Til hamingju
með afmælið
Í gær, 1. mars, voru liðin tuttugu ár frá því að heimilað var að selja bjór að nýju á Íslandi eftir 74 ára langt bann. Af því tilefni rifjar Samúel hér upp viðtal sem tekið var við formann íslenskra bjór- elskenda skömmu eftir að bjórsala var nýhafin árið 1989. Það er fróðlegt að renna yfir viðtalið núna tuttugu árum síðar. Næstu daga munum við kíkja nánar í gö mul tölublöð Samúels og birta sitthvað um bjórlíki.
POLAR BJÓR KOINN AFTUR
Polar bjór frá Ölgerðinni er kominn aftur á markað. Nýi Polar bjórinn á þó fátt sam- eiginlegt með þeim gamla, nema na
fnið Polar Beer.
Polar bjór er bruggaður á hefbundinn máta en með því að setja ögn af maís með korninu verður bjórinn léttari og ferskari. Í Ölgerðinni er talað um að þetta sé villta útg aacute;fan af Polar bjórnum enda hefur margt breyst í tímans rás. Stærsti munurinn er líklega sá að löglegt er að brugga og selja bjór á Íslandi.
"> Polar Beer verður bæði seldur í 2,25% útgáfu í verslunum og sterkari útgáfu í vínbúðum og á veitingahúsum.
Á umbúðum bjórsins stendur Polar Beer í anda gamla vörumerkisins. Líklegt er talið að nafngiftin sé orðaleikur Íslendinga með bjór og björn á enskri tungu. Enskumælandi menn heyra greinilegan mun á orðinu „beer “(e. „bír”) eða „bear” (björn e. ber) en í eyrum Íslendinga á stríðsárunum hefur þetta eflaust verið svipað.
Polar bjór var á sínum tíma bruggaður í Ölgerðinni fyrir breska og bandaríska hermenn í seinna stríði. Bjórinn mátti þó einungis afgreiða til hersins. Síðar meir fékkst bjórinn í Fríhöfninni en þó máttu einungis áhafnir skipa og flugvéla taka bjór með sér inn í landið – allt til ársins 1980.
MYNDIR OG TEXTI: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON FYIR SAMÚEL 1989
„Mér þykir vænt um maka minn, börn mín og föðurland … en ég elska bjór." Þannig hljóðaði yfirlýsing sem menn þurftu að undirrita áður en þeir fengu inngöngu í Félag íslenskra bjóraðdáenda á níunda áratugnum. Í viðtali við Samúel,þegar bjórsala hafði loks verið leyfð á ný hér á landi árið 1989, sagði Hjörtur Guðnason formaður að hann hafi ekki sett sig úr færi fram að því að smakka alls staðar bjór á ferðum sínum erlendis. Taldist honum til að tegundirnar hefðu verið orðnar yfir hundrað talsins.
Í viðtali við helgarútgáfu Fréttablaðsins í tilefni af 20 ára afmælis bjórsölunnar kvaðst hann reikna með að félagar hans mundu reka hann úr formannsembættinu ef þeir vissu hvað hann væri slakur bjórdrykkjumaður í dag. Hann sagðist þó ætla að fá sér einn bjór í tilefni afmælisins. „Manni finnst ótrúlegt í dag að það hafi einhvern tíma verið bannað að drekka bjór á Íslandi.”
BOLURINN DRÓ DILK Á EFTIR SÉR
Stutterma bolur, sem framleiddur var upp á grín með áletruninni Icelandic beerlovers association meðan bjórsölubann var enn í gildi, leiddi til stofnunar félags undir þv e; nafni. Þar sem Hjörtur bar ábyrgð á na fngiftinni dæmdist hann til að gegna formennsku. Í viðtalinu við Samúel á sínum tíma sagði Hjörtur að félagsmenn hafi tekið bjórinn alvarlega en reynt að hafa létt yfir mannskapnum.
Hér á eftir verður gripið niður í viðtal Gunnlaugs Rögnvaldssonar sem hann átti við Hjört mánuði eftir að bjórinn var leyfður:
ÁTTUM ÞÁTT Í VERÐLÆKKUN
„Við eignum okkur m.a. það að bjórverðið lækkaði viku eftir að við gáfum út opinber mótmæli gegn okurverðinu …”
„Mér finnst að lág verðtilboð hafi ráðið alltof miklu í vali ÁTVR á innflutningi bjórtegunda. Það voru margir bjórar á sama verðbili og það var óþarfi að velja bara þá ódýrustu, láta gæðin ekki ráða valinu … Þjóðverjar eru viðurkenndir sem bestu bruggarar heims, en samt er ekki fluttur inn bjór þaðan. Það er eins og að flytja ekki inn rauðvín frá Frakk- landi, Vodka frá Rússlandi eða Viskí frá Skotlandi,” sagði Hjörtur 1989.
BJÓRHÁTÍÐIR FYRIR RÁÐAMENN
„Hér á landi hafa bjórhátíðir aðeins viðgengist meðal ráðamanna sem hefur verið boðið í amersíska sendiráðið á þjóðhátíðardag þeirra, þann fjórða júlí. Þar hefur bjórinn flotið í kverkum ráðamanna, þó bannaður væri almenningi öðrum en ferðalöngum.
Reyndar hafa nokkrir skóla haldið sínar bjórhátíðir, með smygluðum bjór og ég veit til þess að ágóði af bjórsölu hefur verið notaður til skólaferðalaga útskriftarnema, sem er svo sem gott og blessað."
SMYGLARAR OG BARNAFATAVERSLUN
„Sjómenn, sem hafa smyglað bjór, munu ekki græða jafn mikið og áður, en geta þó selt kassana með hagnaði þar sem þeir eru ódýrir í höfnum erlendis.
Ég er á þeirri skoðun að selja mætti bjór í matvöruverslunum, þetta er ekki það varasamur drykkur. Þetta á að vera bannað en samt er bjór afgreiddur í barnafataverslun á Ísafirði með leyfi yfirvalda. Í raftækjaverslun í Hafnarfirð i verður hann seldur og aðeins þunnt þil mun skilja raftækin frá bjórnum. Það heyrist ekki múkk um þetta, sem mér finnst tvískinnungur.”
BJÓR ER EKKI VÍMUGAFI
„Krárnar sem munu selja bjór, finnst mér of nýtískulegar og ekki nógu vinalegar. Ekta krá finnst mér að eigi að vera klædd dökkum viði, vera hólfuð niður og með minjagripi um alla veggi og daufum ljósum. Slíkt skapar sérstaka stemmningu. Svo finnst mér vanta hverfiskrár, svo menn geti labbað eftir bjórsopanum. Það býður hættunni heim að hafa þetta allt í miðbænum, en reyndar held ég að fæstir muni þeysa þangað. Menn munu sötra bjór um helgar yfir sjónvarpinu.Líklega munu margir hella hressilega í sig fyrstu vikurnar, en læra síðan að umgangast bjór skynsamlega. Enginn verður fullur af bjór trekk í trekk, þv iacute; hausverkurinn daginn eftir er hræðilegur. Bjór er ekki drykkur til að vera fullur af.
Ég lít ekki bjór sem vímugjafa, heldur gleðigjafa sem hressir vitund fólk. Ef menn drekka of mikið verða þeir slompaðir og vömbin þung. Þetta er frekar drykkur til að slaka á yfir ...”
STYRKLEIKINN BESTUR 3,5-4 PRÓSENT
„Margir eru fúlir yfir því að styrkleiki bjórsins sem leyfður verður skuli ekki vera hærri en hærri en 6,4%. Það er hins vegar viðurkennt meðal þeirra sem þekkja bjór að hann er bestur með alkahó lmagn í kringum 3,5-4%. Þetta er ekki vín.
Íslendingar þekkja mest ljósan bjór, sem er mikið drukkinn á sólaströndum. En þeir sem komast á bragðið með dökkan bjór vilja ekki annað eftirleiðis. Sólarlandaferðir hafa kennt mönnum að drekka bjórinn ískaldan sem svar við hitanum, en hérlendis er það alls ekki rétt aðferð. Bjórinn á að vera 8-10 gráðu heitur svo rétta bragðið komi fram. Fólk rífur hins vegar ískaldan bjór úr ísskápnum og svolgrar hann.”
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.