Dómnefndin var skipuð fallegustu stúlkum landsins.
Aftasta röð f.v.: Guðrún Möll er Fegurðardrottning Íslands 1982, Svava Johansen, Matthildur Guðmundsdóttir, Kristjana Þráinsdóttir og Stella Kristins- dóttir, allar fjórar voru fulltrúar Íslands í fegurðarsamkeppnum erlendis á þeim árum sem keppnishald lá niðri hér á landi, lengst til hægri er svo Kristín Helga Waage Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1967 þegar sú keppni var fyrst haldin.
Miðröð f.v.: Unnur Steinsson Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980 og Fegurðardrottning Íslands 1983, Halla Bryndís Jónsdóttir Sólarstúlka Úrvals 1982 og Fegurðardrottning Íslands. Hólmfríður Karlsdóttir Ungfrú Heimur 1985, Sif Sig- fúsdóttir Ungfrú Skandinavía 1985, og Bergli
Fremsta röð t.v.: Auður Pálma- dóttir Lúxusdrottning 1985, Margrét Guðmundsdóttir þáverandi Sólarstúlka Úrvals, Auður Elísabet Jóhannsdóttir sigurvegari Elite-keppninnar á Íslandi og tvær síðustu Stjörnur Hollywood; Ragna Sæmunds- dóttir og Anna Margrét Jóns- dóttir.
Hugmyndin kom upp við vinnslu næsta tölu- blaðs á undan, sem var jólablað. Hafði þá kom upp sú staða þegar blaðið var tilbúið til prentunar, að Hófí var kosin Miss World. Það þótti ótækt að vera ekki með hana á forsíðu strax á jólablaðinu í stað þess að bíða með það fram í febrúar.
UNGFRÚ SKANDINAVÍA VARÐ AÐ VÍKJA
Hvað var fyrir á forsíðunni? Glæsileg mynd af Sif Sigfúsdóttur sem var þá nýkjörin Ungfrú Skandinavíu. Brugðið var á það ráð, að hafa forsíðuna tvöfalda í brotinu. Hófí á forsíðu og Sif á innábrotinu. Það var sem sé offramboð af íslenskum fegurðardrottningum á heims- vísu þá stundina.
En þá var sem sé spurt; hvaða karlmenn eru það sem eru flottastir á þessu landi? Til að svara þeirri spurningu var efnt til hana- stélsins á Holti. Vegna jólaleyfa voru óvenju margar fegurðardísanna á landinu, en þær voru eðlilega á þönum um heiminn þveran og endilangan. Ýmist til að sinna skildum sinum sem fegurðardrottningar eða sitja fyrir í ljós- myndatökum, en flestar voru þær starfandi fyrir Módel 79 og eftirsóttar fyrirsætur inn- anlands og utan. Nöfn stúlknanna og helstu titla eru birtir í eindálkinum hér til vinstri, en snúum okkur nú að því að rifja upp hvaða karlmenn þeim leist best á. Þess má geta, að blaðamaðurinn, sem vann samantektina fyrir Lúxus, heitir Rósa Guðbjartsdóttir, núveradi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og varaþingmaður.
STUÐMENN ALLTAF VINSÆLIR
Stúlkunum voru afhentir atkvæðaseðlar þar sem minnt var á þrettán starfsg reinar en topparnir komu úr dansi, íþróttum, tónlist, stjórnmálum, sýningarbransanum, fjölmiðlum, kaupmennsku og af ritvellinum.
Þegar spurt var um dansara hlaut Einar Sveinsson í Íslenska dansflokknum flest atkvæði.
Egill Ólafsson Stuðmaður fékk flest atkvæði tónlistarmanna og lagasmiða. Aðrir tónlistarmenn sem hlutu atkvæði voru Jakob Frímann Magnússon, Sverrir Guðjónsson, Richard Scobie, Dagur Hilmarsson, Kjartan Ólafsson, Sigurður Gröndal og Einar Jóhannesson.
Þorgrímur Þráinsson hlaut flest atkvæði íþróttamanna, en Örnólfur Valdimarsson og Kristján Harðarson komust líka á blað auk Ásgeirs Sigurvinssonar, Ásmundar Þórðarsonar og Unnars Valdimarssonar.
Stefán Örn Sigurðsson í Módel 79 þótti myndarlegasti strákurinn í sýningar- bransanum. Næstur á eftir h onum að vinsæ ldum kom Viktor Urbancic.
FLOTTUSTU PÓLITKUSARNIR Í SAMA FLOKKI
Í stjórnmálaheiminum virtust allir flottustu pólitíkusarnir vera í Sjálfstæðisflokknum. Karlmenn í öðrum flokkum komust a.m.k. ekki á blað. Sá myndarlegasti að dómi matsnefndar var Friðrik Sóphusson , sem þá var varaformaður flokksins, en sá sem kom næst honum var formaður flokksins, Þorsteinn Pálsson. Í þriðja sæti á listanum var Þór Sigfússon, sem þá var formaður Heimdallar, og er núverandi formaður Samtaka atvinulífsins. Í hópi fegursta kvenna landsins leyndust líka stúlkur sem fannst Davíð Oddsson borgarstjóri svolítið sætur.
Pétur Gunnarsson var eini rithöfundurinn sem komst á blað. Punktur og basta.
Páll Magnusson núverandi útvarpsstjóri RUV þótti flottasti fjölmiðlamaðurinn á þessum tíma, en meðal annarrra fjölmiðlamanna hlutu atkvæði þeir Einar Sigurðs- son sjónvarpsfréttamaður og nafni hans, Einar Örn Stefánsson, Páll Þorsteinsson og Ögmundur Jónasson.
Sigurður Gísli Pálmason í Hagkaupum hlaut flest atkvæði verslunarmanna, en næstur að atkvæðum kom Sævar Baldursson í Plaza og einnig hlaut Bolli Kristins- son í 17 atkvæði.
ÞRÍR MYNDLISTARMENN JAFNIR AÐ STIGUM
Þrír sjarmerandi myndlistarmenn, af þeim sjö sem hlutu atkvæði, reyndust vera jafnir að atkvæðum í fyrsta sæti. Það voru þeir Egill Eðvarðsson, Gunnar Örn og Ágúst Baldursson .
Sæmundur Norðfjörð varð atkvæðahæstur þegar spurt var um leikara, en aðrir leikarar sem fegurðardísirnar sögðu búa yfir sjarma voru Arnar Jónsson, Magnús Ragnar, Sigurður Sigurjónsson, Kristján Franklín, Guðjón Petersen og Jóhann Sigurðsson.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.