Ég var bara
bútungur …
Þetta er
sami
dúkurinn –
bara
skömmu
síðar
Þá byrjaði
fólkið í
hótellyftunni
að úthúða
Rúnari á
íslensku
Pissað við
hliðina á
Jimi Hendrix
og spjallað
góða stund
Djammað
með Kinks
og Hollies í
Glaumbæ
Hægt að
taka
húsgögnin í
nefið eftir
öll lætin
... fækka
fötum, klifra
út um allt og
syngja samt
allan
tímann.
Þetta var
meira eins
og trans.
Nutu
lögreglu-
verndar
vegna
ágangs
aðdáenda.
NEÐST Á SíÐUNNI: Rúnar Júlíusson - Gott er að gefa
Fyrir réttum aldarfjórðungi birti Samúel viðtal við Rúna Júl í tilefni þess að þá voru liðin um 20 ár frá því að Hljómar mættu til leiks í íslensku tónlistarlífi. Rúni var í miklu stuði og sagðist aldrei hafa verið betri. Vildi helst að hann væri þá fyrst að syngja inn á sína fyrstu plötu. Viðtalið tók einn þriggja stofnenda Samúels og aðal textahöfundur Íslands, Þorsteinn Eggertsson. Niðurlagsorðin urðu fleyg. Rúni er spurður að því hvort hér sé á ferðinni einhver nýr Rúnar Júlíusson. Hann svaraði að bragði: „Þetta er sami dúkurinn – bara skömmu síðar.”
Síðan eru sem sé liðin 25 ár og hálft ár síðan þessi mesti töffari íslenskrar poppsögu lést. Hann fór sjálfsagt eins og hann hefði helst kosið, með bassagítarinn og að teygja sig eftir hljóðnemanum. Dánarorsök var hjártaáfall. Rúni hafði fengið viðvör- unarskot nokkrum árum árum fyrr og var kominn með gangráð, sem var ástæða þess að hann gaf næstu hljómplötu sinni nafnið „Með stuð í hjarta”. Góður!
Samúel grípur hé r niður í viðtal Samúels við Rúna þar sem hann minnist upphafsins:
Rúnar: Ég var bara bútungur, 10 ára gamall eða yngri jafnvel, þegar ég fór að komast í virkilega snertingu við músík. Það var þarna strákur, hinum megin við skrúðgarðinn (í Keflavík). Á góðum degi þegar hann hafði smakkað það og svoleiðis þá setti hann græjurnar út í glugga og spilaði hátt. Hann fékk þessar plötur sendar frá einhverju ættfólki í Bandaríkjunum held ég. Þetta var fyrsti snerturinn af góðri rokktónlist; Little Richard, Chuck Berry, Jerry Lee … Svo var það kaninn og kansjónvarpið.
Samúel: Svo fórstu að syngja sjálfur?
Rúnar: Já, ég byrjaði svoleiðis. Það var í skólahljómsveitinni og Gunni Þórðar á trommum. Svo komu Skuggar en ég komst ekki í þá hljómsveit strax. Þar var trommuleikari sem var svolítið veikur fyrir búsnum. Ég beið alltaf eftir því að hann færi yfirum því þá gat ég komist á settið. Þannig byrjaði ég að spila – en það var ekkert gagn í trommuleiknum – þannig.
Samúel: Það er sagt að Gunni Þórðar hafi kennt þér á bassa á svipstundu.
Samúel: Höfðuð þið þá eitthvað heyrt í The Beatles?
Rúnar: Ég hafði heyrt í þeim af því ég fór í keppnisferðalag með yngri flokkum ÍBK til meginlandsins. Ég kveikti strax á perunni – á lögum eins og From Me To You og fyrstu stóru plötunni sem Please Please Me er á. Þau virkuðu mjög vel á mig. Þá var maður alltaf að verða meira og meira háður músíkinni.
Hljómar urðu nánast frægir á einni nóttu. Einhverjir hafa staðsett upphaf frægðar- innar á tímamótahljómleikum í Háskólabíói. Í framhaldi af því tók við endalaus spilamennska.
Þeir troðfylltu Stapann um helgar og fylltu öll félagsheimili sem þeir heimsóttu úti á landsbyggðinni. Þessu fylgdu eiginhaldaráritanir og stúlkur í yfirliði. Aðdáendabréfin streymdu til þeirra og það var vel fylgst með hverri hreyfingu. Hvar sem þeirra var von beið þeirra herskari af aðdáendum. Þvílíkt og annað eins hefur ekki sést hér á landi, hvorki fyrr eða síðar.
Rúnar: Við gátum spilað nákvæmlega öll kvöld mánaðarins því þá voru ekki diskótek og annað slíkt og skólar færðu bara árshátíðir sínar til eftir því hvenær við værum hugsan- lega lausir.
Samúel: Þú byggðir húsið þitt að miklu leyti sjálfur, var það ekki?
Rúnar: Jújú. Ég vann við öll störfin; pípu- lögnina, múrverkið, málninguna og allt það, allan prósessinn, með hjálp fjölskyldunnar.
Rúnar var innan við tvítugt á þessum tíma og spilaði með Keflavík, sem varð um þetta leyti Íslandsmeistari í fyrsta skipti. Rúnar viðurkennir að það hafi ekki verið sofið mikið meira en einn til þrír tímar á sólarhring.
Samúel: Varstu ekki að drepast úr þreytu?
Rúnar: Maður varð ekkert var við það – og ekki ennþá. Einhvern veginn small þetta saman, en maður var kannski svolítið marg- skiptur.
Samúel: Þið smökkuðuð ekki vín um þetta leyti?
Rúnar: Nei, en það var mikið sukk í kring um þetta allt saman en aldrei á meðan við spiluðum. Við fórum náttúrlega í partí eins og gengur og gerist, en yfirleitt smakkaði enginn okkar vín fyrstu árin. Það kom seinna og eiginlega smökkum við það heldur ekki núna á meðan við spilum.
Samúel: En svo við vöðum úr einu í annað. Þið spiluðuð í Cavern Club í Liverpool, þar sem sjálfir Bítlarnir byrjuðu.
Rúnar: Já. Það er nú það. Ég veit ekki hvort ég hef sagt þessa sögu einhverntíma áður. En við vorum í fyrstu upptökunum í London og bjuggum á Regents Palace, sem er algengt meðal Íslendinga. Það er miðsvæðis. Síðan er ég í lyftunni einn daginn, upp á mína hæð. Það er fullt af prúðbúnu fólki í lyftunni og ég er sá eini sem er með svona – lubba og allt það. Þá byrjar fólkið að úthúða mér á íslensku: „Sjáðu þessa sóða, þetta helvítis Bítlarusl. Ógeðslegt. Sjáðu klæðnaðinn á þessu. Með óhreint hárið og og lubbann nið’rá …” Og ég hlustaði bara á allan tímann þangað til ég kom upp á mína hæð og fór út. Þá þakkaði ég bara fólkinu fyrir (glottir). Það kom alveg svakalega á það.
Samúel: Þú hittir eitthvað af frægu fólki þarna?
Rúnar: Jájá. Það var mikið af frægu fólki sem við hittum oft úti á næturlífinu og víðar. Ég er nú enn – mjög stoltur yfir því að hafa pissað við hliðina á Jimi Hendrix – pissað og talað við hann í svona „speak-easy” eða nætur- klúbbi, heillengi. Ég fékk alla hans kontakta og allt. Síðan fórum við fram, þegar við vorum búnir að pissa, fórum á barinn að tala sman – bara eins og ég og þú núna. Ég fékk adressuna og símanúmerið hans og allt. Hann átti víst vin sem hafði verið í hernum hérna. Hann vildi ólmur koma hingað til lands og ég ætlaði að vinna í því að fá hann til að halda hljómleika hérna. Þetta var svona ’67-8, en svo varð hann bara svo æðislega fljótt frægur – hafði svo mikið að gera að það varð aldrei af þessum pakka. Það er dálítið merkilegt hvað hvernig frægðin getur breytt fólki – hvernig sumir geta snúið upp á sig eins og t.d. Allan Clarke, söngvari Hollies. Hvað Jimi Hendrix var lítillátur miðað við hvað rigndi upp í nefið á Allan Clarke.
Samúel: Svo komu nokkrar frægar hljómsveitir hingað til lands.
Rúnar: Við spiluðum einmitt með nokkrum þeirra, Swinging Blue Jeans, Kinks - og Hollies. Og að loknum hljómleikum komu þeir alltaf niður í Glaumbæ. Þar voru fínar djamm-sessjónir, t.d. með Kinks og Hollies – Ray Davis og Graham Nash. Þetta eru allt saman heimsfrægir menn í dag. Þeir komu upp á senu hjá okkur og við siptumst á gítörum. Við tókum saman svona lög sem allir kunna – Chuck Berry og svoleiðis. Ég held að það sé minna um svona hluti í dag. Gott ef það er bara nokkuð …
Samúel: Nú breytti bítlatímabilið ekki bara músíkinni heldur líka tískunni og hugsunarhættinum.
Rúnar: Já. Menn urðu miklu frjálslyndari. Það vara ekki bara á einu sviði. Það var klæðaburðurinn, hártískan og síðan kom þetta frjálslyndi í ástar- og kynferðismálum, öllu því systemi. Það fór allt að verða lausara í reipunum og hefur aukist stöðugt síðan. Siðferðið hefur jafnvel breyst til góðs. Hitt var eiginlega of reimað, má segja.
Samúel: En svo við snúum okkur aftur að gamla Glaumbæ. Það var þar sem þú byrjaðir að klifra upp á boxin og svoleiðis nokkuð. Hvernig virkar þetta á fólk?
Rúnar : Það virkaði mjög vel. Það var mjög líflegt. Fólkið tók þátt í þessari geggjun. En þér að segja – ef ég miða við sýningu eins og við erum að gera í dag á Broadway, þá er hún miklu skipulagðari og sett inn í ákveðinn ramma. Hitt var meira eðlishvatasystem. Þetta var svona trans – og svo man ég ekkert fyrr en ég var kominn inn í búningsherbergi á eftir. Þegar maður fer að spila í tvo þrjá tíma, og alltaf hitnaði meira og meira í kolunum, þá varð endirinn alltaf þessi sami í Glaumbæ. Þessi magngeggjun út um allt; fækka fötum, klifra út um allt og syngja samt allan tímann. Þetta var meira eins og trans. Þetta var ekkert skipulagt mál.
Þessu næst berst talið að því þegar Hljómar vildu spila fáeinum mínútum lengur en leyfisveiting yfirvaldsins gerði ráð fyrir á balli í Sandgerði. Lögreglan hugðist stöðva hljómsveitina með það sama, en þá varð allt snælduvitlaust í húsinu. Rúnar komst svo að orði í viðtalinu að það hafi allt verið brotið og bramlað í húsinu og það hafi hreinlega mátt taka alla stóla og borð í nefið á eftir.
Samúel: Ef ég man rétt, þá þurftuð þið líka á lögregluvernd að halda.
Rúnar: Jájá. Þegar við komum bílandi á Landsmótið á Laugarvatni að spila einu sinni, þá var einhver sá brjálæðislega heitasti dagur sem um getur í Íslandssögunni. Það var eitthvað fast að 30 stigum og liðið hrundi þarna niður með sólsting út um allt. Þá var ég að keppa líka og við Hljómar vorum með uppákomu. Við vorum komnir á bíl sem var allur málaður að utan – bara keyrandi auglýsing: HLJÓMAR í sjálflýsandi stöfum – og til að komast út úr bílnum þurftum við alltaf lögregluvernd – og líka til að komast leiðar okkar. Þá var sú stemmning – sem er víst dálítið sjald- gæf. Til dæmis þegar Pétur Östlund átti heima á Skarphéðinsgötunni og við komum að sækja hann, þá var alveg viðbúið að það biðu svona 10, 20, 30 stelpur fyrir utan af því að þær vissu að við værum væntanlegir – þó þær hefðu kannski þurft að bíða allan daginn. Það er dálítið spaugilegt í sögulegu samhengi, að sumar af þessum stelpum eru núna framákonur í þjóðfélaginu.
Hér lætur Samúel staðar numið í upprifjun úr viðtali Þorsteins við Rúna Júl. Síðar verður rýnt nánar í það og fleiri viðtöl við hann í öðrum tölublöðum Samúels.
MEIRA UM RÚNAR JÚLÍUSSON HÉR TIL BAKA Á FORSÍÐU
Smelltu á fyirsögnina og sjáðu tengil inn á myndasyrpu úr fórum lögreglunnar í Los Angeles. Eða svo segja þeir ...
Næst þegar þú kaupir flösku af léttvíni frá Lúxembourg gætir þú orðið heppinn og komist í vin- smökkunarferð fyrir tvo til Lúx. Málið er einfalt. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu safn mynda af frægum tónlistar- mönnum eins og þeir hafa litið út fyrr og síðar. Sumir eru skárri - aðrir ekki ...
Hafin er kynning hér á Samúel.is á sex stúlkum af þeim tólf sem taka þátt í Samkeppninni 2010. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá upplýsingar um þær og allt er lítur að keppninni.
Eminem lætur sér ekki að nægja að Rihanna syngi með honum í nýjasta lagi hans, Love The Way You Lie, heldur skartar Megan Fox sýnu kynþokkafyllsta í vídeói sem gert hefur verið með laginu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá vídeóið.
Smelltu á fyrirsögnina til að komast inn á vefsíðu þar sem þú getur pantað far með Richard Bronson í Jómfrúarferð Virgin flugfélagsins út í geim. Verðið er aðeins kvart milljarður króna og drykkir um borð innifaldir í verði. Branson hóf rekstur árið sem Samúel hóf göngu sína. Gaman að sjá hvað hefur ræst úr strák.
Í HEIMSMYND í dag sérðu meðal annars viðtal BBC við leikkonuna Angelinu Jolie um áhættuatriðin í kvikmyndinni Salt. Hún afþakkaði áhættuleikara. Smelltu á fyrirsögnina.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Taktu þér frí í vinnunni, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Þú getur farið á Pressan.is og skoðað þar það besta úr gamla góða Samúel. Daglega bætast við sýnishorn úr Samúel sem kom út óslitið frá 1969 til 1994. Núna getur þú til dæmis séð rifjað upp sitthvað úr viðtali við Rúna Júl frá 1984. Hann segir m.a. frá því þegar hann kynntist Jimi Hendrix á klóinu. Smelltu á fyrirsögnina.
Franz Gunnarsson hefur prófað tíu tölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Loksins er komið almennilegt sýnishorn úr kvikmyndinni The Social Network, en hún segir frá ævintýrinu á bak við samskipta- síðuna Facebook. Á meðfylgj- andi ljósmynd má sjá Justin Timberlake og Jesse Eisenberg í hlutverkum sínum. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá sýnishornið.
Senuþjófurinn sem skaust inn á völlinn í leik Þýskalands og Spánar á HM fékk ekki eins mikla athylgi í sjónvarpi og þeir 20 sem, Samúel birtir vídeó af. Smelltu á fyrirsögnina.
Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.
Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.
Myndasyrpa sem einhverjum kunna að þykja áhugaverð. Í fyrsta lagi boltaunnendum, í öðru lagi áhugafólki um líkamsmálun og loks þeim sem kunna að meta fagurleggjaðar konur. Smelltu á fyrirsögnina - ef þú ert kominn í sumarfrí. Þetta er slatti af myndum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá tveimur síðustu mánuðum. Tónlistarvídeó, grín, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, flottar píur, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Angelina Jolie mun að öllum líkindum fara með hlutverk Kleópötru drottningar Egypta, sem Elísabet Taylor lék 1963. Segir sagan að Brad Pitt þyki hæfa vel í hlutverk, elskhuga drottningar, sem Burton lék á sínum tíma. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.
Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.
Snickers fær ókeypis birtingu á auglýsinga hér í Samúel sökum þess hve fyndin auglýsingin er. Smeltu á fyrirsögnina og sjáðu auglýsinguna sem valin var ein sú besta sem birtist í sjónvarpi í Bandaríkjunum á síðasta ári.
Bandaríska fyrirsætan, söng- konan, lagahöfundurinn og leikkonan Vanessa Lynn Williams er orðin 47 ára. Hún var kjörin Ungfrú Ameríka 1979 en svipt titlinum þegar grafnar voru upp nektarmyndir af henni. Hún þakkar þessum yndum frama sinn í dag. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá þessa lögulegu leikkonu úr þáttunum um ljótu Bettý.
Hún heitir Danielle Riley Keough og varð 21 árs um helgina. Það eru þó liðin sex ár siðan hún steig fyrst á sýningarpall. Smelltu á myndina tll að sjá hvort þér þyki hún líkjast afa sínum, rokk- kónginum ódauðlega. Smelltu svo á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfitr tónlistarmenn, kynbombur, kónga og forseta sem fæddir voru 29. maí.
Það leika öll hljóðfæri í höndum tónlistarmannsins Lenny Kravitz og hann er jafn vígur á ólíkustu tegugundir tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á eitt af hans gömlu góðu lögum og sjáðu líka hvernig hann græjar nýtt lag einn síns liðs í stúdíóinu sínu.
Ruslönu er ekki fisjað saman. Kynntu þér málið um leið og þú hlýðir á eitt hressilegt með henni í anda lagsins sem færði henni sigur í Eurovision árið 2004. Dansað vð úlfa heitir lagið. Smelltu á fyrirsögnina.
Joe Cocker er hinn sprækasti þó aðeins vanti nú eitt ár upp á að hann komist á ellilífeyri. Hann er að ljúka við nýja plötu og aðeins liðið hálft annað ár frá þeirri síðustu. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á tvö gömul og góð með Íslandsvininum.
Mistök hafa verið gerð við töku stórmynda jafnt sem hinna ódýrari. Samúel rifjar upp nokkur mistök sem sjá má í frægum kvikmyndum. Smelltru á fyrirsögnina.
Donovan var á meðal þeirra sem komu fram á Woodstock 1969. Hann var að gefa út smáskífu á dögunum til að gefa mönnum forsmekkinn af stórri plötu sem er væntanleg í sumarbyrjun. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp öll eftirminnilegustu lög Donavans.
Þeir Steve Winwood og Eric Clapton stofnuðu súperbandið Blind Faith ásamt Ginger Baker og Ric Grace árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á þá Clapton og afmælisbarnið Winwood taka eitt af þeirra 40 ára gömlu lögum á hljómleikum fyrir aðeins þremur árum.
Idol-dómarinn Simon Cowell er einn fára auðmanna í heiminum sem hefur bætt fjármunum í fjárhirslur sínar að undanförnu þrátt fyrir heimskreppuna. Hann flutti fyrir fáeinum mánuðum í glæsileg híbýli í Los Angeles. Fínheitin kosta jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna eftir að hann hefur á fjórum árum látið gera allt í stand nákvæmlega eftir sínu höfði. Fyrir á hann flottar húseignir út um allan heim. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Roger Waters, sem lauk hér tveggja ára tónleikaferð 2008 undir nafninu The Dark Side of the Moon, er með tvær plötur í burðarllðnum og leggur upp í nýja tónleikaferð í september undir nafniu The Wall Live. Á tónleikunum tekur hann alla Wall-plötuna. Hann er sem sé hinn sprækasti í rokkinu, orðinn 66 ára. Í fyrra veitti hann viðtöku merkum verðlaunum fyrir framlag til bæði dægurtónlistar og sígildrar tónlistar. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa, sjá og heyra.
Sveitasöngvarinn, lagasmið- urinn, rithöfundurinn og ljóðskáldið Willie Nelson nálgast áttræðisaldurinn óðfluga en undirbýr samt af sama áhuga og áður enn eina tónleikaferðina. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann taka lagið með Noruh Jones.
Eric Burdon er með nýtt band á hljómleikaferð 64 ára gamall. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á hann syngja The House of the Rising Sun með hljómsveitinni Animals. Mikið skárra en söngur hans í dag að mati Samúels.
Engelbert Humperinck varð 74 ára i gær. Hann skákaði sjálfum Bítlunum með sínu fyrsta lagi árið 1967, en það seldist á smáskífu í metupplagi í Bretlandi það ár og komst í efsta sæti vinsældalista níu landa. Hann gerir út á lagið enn í dag og fyllir auðveldlega tónleikasali vestan hafs og austan. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp lagið Release Me. Eitt vinsælasta vangalag sjöunda áratugarins.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt.
Fjöldi listfræðinga var fenginn til að tilnefna tíu bestu söfn í heimi. Samúel birtir listann. Hefur þú séð eitthvert þessara safna? Kyrrlát stund á listasafni er andleg næring fyrir sálina.
Fjölmargir söngvarar og hljóð- færaleikarar áttu afmæli 22. september auk Ragga Bjarna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu listann yfir afmælisbörnin. Samúel kemur þér í snertingu við tengla inn á tónlistarvídeó með tónlistarfólkinu - og ljósmynda- syrpur af öðrum ...
Ray Charles, Bruce Springsteen og Julio Iglesias eiga sama afmælisdag að ógleymdum djassistanum John Coltrone. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á tónlist þeirra í boði Samúels ...
Við köllum snillinga gjarnan Einstein. Hér er páfagaukur sem verðskuldar vissulega það gælunafn. Hann kann yfir 200 orð, hljóð og stæla. Enda er hann orðinn frægasti fugl í heimi og er boðið í hvern frétta- og sjónvarpsþáttinn á fætur öðrum. Þetta verður þú að sjá og heyra.
Skildu Jón Ásgeir og Ingibjörg vera til í makaskipti? Í því gæti falist góð tilbreyting samfara slökun eftir allan gauraganginn og þotulífið. Smelltu á fyrirsögn- ina til að lesa meira.