Vinsældalistar á vesturlöndum voru að ganga í gegnum mikið breytingarskeið árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Gömlu raulararnir Frank Sinatra, Glen Champell, Ray Stevens, Andy Williams, Sammy Davis jr. og Paul Anka áttu allir lög á viðurkenndum vinsældalistum á árinu.
ZEPPELIN OG PRESLEY MEÐ NÝ LÖG Á VINSÆLDALISTUNUM
En nýbakaðar rokkhljómsveitir voru að koma inn af miklum þunga. Led Zeppelin gaf út sína fyrstu breiðskífu í byrjun ársins og aðra áður en árið var allt. Rokkhljóm- sveitinar Canned Heat, Three Dog Night, Steppenwoolf, Blind Faith og Doors voru líka að hasla sér völl um þetta leiti svo einhverjir séu nefndir. Rokkkóngurinn Elvis Presley, sem ruddi rokkinu braut, var enn að framleiða smelli í röðum.
JAGGER HUGÐIST HÆTTA LÖNGU FYRIR FERTUGT
Bresku hjómsveitinar Beatles og Rolling Stones, sem höfðu ekki síður valdið byltingu í tónlistarheiminum, komu sömuleiðis hverju laginu á fætur öðru á topp vinsældalistanna á árinu. Þetta var raunar árið sem fyrrnefnda hljómsveitin hætti að koma fram opinberlega og hin síðarnefnda kvaðst búast við því að leggja upp í sína síðustu hljómleikaferð áður en langt um liði. Mick Jagger sagðist ekki geta hugsað til þess að vera að syngja lög eins og I Can’t Get No Satisfaction þegar hann væri að nálgast fertugt. Fjörutíu árum síðar má samt enn heyra hann syngja þetta lag á stærstu íþróttaleikvöngum - og er hann þó orðinn löggilt gamalmenni.
GÖMLU BRÝNIN FRÁ 1969 HEIMSÆKJA KLAKANN 2007 og 8
Á vinsældalistum fæðingarárs Samúels var einnig að finna lög með Bob Dylan, Paul Simon, Cliff Richard, John Fogerty og Eric Clapton (þá í Cream), en þeir hafa allir komið hingað til lands í eigin persónum nýverið og sýnt og sannað að þeir eru í fullu fjöri.
100 VINSÆLUSTU LÖG ÁRSINS 1969
Samúel rifjar upp 100 af vinsælustu erlendu lögum ársins 1969 og tínast þau inn á næstu dögum. Fylgstu með. Hér koma þau 20 fyrstu.
SMELLTU OG NJÓTTU - um leið og þú lest helstu upplýsingar um lögin.
AÐ LOKUM UPPÁHALDS LAG SAMÚELS FRÁ ÞESSUM TÍMA
Samúel getur ekki stillt sig um að smella hér fyrir neðan lagi sem Chip Taylor raulaði inn á hljómplötu um það leiti sem Samúel var að stíga sín fyrstu spor á tímaritamarkaði. Þið munið kannski betur eftir laginu í flutningi hljómsveitarinnar Brimkló frá 1977 við texta eftir Þorstein Eggertsson, einn þriggja ritstjóra Samúels í upphafi. Sautján árum síðar sungu þeir Bjöggi og Stebbi Hilmars lagið við sama texta og komu því alla leið á toppinn. Þá voru það þeir Máni Svavarsson og Ingólfur S. Guðjónsson sem hljóðrituðu þetta uppáhalds lag Samúels ...
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.