Hann gaf sjálfur út sinn fyrsta disk og lét pressa hann í 500 eintökum. Í dag, ellefu árum síðar, er eintakið af þeirri frumútgáfu selt á e-Bay fyrir jafnvirði 112 þúsunds íslenskra króna. Jamie Cullum kemur fram í Hörpunni í sumar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um söngvarann og heyra í honum.
Samúel tekur ofan fyrir Bergþóri Smára og fyrsta laginu sem hann hefur hleypt í spilun til kynningar á sínum fyrsta sólódiski, Mood. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra lagið Warm and Strong.
Samúel safnaði saman tenglum inn á djass í flutningi nokkurra af stórmeisturum djassins. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á almennilegan djass.
Söngkonan Cher, sem söng með honum Sonny hér um árið, er ekkert farin að slaka á þó hún sé omin á sjötugs aldur. Á síðustu þremur árum hefur hún komið fram á 200 íburðarmiklum tónleikum í Las Vegas auk þess sem hún hefur troðið upp á tónleikum víða um heim og leikið í kvikmyndinni Burlesque. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu upptöku með henni og Sonny frá árinu 1969, árinu sem Samúel hóf göngu sína.
Rod Stewart gleður aðdáendur sína með nýútkomnum diski, fimmta diskinum í seríunni The Great American Songbook. Sá heitir Fly Me To the Moon. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lagalistann og sjá fyrstu vídeó.
Magnaðir vinsældalistar árið '69, árið sem Samúel hóf göngu sína. Þá mátti sjá svo ólíka tónlistar- menn sem Presley og Zeppelin samtímis á lista sem og Sinatra, Beatles, Sammy Davis jr.,Who, Cream og Stones. Samúel rifjar upp vinsælustu lög þessa merka árs. SMELLTU, LESTU, SJÁÐU & HLUSTAÐU!
Enya er auðugasta söngkona Íra, en eignir hennar eru metnar á jafnvirði 20 milljarða króna enda hefur hún komið sér vel fyrir í kastala með alla kettina sína. Hún á eitt ár í fimmtugt. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á eitt fallegasta lag Enyu.
Blúsari blúsaranna, B.B.King, varð 85 ára í september, en hann er þó enn í fullu fjöri og ekki er langt síðan hann kom síðast fram. Smelltu á fyrirsögn til að fræðast um blúskónginn.
Neil Diamond var heiðraður sér- staklega á Grammy-verðlauna- hátíðinni fyrir framlag hans til dægurtónlistar. Karlinn, sem er sjötugur, fagnaði í fyrra hálfrar aldar söngafmæli og gaf um leið út nýja plötu sem hann gaf nafnið Home Before Dark og komst á toppinn. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaði á ný lög og rifjaðu líka upp þessi gömlu góðu.
Eric Burdon er með nýtt band á hljómleikaferð 64 ára gamall. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja The House of the Rising Sun með hljómsveitinni Animals. Mikið skárra en söngur hans í dag að mati Samúels.
Samúel dregur fram frétt RUV frá komu Led Zeppelin hingað til lands og fleira huggulegt með hljómsveitinni í tilefni af því að nú eru liðin 40 ár frá því að hún kom fram í Laugardalshöllinni. Hljóm- sveitin var þá árs gömul en hún var stofnuð árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Zeppelin er ólíkleg til að koma fram í bráð, en ekki er langt síðan Robert Plant kom hingað með hljómsveit sína og söng í Höllinni. Hann er núna að gera það gott með söngkonunni Alison Krauss og hlaut plata þeirra fimm Grammy-verðlaun í fyrra.
Engelbert Humperinck varð 74 ára i vor. Hann skákaði sjálfum Bítlunum með sínu fyrsta lagi árið 1967, en það seldist á smáskífu í metupplagi í Bretlandi það ár og komst í efsta sæti vinsældalista níu landa. Hann gerir út á lagið enn í dag og fyllir auðveldlega tónleikasali vestan hafs og austan. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp lagið Release Me. Eitt vinsælasta vangalag sjöunda áratugarins.
Vídeó sem sýnir rúmlega sex mínútna langa fréttafrásögn frá 1965 þar sem gerð er grein fyrir hljómleikum the Kinks í Reykja- vík. Ljúfustu æskuminningu Baldvins Jónssonar ...
Tony Mendelez langaði til að læra á gítar og lét það ekki aftra sér að hann var handalaus. Hann hefur spilað fimm sinnum fyrir páfann, gefið út hljómplötur og unnið til verðlauna og viður- kenninga fyrir flottan gítarleik - og magnaðan viljastyrk. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa sögu Mendelez og hlusta leik hans.
Hljómsveitin The Libertines hafði selt um 25 milljónir platna þegar hún var loks leyst upp. Fyrst og fremst sökum drykkju og dóp- neyslu Pete Doherty's. Trausti Laudfal rekur sögu hljómsveit- arinnar sem endurvakti gamla bílskúrsrokkið. Sorgarsaga um sanna frumkvöðla.
Það eru liðin rúm 40 ár síðan sú frétt fór sem eldur um sinu að bítillinn Paul McCartney væri dáinn. Sú saga lifir enn góðu lífi þrátt fyrir andmæli af hálu hins látna ...
Björn Thoroddsen átti níu gítara þegar Samúel tók viðtal við gítar- snillinginn fyrir 27 árum.Samúel heimsótti hann nýlega og komst að raun um að gítarsafnið er nú orðið helmingi stærra.
Eartha Kitt lést á öðrum degi jóla úr krabbameini. Aðeins fáeinum dögum áður en hún lést veitti hún viðtöku gullplötu ...
Áheyrendur kímdu og dómarar fylltust skelfingu, en á fyrstu tveimur sekúndunum sannfærð- ust milljónir áheyrenda um að hér væri stórtenór á ferðinni ...
Greinilegt er að Idol-söngvarinn vinsæli, homminn Clay Aiken, stefnir á Las Vegas þegar horft er á vídeó frá hljómleikum sem hann var að gefa út á mynddiski. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá og heyra. Á sömu síðu er myndband sem flytur þann boðskap, að ef hommar vilja giftast eigi að láta það eftir þeim. Þeir eigi ekki betra skilið ...
SIGI LAUF hefur sent frá sér sína fyrstu breiðslkífu. Hún hefur að geyma ellefu frumsamin lög sem öll eru sungin á íslensku. Siggi er flottur lagasmiður og söngvari og þegar með honum mættu í hljóðverið úrvals hljóðfæraleikarar var ekki að sökum að spyrja. Platan BARN SÍNS TÍMA er kröftug og fer vel á því að hækka vel í græjunum þegar hlýtt er á þá félaga. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra, sjá og lesa meira. Mynd: ÞJM
Gamli þungarokkarinn Guðlaugur Falk lauk nýverið hljóðtritun á frumsömdu lagi sem ber nafnið A Glimpse in Time. Það er sungið af Stefáni Jakobssyni en Diddú syngur bakrödd. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á þetta ljúfa lag.
Fjöldi heimsfrægra tónlistarmanna úr dægurlagageiranum var samankominn 14. mars á Waldorf Astoria-hótelinu í New York þegar þeir Tom Waits, Alice Cooper, Neil Diamond, Dr. John, Darlene Love, Jac Holzman, Art Rupe og Leon Russell voru teknir í Frægðarhöll rokksins. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndir tímaritsins Rolling Stone frá kvöldinu. Á myndinni hér fyrir ofan var tekin þegar Paul Simon baið Neil Diamond velkominn í Frægðarhöll rokksins.
Jónsi úr Sigur Rós tók við norrænu tónlistarverðlaununum (Nordic Music Price) fyrir sólóplötuna Go í Osló 18. febrúar síðastliðinn fyrir bestu norrænu plötu ársins. Ólöf Arnalds kom fram á verðlaunahátíðinni, en hún var tilnefnd til verðlauna fyrir plötu sína Innundir skinni. Hákon krónprins Noregs afhenti verðlaunin, en þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru veitt. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu Jónsa taka lagið Go Do af plötu ársins.
Kanadíska söngkonan Celene Dion er nú að koma sér fyrir í nýrri íbúð í Las Vegas sem var gerð sem líkust heimili hennar í Los Angeles. Í Vegas mun söngkonan búa að mestu næstu þrjú árin. En hún hefur samþykkt að koma fram á um 200 hljómleikum í glæsihótelinu Caesar's Place. Fyrstu tónleikarnir eru á dagskrá 15. mars. Celene Dion átti tvíbura fyrir um fjórum mánuðum, en það er ekki eins og henni hafi legið á að komast út á vinnumarkaðinn að nýju peninganna vegna. Hún er auðugasta söngkona heims. Smelltu á fyrirsögnina.
Hljómsveitin EAGLES kemur fram á tónleikum í Laugardalshöll 9. júní og efast Samúel ekki um að aðgöngumiðarnir renni greiðlega út. Hljómsveitin hóf ferilinn samtímis Samúel eða fyrir rétt rúmum 40 árum og hefur átt miklum vinsældum að fagna alla tíð. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá og heyra Eagles taka eitt af sínum þekktustu lögum á tónleikum í fyrra.
Hér sést Arcade Fire hampa Grammy verðlaununum fyrir besta albúm ársins. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fjóra tengla inn á efni frá Grammy hátíðinni. (Heimsmynd 14. febrúar.)
Joe Cocker er hinn sprækasti þó aðeins vanti nú hálft ár upp á að hann komist á ellilífeyri. Hann er að senda frá sér nýja plötu en hann sendi síðast frá sér plötu fyrir tveimur árum. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á Cocker syngja titillagið Hard Knocks í þýskum sjónvarpsþætti nýverið.
Tónlistarstöðin MTV tilkynnti í gær að Lady GaGa hafi verið valin kona ársins. Hún er svo sem búin að sprengja alla vinsældaskala á netinu og í umræðunni á árinu. Þá einkum fyrir furðulegan fatnað og undarlega hegðun. Hins vegar minnist Samúel þess ekki að hún hafi sent frá sér einn einasta geisladisk með nýju efni á árinu 2010. Smelltu á fyirsögnina til að lesa meira í Heimsmynd.
Þeir Steve Winwood og Eric Clapton stofnuðu súperbandið Blind Faith ásamt Ginger Baker og Ric Grace árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á þá Clapton og afmælisbarnið Winwood taka eitt af þeirra 40 ára gömlu lögum á hljómleikum fyrir aðeins þremur árum.
SAMÚEL tíndi til bestu lögin frá Woodstock. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu m.a. á Janis Joplin, Jimi Hendrix, Sly and the Family Stone, Joan Baze, Crosby, Stills og Nash, Santana, og The Who.
Það leika öll hljóðfæri í höndum tónlistarmannsins Lenny Kravitz og hann er jafn vígur á ólíkustu tegugundir tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á eitt af hans gömlu góðu lögum og sjáðu líka áhugavert vídeó sem tekið var í hljóðveri hans og sýnir hvernig hann græjar nýtt lag fullkomlega einn síns liðs.
Sveitasöngvarinn, lagasmið- urinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson nálgast áttræðisaldurinn óðfluga en undirbýr samt af sama áhuga og áður enn eina tónleikaferðina. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann taka lagið með Noruh Jones.
Afrísk-Ameríska R&B hljóm- sveitin Earth, Wind and Fire lætur engan bilbug á sér finna eftir liðlega 40 ára feril, en hljómsveitin kom fyrst fram árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Bandið er um þessar mundir á mikilli hljómleikaferð um Bandaríkin. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá og heyra lagið Boogie Wonderland.
Bandaríski píanóleikarinn og söngvarinn Billy Joel hefur náð því að verða þriðji söluhæsti sólótónlistamaður heims síðan hann sendi frá sér lagið Piano Man árið 1973. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja lagið Honesty.
Einn nánasti samstarfsmaður söngkonunnar Whitney Houston segir hana ekki eiga langt eftir ólifað að öllu óbreyttu. Hann segir hana hafa keypt kókaín fyrir jafnvirði einnar milljónar ísl. kr. við komuna til Kaupmannahafnar nýverið. Hún var píft niður af vonsviknum hljómleikagestum í Forum. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Donovan var á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Hann var að gefa út smáskífu á dögunum til að gefa mönnum forsmekkinn af stórri plötu sem er væntanleg í sumarbyrjun. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp öll eftirminnilegustu lög Donavans.
Á síðaswta ári voru liðin 40 ár síðan útgefendur Samúels fögnuðu því með teiti að upplag fyrsta tölublaðs Samúels var á þrotum. Þá sömu helgi var líka efnt til samkomu nærri Bethel í Bandaríkjunum. Þar kom saman heldur meiri mannfjöldi, eitthvað um hálf milljón manna taldist þeim til. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um Woodstock-hátíðina sem tímaritið Rolling Stone telur merkasta tónlistarviðburð rokksögunnar.
Ekki verður annað sagt en að fyrsti íslenski R&B diskurinn fari vel af stað og þess eru fá dæmi að íslenskir tónlistarmenn hafi átt eins skjótum frama að fagna og hafnfirðingurinn Friðrik Dór. Smelltu á fyrirsögn til að lesa, sjá og heyra meira.
Roger Waters, sem lauk hér tveggja ára tónleikaferð 2008 undir nafninu The Dark Side of the Moon, er með tvær nýlegar plötur í sölu og var á ferð langt fram á þetta ár með tónleika undir nafniu The Wall Live. Á tónleikunum tók hann alla Wall-plötuna. Hann er sem sé hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 67 ára. Fyrir tveimur árum veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra.
Á næsta ári, þegar liðin er hálf öld síðan fyrsti vísir að hljómsveitinni The Rolling Stones lét á sér kræla, er allt útlit fyrir að hljómsveitin leggi upp í enn eina heimsreisuna með hlóðfærin. Það var Ekaterina Ivanova, kærasta gítarleikarans Ronnie Wood, sem lak þessum tíðindum í fjölmiðla nú í vikunni. Strákarnir ætluðu að fara leynt með þessa ráðgerð enn um sinn þar eð allir hnútar hafa ekki verið hnýttir. Það fylgir sögunni, að Ronnie verði með í för þó svo að vitað er að Jagger hafi hótað honum brtottrekstri sökum óreglu. Gítarleikarinn segir að allt sé gott á milli sín og hinna og hann hafi nýverið átt mjög gott spjall við þá Jagger og Charlie Watts. Venjan mun vera sú að Jagger hói strákunum saman, en nú á það að hafa verið Keith Richard sem var orðinn óþolinmóður og vildi fara af stað enn á ný. Sagan segir að hljómleikaferðin eigi ekki að vera minni í sniðum en sú síðasta, sem farin var árið 2007 og halaði inn jafnvirði 60 milljarða króna. Smelltu á fyrirsögnina til að hita upp áður en þú ferð í biðröðina við miðasöluna.
Hér fyrir ofan er ljósmynd sem tekin var á skemmtistaðnum Hollywood af Rúnari með félögum sínum í Trúbroti vorið 1979. Þeir voru þá að halda upp á að tíu ár voru liðin frá stofnun hljómsveitarinnar. Núna, næstum 30 árum síðar, er frum- kvöðullinn Gunnar Þórðarson einn á lífi af þeim fjórum sem eru á myndinni. Smelltu á fyrirsögnina og lestu skrif Þorsteins Eggertssonar um sinn gamla vin og félaga, Rúnar Júlíusson. Ljósm.: Þórarinn Jón Magnússon
Björn Thors hóf að safna gíturum fyrir löngu síðan. Fyrir 21 ári birti Samúel mynd af Birni með hluta af gítarsafninu. Blaðið birti líka forvitnilegt viðtal við gítarsnillinginn um söfnunaráráttu hans.
„Maður stimplar sig inn 1967 og út árið 2000,” sagði Björgvin Halldórsson í viðtali við Samúel árið 1982. Annað hvort hefur Bjöggi gleymt að rífa af dagatalinu eða hann kann ekki á stimpilklukku. Hann sýnir alla vega ekki á sér neitt fararsnið enn sem komið er og hefur fengið yfir 30 þúsund manns á sólótónleika í Laugardals- höll á tólf mánaða tímabili. En það var einmitt í Laugardalshöllinni sem Bjöggi var kjörinn Poppstjarna ársins 1969, sama ár og Samúel hóf göngu sína, eða fyrir 40 árum. Um það leiti sem Samúel ræddi við Bjögga tólf árum síðar töldu sumir nýgræðinganna í músíklífinu hann vera á útleið ...
Meðal hlauparanna í nektarsprettinum á Hróarskeldu í ár voru þrjár stúlkur um tvítugt, þær Gunnhildur, Stína og Karólína. Það fór ekki á milli mála hvaðan þær komu. Þær höfðu nefnilega haft fyrir því að mála norska fánanann þar sem hann hefði nú raunar ekki sést undir venjulegum kringumstæðum eins og þessi ljós- mynd norska Dagblaðsins sýnir. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira um hátíðina - og sjá vídeó frá hlaupinu ....
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.
Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.
Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu nýtt vídeó með tíu glæsilegustu mörkum Steven Gerrards fyrirliða Liverpool F.C..
Þegar skilaboðin eru "Bring your own boos" er heppilegt að geta kippt með sér 2-4 gosbjórum, eða hvað það nú er sem þú getur hugsað þér að innbyrða í teitinu. Hvað þá að geta tekið með sér Mojito eða aðra uppáhalds kokkteila klára á gosflöskum. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um vnsæla gosbjóra.
Samúel tínir til myndir úr fjöl- miðlum af stúlkunum þremur sem komust í þrjú efstu sæti samkeppninnar. Smelltu á myndina og síðan fyrirsögnina.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Bridget Moynahan er flottasta afmælisbarnið 21. september að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá nöfn þekktra einsaklinga sem eiga afmæli 22. september.
Mönnum brá í brún þegar skoski leikarinn Sean Connery afboðaði óvænt komu sína á árlegt hóf sem ber nafnið Dressed til Kilt þar sem karlar mæta í skotapilsum. Connery hafði verið auglýstur sem sérstakur heiðursgestur. Strax var leitt að því getum, að heilsa Bond leikarans gamla væri farin að gefa sig (hann varð 81 árs 25. ágúst). Ástæðan reyndist þvert á móti vera sú að hann langaði meira til að fara og spila golf á Bahama. Hann hefur nú gefið það út, að hann nenni ekki lengur að sitja heilu kvöldin í samkvæmum fína fólksins. Smelltu á fyrirsögnina.
Sophia Loren er orðin 77 ára. Hún hefur elst vel og pósaði fyrir dagatal Pirelli fyrir aðeins fjórum árum. Smelltu á fyrirsögnina.
Robert Plant er orðinn 63 ára en hefur ekkert dregið úr tónleika- haldi. Hann neitaði að taka þátt í að endurvekja Led Zeppelin til að geta sungið sem mest með söngkonunni Alison Krauss. Árið 2009 hlutu þau fimm Grammy-verðlaun fyrir plötu þar sem þau sungu saman. Plant græðir á tá og fingri, en eignir hans eru metnar á jafnvirði 15 milljarða íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra 100 laga syrpu með Led Zeppelin og aðra 100 laga syrpu með samantekt á því besta með Plant.
Madonna varð 53 ára á þriðju- daginn. Hún hefur selt meira en 300 milljónir platna. Smelltu á fyrir- sögnina til að tengjast 100 laga syrpu með drottninguna.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfir afmælisbörn sunnudagsins og heyra hálfrar aldar gamlan smell með einu afmælisbarnanna.
Vinurinn Matthew Perry fagnaði afmæli á fimmtudag, en hann fæddist hálfum mánuði eftir að Samúel hóf göngu sína árið 1969. Daginn áður áttu tveir aðrir vinsælir leikarar afmæli, þeir Edward Norton og Christian Slater, báðir fæddir 1969. Það væri ekki lélegt teiti þar sem Samúel og þessir vinsælu leikarar Samfögnuðu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá nafnalistann.
Tveir af allra vinsælustu Hollywood leikurunum áttu afmæli 17. ágúst. Sama dag fögnuðu tveir þekktir Reykjavíkur leikarar afmælum. Smelltu á fyrirsögnina.
Síðastliðinn mánudag voru liðin 242 ár frá fæðingu Napolenos Bonaperte herforingja í Frönsku byltingunni. Ekki ólíklegt að einhverjir hafi notað það tækifæri til að skála í koníaki. Smelltu á fyrirsögnina.
Hin fagra Halle Berry varð 43 ára á sunnudaginn. Hún var hreint ekki sú eina fallega á lista Samúels yfir afmælisbörn þann daginn ...
Ásdís Rán, ókrýnd fyrirsæta Íslands, varð 32 ára 12. ágúst. Smellt á fyrirsögnina til að sjá myndasyrpur af henni.
Ian Anderson, aðal sprautan í Jethro Tull, varð 64 ára í gær og trommuleikari INXS 50 ára. Fimm aðra tónlistarmenn er að finna í afmælisdagabók okkar, það eru Eddie Fischer, Michael Bivins í New Edition og Bell Biv Deveo, söngkonunarnar Patti Austin og Neneh Cherry og loks Bobby Hatfield, sem söng Unchained Melody. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á lagasyrpur með þeim öllum.
Gítarleikarinn, söngvarinn og aðal sprautan í Metallicu varð 48 ára í gær. Metallica spókaði sig á sviði Egilshallar eigi alls fyrir löngu. Bandið verður þrítugt á þessu ári og hefur selt meira en 100 milljónir platna. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á 100 laga syrpu með Metallicu.
Ósk Norfjörð er lang flottasta afmælisbarn mánudagsins að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá listann.
Hin nýbakaða Íslandsvinkona Charlie Theron er fallegasta afmælisbarn sunnudagsins að mati Samúels. En nokkrar í viðbót komu sterklega til greina. Smelltu á fyrirsögnina.
Martin Sheen komst í gær á áttræðisaldur. Til vinstri er mynd af honum er hann hóf ferilinn. Synir hans, leikararnir Charlie Sheen og Emilio og Ramón Estevez eru afar líkir honum eins og hann leit út á yngri árum. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfir fólk úr röðum hinna fallegu og frægu sem áttu afmæli í fyrradag.
Birgitta Haukdal verður hiklaust að teljast fallegasta afmælisbarn fimmtudagsins. Ljósm.: ÞJM Smelltu á fyrirsögnina.
Móðir Jennifer Lopez fór á fæðingardeiildina til að eiga stúlkukindinaa daginn sem fyrsta tölublað Samúels rann af stað í prentvélunum. Samúel finnst Lopez ótvírætt vera fallegasti jafnaldri sinn. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá meira.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Veslings Snipes komst á sex- tugsaldurinn í gær. Spurning hvort honum hafi gefist tækifæri til að fagna afmælinu, en hann er kominn skammt á veg með að afplána þriggja ára fangelsisvist vegna skattaskulda. Smelltu á fyrirsögnina.
Færeyska söngkonan og laga- höfundurinn Eyvør Pálsdóttir er 28 ára. Tólf ára gömul fór hún í söngferðalag með færeyskum karlakór og þrettán ára kom hún fyrst fram sem sólóisti. Smelltu á fyrirsögnina.
Tónlistarmenn voru áberandi á lista Samúels yfir afmælisbörn miðvikudags eins og svo oft áður. Samúel er með tengla inn á lagasyrpur með þeim öllum. Smelltu á fyrirsögnina og þú kemst í snertingu við tengla inn á vídeó með Santana, Pearl Jam, Chris Cornell, Simple Minds, Mark-Almond, Kim Carnes, T G Sheppard, John Lodge, Jo Ann Campbell og The Moody Blues.
Samúel heldur því ekki fram að leikarinn Jack Earle Haley sé fallegasta afmælisbarn föstu- dagsins og enn síður Freddy Krueger (sem hann leikur), en Stanton er óneitanlega góður leikari. Smelltu á fyrirsögnina.
Trommuleikarinn Ian Paice (63) hefur spilað með Deep Purple og Whitesnake sem báðar hafa komið hingað til lands. Einnig hefur hann spilað með Paul McCartney, Garry Moore og The Velvet Underground svo aðeins fáeinir séu nefndir. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á hann með sönnum snillingum.
Hin önnum kafna söngkona Nicole Scherzinger mætti í tvö afmælisteiti í Las Vegas sem haldin voru henni til heiðurs. Bæði sama daginn og tveimur dögum áður en hún átti afmæli. Hún þurfti að vera sest í sæti dómara við hlið Símonar Cowell og Paulu Abdol í X-Factor í gær. Smelltu á fyrirsögnina og heyrðu það nýjasta með Nicole og slatta af lögum þar sem hún syngur með Pussycat Dolls.
Cyndi Lauper heillaði íslenska áhorfendur í Hörpu nýverið. Smelltu á fyrsögnina til að rifja upp 100 lög með þessum nýja Íslandsvini.
Íslandsvinurinn Ray Davies úr Kinks er á stöðugum hljóm- leikaferðlaögum en hann kemst á eftirlaunaaldur í dag, 21. júní. Hann vinnur að nýrri plöu í stúdíói sem Kinks gerðu til einkonota fyrir 40 árum. Sjáðu glænýja upptöku frá vinnslu plötunnar í stúdíóinu.
When I'm 64, söng McCartney með Bítlunum. Síðan eru liðin 44 ár og hann vantar aðeins eitt ár í sjötugt. Lifið brosir samt við honum - vel hærðum með nýja kærustu. Smelltu á fyrirsögnina og komdu þér í tengsl við 100 laga syrpu með stráknum.
Yngstu einstaklingarnir sem hafa orðið milljarðamæringar í dollurum talið af eigin rammleik. Smelltu á fyrirsögnina til sjá meira.
Kanye West fær rapparann Jay-Z til liðs við sig í vídeói við nýjasta lag sitt, Monster. Auk þess er puntað upp á það með nokkrum hvítum fyrirsætum sem virðast steindauðar. Það fer fyrir brjósið á mörgum. Smelltu á fyrirsögnina og dæmdu sjálfur, lesandi góður!
Þegar Sir. Tom Jones var fenginn til Íslands fyrir rúmum 20 árum þótti mönnum sem nú færi að verða síðasti séns að sjá karlinn á sviði. Hann er 71 árs og fyllir tónleikasali í Las Vegas þegar honum sýnist og nýjasta platan hans er tekin upp við undirleik rokkhljómsveitar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann flytja lag af nýju plötunni og 100 lög til viðbótar.
Dylan varð sjötugur 24. maí. Smelltu á fyrirsögnina. Samúel rifjar upp lagið sem færði Dylan Óskarinn og Gullna hnöttinn á aldamótaárinu.
Marilyn Monroe hefði orðið 91 árs 1. júní, en hún lést af of stórum skammti svefnlyfja árið 1962 aðeins 36 ára gömul. Smelltu á fyrirsögnina.
Janessa Brasil er fyrirtaks ljós- myndafyrirsæta. Smelltu á fyrirsögnina til að ganga úr skugga um það hvort þú sért ekki sammála.
Paul Simon var að hefja sinn frægðarferil um það leiti sem Samúel hóf göngu sína fyrir liðlega 40 árum. Nú er hann að senda frá sér sitt 12. albúm. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann flytja eitt laganna.
Texas blúsarinn Pinetop Perkins er látinn, 97 ára að aldri. Hann spilaði um tíma með Blue Ice Band (Vinum Dóra), í Chicago fyrir miðjan tíunda áratuginn og lék með þeim hér á landi. Hann sagði sjálfur að plata sem hann gaf út með Dóra og félögum væri hans besta. Þegar hann spilaði á blúshátíð í Reykjavík 2009 sæmdi Blúsfélagið hann með heiðursfélagaorðu. Perkins var margverðlaunaður. Í síðasta mánuði tók hann við sínum síðustu verðlaunum, Grammy. Smelltu á fyrirsögnina.
Tímaritið Rolling Stone dregur fram tíu bestu dægurlög sjötta áratugarins. Smelltu á fyrir-sögnina til að sjá og heyra.
Síðla sumars verður frumsýnd ný mynd um apa. Er fastlega gert ráð fyrir að hún eigi eftir að njóta sömu vinsælda og myndirnar um apaplánetuna hér á árum áður. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fyrsta úrdráttinn úr Rise of the Planet of the Ape.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu þrjú vídó (neðst á síðunni) með knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo syngja rómantískt lag og spóka sig á nærbrókinni. Allt fyrir Armani.
Samúel kannaði fyrir Pressuna hvað varð af stelpunum tveimur sem hölluðu sér upp að barnum með Þorgeiri Ástvalds fyrir 30 árum og sungu um fjólublátt ljós. Smelltu á fyrirsögnina.
Arkitektarnir Tryggvi og Erla Dögg hafa rekið arkitektastofur í Kaliforníu og Luxembourg. Húsið sem þau sjálf byggðu yfir sig og börnin í Santa Monica hlaut viðurkenningu tímaritsins Interior Design 2010 sem útsjónarsam- asta hönnun ársins 2010. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndir frá heimili þeirra og einnig myndir af húsi sem þau hönnuðu fyrir kvikmyndagerðarmann í Hollywood. Mynd: David Lena.
Franz Gunnarsson hefur prófað fimmtántölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um þá og sjá vídeókynningar.
Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.
Í tilefni af því að hérlendis voru veitt í vikunni verðlaun fyrir bæði bestu og verstu auglýsingarnar í íslensku sjónvarpi skellti Samúel inn tilvísunum á nokkrar auglýs- ingar sem bannað er að sýna í sjónvarpi erlendis. Smelltu á fyrirsögnina og njóttu!

