Þrátt fyrir að 68 kynslóðin hafi innleitt frjálslegra viðhorf til kynlífs og ásta en áður hafði tíðkast hrukku æði margir í kút þegar lagið Je t'aime... moi non plus tók að hljóma árið 1969. Lostafullur flutningur á dægurlögum var eitthvað alveg nýtt. Þar var að verki franski grallarinn og ólíkindatólið Serge Gainsbourg og spúsa hans, Jane Mallory Birkin, bresk leikkona sem þá var 22ja ára og nýlega flutt inn til hans. Lagið er eftir Gainsbourgh og sjálfur raular hann lagið með Birkin.
JANE BIRKIN ENN AÐ LEIK
Þó ekki hafi borist sérlega miklar fréttir af þeim skötuhjúum Birkin og Gainsbourgh um heimsbyggðina eftir að vinsældir lagsins dvínuðu er ekki þar með sagt að þau hafi verið sest á helgan stein. Öðru nær. Hann hafði notið mikillar athygli í sínu heimalandi fyrir dólgslega framkomu í útvarpi og sjónvarpi og samlandar hans fylgdust áfram vel með uppátækjum hans og keyptu plötur hans í stórum stíl. Lagið Je T'aime er af mörgum ekki endilega talið hans besta lag og er áhugasömum ráðlagt að slá upp Napster og ná í lög eins og Initals B.B, Manon, Ford Mustang og Bonnie & Clyde. Karlinn lést vorið 1991, þá 62ja ára að aldri.
AF Jane Birkin er það að segja, að hún hefur haldið áfram kvikmyndaleik og sást síðast í hlutverki Elektru í kvikmynd franska leikstjórans Philippe Calvari o árið 2006, en það ár varð Birkin 60 ára.
BÓLSENUR MEÐ ÞEIRRI FYRRVERANDI
Samúel á erfitt með að sjá snefil af kynþokka hjá Gainsbourgh en staðreyndin er sú, að hann naut mikillar kvenhylli og fór um með kynbombuna Brigitte Bardott upp á arminn lengi vel. Hafði upprunalega samið Je T'amie fyrir hana.Vel fór á með þeim Birkin og Bardott eins og sjá má á myndinni hér til vinstri en hún sýnir atriði úr frönsku kvikmyndinni Don Juan sem gerð var 1973.
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR OG JE T'AMIE
Að lokum vill Samúel draga fram myndband með henni Björk okkar þar sem hún bregður sér í bað á meðan lagið Je T'aime hljómar undir í upprunalegum flutningi. Er áhuginn vakinn? SMELLTU ÞÁ HÉR.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.