The Beatles hljóðrituðu lagið Get Back þann 27. janúar 1969. Það kom út á smáskífu þá um vorið og fór í fyrsta sæti vinsældalista í Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi, Spáni, Kanada, Þýskalandi, Mexíkó og Ástralíu. Á baklhliðinni var lagið Don’t Let Me Down.
Lagið er eftir Paul McCartney þó að það hafi verið merkt Lennon/McCartney að venju. Á smáskífunni var Billy Preston sömuleiðis eignaður hluti af heiðrinum, sem var einsdæmi, en þeir Bítlabræður deildu annars aldrei höfundanöfnum sínum með öðrum á plötum sínum. Lagið var hljóðritað um leið og lögin sem fóru á næst síðustu Bítlaplötuna, Abbey Road, en fór þó ekki á breiðskífu fyrr en árið eftir og þá sem lokalag LET IT BE.
Þess má geta að Get Back var fyrsta smáskífa Bítlanna sem var gefin út í steríói á Bandaríkjamarkaði.
LÖGREGLAN STÖÐVAÐI BÍTLATÓNLEIKA
Á myndbandinu hér fyrir neðan sjást The Beatles flytja m.a. lagið Get Back á þaki Apple-byggingarinnar við Savile Road 30. janúar 1969. Tónleikahaldið stóð ekki lengi yfir. Argir nágrannar kölluðu til lögreglu til að þagga niður í þessu bítlagargi sem pirraði þá og olli umferðaröngþveiti í þokkabót.
George Martin, upptökustjóri Bítlanna, endurhljóðblandaði lagið árið 2006 ásamt syni sínum Giles og er það á plötunni LOVE sem hefur að geyma fleiri perlur úr Bítlasafninu.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.