."
Árið 2000 kom Tina, dóttir Sinatra fram í þættinum Hardtalk á BBC og upplýsti að faðir hennar hafi aldrei verið sáttur við lagið. Þótt textinn lýsa full mikilli sjálfumgleði. En hann stóð uppi með það og gat ekki flúið vinsældir þess.
LAGIÐ Í FLUTNINGI FJÖGURRA Í VIÐBÓT
Viljir þú heyra Paul Anka syngja lagið og rekja sögu þess smellir þú HÉR Til viðbótar getur þú hlustað á Elvis Presley syngja lagið og sömuleiðis Robbie Williams Að lokum er gaman að heyra útgáfu spánverjanna í Gipsy Kings af lag- inu en þar heitir það Mi Manera. Samúel harmar að hafa ekki hljómleikaupptöku af Geir Ólafs að syngja þetta ódauðlega lag. En hér fyrir neðan sjáum við Frank Sinatra taka lagið á hljómleikum í Las Vegas og er það væntanlega aðdáendum Ólafssonar nokkur sárabót.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.