BÍÓMISTÖK
Þegar hvítklæddu hermennirnir ryðjast inn í stjórnherbergið sést einn reka höfuðið allharkalega í dyrastafinn, og greinilega vankast aðeins.
Harry Potter and the Philosopher's Stone
I byrjun veislunnar, þegar Harry er kominn í Gryffindor, þá sest hann hægra megin við matborðið, við hliðina á Ron. En stuttu síðar er hann kominn þvert yfir borðið, við hliðina á Hermonie.
Gladiator
Daginn eftir bardagann við Germanana þá gengur Maximus um herbúðirnar og gefur hesti epli að borða. Ef horft er gaumgæfilega á milli Maximusar og hestsins þá sést í meðlim kvikmyndatökuliðsins í bláum gallabuxum.
Þegar Amidala prinsessa er á plánetunni Tattooine þá ýtir hún á einn takka til að áframsenda skil aboðin frá Obi-Wan. Örstuttu síðar styður hún á sama takka til að fá upp kort sem sýnir hvar Obi-Wan er niðurkominn, og fjarlægðina á milli Tattooine og Couruscan. Það er greinilegt að einn og sami takkinn gegnir fjölbreyttu hlutverki og veit upp á sitt einsdæmi hvenær prinsessan vill vita vegalengdirnar á milli plánetanna.
Titanic
Hvers vegna í ósköpunum er einn af áhafnarmeðlimum Titanic með stafrænt úr á handleggnum þegar hann fer í einn björgunarbáta nna? Slík úr voru áreiðanlega ekki mjög algeng árið 1912.
I upphafsatriði myndarinnar sjáum við hvar Brian fer aftur í búðina, til að fá meira nítrógen til að auka hraðann á bílnum við toppsnúning. Flestir bílaáhugamenn vita hins vegar að fleiri hestöfl samsvara ekki meiri hraða við hæsta snúning, það skiptir bara máli ef í bílinn er sett skipting sem getur tekið við kraftinum og dreift honum.
Gladiator
Í bardaganum í hringleikahúsinu, þar sem M aximus og félögum hans á að vera slátrað sem Barbörum, sést gashylki greinilega í einum hestvagninum sem liggur á hvolfi.
Gashylki þessi eru oft notuð í kvikmyndum til að velta bílum og álíka farartækjum sem eru á ferð.
Samúel finnst hins vegar sniðugt að Rómverjar skuli hafa verið búnir að finna upp á þessu fyrir svona líka löngu síðan…
Spider-Man
Í atriðinu þar sem fjórir menn eru að angra Mary Jane þá sést hvar Kóngulóarmaðurinn hendir tveimur þeirra í gegnum sinn hvorn gluggann á bak við Mary Jane. Svo fylgir myndavélin Kóngulóarmanninum þar sem hann jafnar um hina tvo. Þegar myndavélin beinist svo að Mary Jane eru báðar rúðurnar í glugganum óbrotnar.
Í fjögurra bíla kappakstrinum á milli Brians, Dominics, Eddias og asíska stráksins þá rifnar gólfið úr farþegamegin þegar Brian notar seinni nítrókútana. En þegar hann stoppar til að taka Dominic upp í til að flýja lögregluna, þá sest Dominic í farþegasætið eins og ekkert hafi í skorist.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.