Stjarna söngvarans var komin hátt á loft er hann söng lagið inn á plötu. Árið áður hafði hann brillerað með lögunum Delilah, Help Yourself og Love Me Tonight og farið af stað með eigin sjónvarpsþátt undir nafninu This Is Tom Jones.
FYLLTI TÓNLEIKASALI Í LAS VEGAS 1969
Árið 1969 var hann kominn til Las Vegas þar sem hann troðfyllti sali kvöld eftir kvöld – og kvenmansnærbuxunum bókstaflega ringdi yfir hann. Út komu breiðskífur með söng hans í Vegas og sjónvarpi sem og safnplata auk nýrrar breiðskífu. Allar komust þessar plötur á topp tíu listana vestan hafs og austan. Smáskífurnar voru líka rifnar út. Voru orðnar 30 milljón talsins í lok ársins 1970.
HEFUR SELT YFIR 100 MILLJÓNIR PLATNA
Tom Jones var aðalaður af Englandsdrottningu fyrir tveimur árum en söngvar- inn er orðinn 68 ára gamall og hefur selt yfir 100 miljónir platna.
En Tom Jones er ekki hættur að syngja þó hann sé orðið löggilt gamalmenni. Aldeilis ekki. Hann var að senda frá sér nýja plötu sem ber nafnið 24 stundir. Þar er að finna lag sem heitir The Road og tileinkar hann það eiginkonu sinni, Lindu, með þakklæti fyrir rúmlega hálfrar aldar sambúð en þau giftust átta árum áður en hann hóf söngferil sinn. Plötunni var vel fagnað af áðdáendum söngvarans sem hafa þurft að bíða hálfan annan áratug eftir einhverju nýju frá goðinu. Til að sjá hann og heyra flytja vinsælasta lag nýju plötunnar (If He Should Ever Leave You) í BBC fyrr í vetur smellir þú HÉR
Þú getur séð Tom Jones syngja lagið I’ll Never Fall In Love Again í sjónvarpsþætti sínum 1969 með því að smell HÉR . En á skjánum hér fyrir neðan er öllu nýrri flutningur hans á laginu sívinsæla.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.