Móeiður í krýningarstólnum á sviði Broadway. Stóllinn er ítölsk hágæða- hönnun frá CASA í Skeifunni. Stóllinn varð eign Móeiðar. Mynd: Bragi Kort
Fullt nafn: Móeiður Sif Skúladóttir
Fæðingarstaður: Keflavík
Fæðingardagur: 8. janúar
Hæð: 168 cm
Háralitur: Ljóst/skollitað
Augnlitur: Blár
Systkini: Tveir yngri bræður, Lárus og Halldór
Foreldrar
: Halldóra E og Skúli B
Stjörnumerki: Steingeit, me e
Móeiður Sif Skúladóttir bar sigur úr bítum í Samkeppni Samúels 2010 og hlaut að launum vegleg verðlaun. Hér má sjá Móeiði Sif komna á Toyota iQ vandlega merkta keppninni af fyrirtækinu G3, en bílinn fékk hún til afnota í eitt ár. Móa er í jakkanum frá Pelsinum sem hún sýndi á lokahófi Samkeppninnar á Broadway. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá fleiri myndir af Móu og svör hennar við spurningum Samúels. Mynd: ÞJM
Á FORSÍÐU KEPPENDURNIR ALLT UM KEPPNINA
Uppáhalds máltíðin þegar þú vilt vera góð við þig? Serrano og taco bell!!! ELSKA það :)
Hvaða kostum þarf maki þinn að vera búinn?
Hress, traust/ur, opin og með mikinn og góðan húmor :)
Hefur þú horft á kynlífsmyndband? Kannski.
Hefur þú gert þér upp veikindi til að komast hjá vinnu eða fjölskylduboði? Aldrei ;)
Inn í hvaða fræga fjölskyldu vildir þú vera gift eða fædd?
Adams family.
Hefur þú átt í sambandi við fleiri en einn eða tvo karlmenn samtímis?
Nei, það væri of mikið vesen held ég.
Ögrar þú sjálfri þér með einhverju sem þú ert smeyk við eins og t.d. með teygjustökki? Já, ég á raunar enn eftir að prófa tyeygjustökk, en ég ögra mér í mörgu öðru eins og til dæmis tívolítækjum og bara ýmsu í daglegu lífi.
Hvað viltu eignast mörg börn? Pass við þessa spurningu, hehe.
Snyrting: Vax, rakvél eða annað? Já , þú? Ég? Þú? ... rakvél og vax sem spari.
Hvar í heiminum vildir þú geta verið stödd akkúrat núna?
Miami, Florida, því þar er sólin og ströndin ... og fólk sem talar ensku.
Hvaða frægri persónu vildir þú kynnast afar náið?
Kendra Wilkinson og Jason Statham ;)
Hvað er mesta turn-off sem þú manst eftir?
ANDFÝLA og ósprengdar bólur!
Hvaða kveikir blossann?
Leyndó ;)
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum ein?
Mála með góða tónlist.
Kúra svo undir sæng og horfa á góða hryllingsmynd með nóg af nammi. Ahh thats life :D
Hvernig líkar þér best að verja frístundunum með öðrum?
Elta býflugur! Nei, segi sona. Bara rúnta og spjalla, fara í pool eða eitthvert að borða.
Stígur þú á vigt ina daglega og telur kalóríurnar í því sem þú lætur ofan í þig? Stíg á vigtina já, en nei ég tel vinkonurnar ekki ofan í mig ;)
Hver er helsti ávani þinn?
Horfa á eitthvað af elsku besta flakkaranum mínum áður en ég fer að sofa.
Eldri eða yngri karlmenn?
Góð spurning, hehe, nei yfirleitt eru þeir eldri - en það eru undantekningar :)
Hvað leiðist þér mest í fari fólks?
SNOBB, það er það helsta ... annars er fer líka frekja og baktal rosalega í mig.
Hefur þú einhvern tíma gefið þér sérstaklega tíma til að horfa á sólarupprásina?
Neibb.
Hver er svalasta persónan sem þú hefur hitt til þessa?
Vá, uh ... ég veit ekki- Jated Leto og amma mín!
Hefur þú verslað í munúðarvöruverslun ástarlífsins? Já, það fæst nefnilega ekki allt í Hagkaup ;)
Í hverju sefur þú?
Náttbuxum eða boxer.
Hefur þú málað mynd, samið ljóð, lag eða smásögu, leikið, dansað eða sungið? Jebbs, ég er mikið fyrir að mála myndir og semja texta/ljóð, dansa stundum og raula með góðum lögum ;)
Hver er þinn helsti veikleiki?
Mætti hafa meira sjálfstraust og ég treysti ekki mörgum - en kannski kemur það með tímanum.
En kostur?
Ég er stundvís,vingjarnleg, kurteis og traustur vinur- held ég ;)
Hvar kaupir þú helst á þig skó og föt?
Gallerý í Kef, Topshop, 17 og bara þar sem ég finn eitthvað flott og á ágætu verði.
Besta útvarpsröddin?
Frosti og Máni á X-inu, alltaf gaman að hlusta á þá.
Hvað lætur þú fara mest í taugarnar á þér?
Það, að ég búi ennþá í Keflavík og allt þetta baktal og slúður sem fylgir því litla pleisi.
Áttu gæludýr? Já, kött og hund. Held ég muni alltaf eiga hund og/eða kött í framtíðinni.
Eftirlætis skemmti- og/eða veitingastaðurinn þinn? Sódóma Reykjavík, alltaf eitthvað að gerast, góð bönd að spila og aldrei leiðinleg tónlist:) Annars er það bara Halinn/yello í Keflavík.
Hverju vildir þú helst geta breytt í lífi þínu? Hmm...já það er alveg slatti sem ég vildi breyta, vonandi fer það að breytast fljótlega ;)
Ertu hjátrúafull? Já, svolítiðið. Er alla vega mjög opin þegar það kemur að andlegum hlutum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.