Á FORSÍÐU SAMÚELS.IS ÞÚ LAST ÞAÐ Í SAMÚEL (og núna á Pressunni)
Þú last það í Samúel er heiti undirsíðu á Pressan.is sem daglega birtir nýtt (gamalt) efni úr gamla góða Samúel frá árunum 1969 til 1994. Á umrædda undirsíðu Pressunar mun einnig slæðast inn efni úr öðrum blöðum Samútgáfunnar frá sama tíma, þar á meðal Húsum & Híbýlum, Vikunni, Bleiku & Bláu og Lúxus.
SMELLTU Á FYRIRSAGNIRNAR
Þegar gjaldeyrishöft voru tekin upp hér á landi í kjölfar hrunins sköpuðust aðstæður sem minntu á liðna tíð. Samúel dró fram grein frá 1977 þar sem sagt var frá könnun tímaritsins á líflegum svartamarkaði með gjaldeyri. Hvaða brögðum var beitt og hverjir voru kræfastir?
Í ljósi þess að í Kópavogi skuli vera að finna síðasta vígi súludansara er skondið að rifja upp ríflega aldarfjórðungs gamla bókun frá fundi jafnréttisráðs bæjarins þar sem Samúel er skammaður fyrir að birta myndir af hálfnöktu íslensku kvenfólki. Bæjarráð sætti sig ekki við bókunina.
Sumarið 1987 sýndi Jón Páll Sigmarsson Samúel helgarskammtinn sem hann var vanur að innbyrða. Mjólkurhristingur með fiski, kartöflum, próteini, brauðmolum, ávaxtasafa, banönum og hráum eggjum var meðal þess sem kappinn lét ofan í sig. Kálfafóður var líka á matseðlinum.
Enginn erlendur skemmtikraftur hefur komið til að skemmta Íslendingum sjö ár í röð annar en Susan Haslund. Kom hún hingað frá Árósum í Danmörku á hverju sumri frá árinu 1974 til 1981 til að baða sig opinberlega í minnsta baðkari heims við miklar vinsældir.
Á aðeins 20 mínútum tókst Samúel að fá tíu manns til að heita því í nóvember 1979 að fremja sjálfsmorð á Bernhöftstorfunni á aðfangadagskvöld ef ekkert væri þá farið að gerast í verndun húsanna á Torfunni, en þau voru þá í niðurníðslu. Samúel vildi sanna að fólk les ekki smáa letrið og sendi Auði Harlds til að safna undirskriftum á mótmælaskjal.
Efnt var til Hollywood-keppninnar að frumkvæði Samúels árið 1979. Auður E. Guðmundsdóttir hlaut titilinn Ungfrú Hollywood og fékk að launum lúxusferð til Hollywood í Kaliforníu. Árið eftir veittu lesendur Samúels Valgerði Gunnarsdóttur titilinn og voru verðlaunin þá orðin enn veglegri vegna þeirrar athygli sem keppnin hafði n áð að vekja. Auk þess að fá afhentan farrseðil til Ibiza ók Valgerður heim eftir krýninguna á glænýjum, logagylltum Mitsubishi Colt.
Liðni r eru rúmir fjórir áratugir síðan Trúbrot gaf út sína fyrstu hljómplötu, en hljómsveitin var stofnuð árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Eins og meðfylgjandi mynd úr Samúel minnir óþægilega á er endurkoma hljómsveitarinnar í upprunalegri mynd óframkvæmanleg þar eð Gunnar Þórðarson er sá eini af strákunum sem er á lífi í dag.
Mörg og ólík erindi berast inn á borð ritstjóra. Samúel fann á dögunum bréf sem honum var sent árið 1985. Þar er spurst fyrir um áhuga tímaritsins á að senda blaðamann til Bandaríkjanna þeirra erinda að eiga viðtal við unga og efnilega söngkonu sem var rétt um það bil að senda frá sér sína fyrstu hljómplötu.
Í rúm 40 ár hefur Samúel fengið að dúsa í hirslum lögreglunnar í Hafnarfirði án dóms og laga. Um er að ræða upplag tölublaðs sem dreift var á sölustaði í bænum í janúar 1971. Mynd af Alfreð Flóka við eitt af verkum sínum fór illilega fyrir brjóstið á listfengum rannsóknarlögrelumanni sem gerði Samúel upptækan og varpaði honum í steininn þar sem hann er enn.
„Ég bara skil ekki hvað útvarpsstjóra RUV gengur til að láta það viðgangast ár eftir ár að starfsmenn hans verji skattfé okkar landsmanna í að láta kjósa kynþokkafyllsta karlmann landsins. Hann var kosinn fyrir meira en 30 árum. Á meðan hann heldur fullum kynþokka þarf ekki að vera að standa í svona kosningu segir Helgi Pétursson, sem lesendur völdu kynþokkafyllsta mann Íslands í kosningu sem Samúel efndi til árið 1977.
ENN MEIRA EFNI SAMÚELS Í PRESSUNNI:
Hin ultra kynþokkafulla Snjólaug Þorsteinsdóttir
Myndir ljósmyndara Playboy af Berglindi Ólafsdóttur
Utanþingsstjórn Samúels fyrir rúmum 30 árum
Kann Bjöggi Halldórs ekki á stimpilklukkku?
Sexí Selfyssingur í Samkeppnina
Karítas Ósk í Samkeppni Samúels
Hildur Líf í Samkeppni Samúels
María Ósk yngir hugsanlega upp þegar draumaprinsinn er orðinn eldri
Sex sjóðheitar úr myndasafni Samúels
Stærsta gítarsafn í einkaeigu á Íslandi
Samúel heimsótti Bob Marley. Hvað óttaðist Listahátíð?
Harpa Rós sexí á forsíðu og opnu Samúels
Birgitta Haukdal skrúfaði frá kynþokkanum í stúdíói Samúels
Vídeókaup ekki á færi almennings á Íslandi
Tólf af fallegustu stúlkum aldamótanna naktar í Samúel
Einar K. Guðfinns, næturlíf Köben og slúðurpressan
Lengsta framlengingarsnúra Íslandssögunnar
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Hin kynþokkafulla Laufey Bjarnadóttir Forsíustúlka Samúels
Sami kynþokki og fyrr. Stella aftur í stúdíó fyrir Samúel eftr 30 ár.
Fékk líflátshótanir eftir viðtal við Samúel og flúði land
Brimkló óttaðist lögsókn vegna texta Steinas Eggerts um Samúel
Stebbi Hilmars og Anna Björk: Ást við fyrsta símtal
Dóri í Tempó og Ingibjörg Sólrún nakin í Hárinu. Hvað um frama í pólitík?
Framliðnir spilla fasteignasölu í Reykjavík
Fulltrúi Samúels í keppni Penthouse tímaritsins
Rúni Júl kynntist Jimi Hendrix á karlaklósettinu
Gulli Rögnvalds vann gullið kvartmílu í fyrstu tilraun. Keppt í nafni Samúels.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.