Þrjátíu ár eru liðin frá því að bundinn var endir á ógnarstjórn Rauðra Kmera sem staðið hafði í fimm ár undir stjórn Pol Pots. Um 1,7 milljónir manna, eða fjórðungur íbúa í Kambódíu, lét lífið undir stjórn kommúnistanna. Núna er loksins hafist handa við að láta þá svara til saka sem bera ábyrgð á þjóðarmorðinu.
Réttarhöldin fara fram fyrir sérstökum alþjóðlegum glæpadómstól skammt frá höfuðborginni Phnom Penh. Sakborningarnir eru ákærðir fyrir glæpi gegn mannkyni og brot á Genfarsáttmálanum frá 1949. Fyrstur var leiddur til yfirheyrslu Kaing Guek Eav eða Duch, forystumaður kommúnistastjórnar Kmeranna, en síðan tóku við yfirheyrslur yfir fjórum öðrum leiðtogum stjórnarinnar.
JAFNVEL GLERAUGNANOTKUN VAR DAUÐASÖK
Viðbjóðurinn, sem rifjaður er upp í tengslum við réttarhöldin, er ólýsanlegur. Fólk á öllum aldri var pyntað á grimmilegan hátt og síðan barið til dauða (til að spara skotfæri) og börn gjarnan aflífuð með því að berja þeim í trjáboli eða hlaðna veggi.
SJÁÐU FRÉTTASKÝRINGAÞÁTT CNN UM FANGELSIÐ
Hér er mjög fróðleg fréttaskýring, sem gefur hugmynd um hvaða hryllingur átti sér stað í Kambódíu - á meðan við Íslendingar vorum hinir kátustu að ganga inn í diskótímabilið og höfðum það huggulegt á allra handa máta.
Samúel varar viðkvæma eindregið við því sem fréttaskýringaþáttur CNN sýnir.
SMELLA HÉR til að sjá fréttaskýringaþátt CNN
Hér fyrir neðan er stutt fréttaskýring, en til að sjá fréttaskýringaþætti CNN smellir þú á bláa borðann hér fyrir ofan.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.