SJÁ VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐUNNI
Árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína, barst sú frétt leifturhratt um heiminn að Paul McCartney væri látinn. Hann hafi dáið í bílslysi tveimur árum fyrr og tvífari Bítilsins komið í hans stað. Allar helstu fréttastofur heims gerðu fréttinni skil og tímarit og útvarpsþættir fluttu æ fleiri sannanir fyrir því að Paul væri dáinn. Var þá ekki síst leitað vísbendinga í textum Bítlalaganna og á myndum og plötuumslögum. Paul McCartney gafst loks upp á að lesa stöðugt um andlát sitt og kom fram á forsíðu Newsweek og í útvarpsviðtölum þar sem hann gerði heiðarlega tilraun til að stimpla sig inn meðal lifenda á ný.
Eitthvað dró úr þessum pælingum við tilkynninguna, en þeir eru samt ótrúlega margir sem velta því enn fyrir sér hvort yfirlýsingin hafi ekki bara verið blöff og halda áfram leit að frekari sönnunargögnum.
HÓFST SEM SAKLEYSISLEG SAGA Í SKÓLABLAÐI
Fárið hófst með því að bandarískur útvarpsmaður frá Detroit sagði frá sögu sem menntskælingur frá Ohio hafði skrifað í skólablað þess efnis að Paul McCartney væri í rauninni dáinn.
Nokkrum dögum seinna hafði sagan breiðst út um allan heim og var studd æ fleiri rökum eftir því sem fleiri sögðu hana. Uppruni sögunnar gleymdist hins vegar á svipstundu. Sagt var að Paul hefði dáið í bílslysi en forráðamenn plötufyrirtækis Bítlanna hefðu afráðið að þagga atburðinn niður. Efnt hafi verið til tvífarakeppni og kanadamaður að nafni Willie Campbell, sem á að hafa líkst Paul mest, hafi verið drifinn í lítaaðgerð og sömuleiðis aðgerð á hálsi. Síðan hafi hann verið munstraður í þessa frægustu hljómsveit heims fyrr og síðar. Gat ekki klikkað!
VÍSBENDINGARNAR HRÖNNUÐUST UPP
Þegar sagan komst á kreik 1969 kepptust menn við að leita að vísbendingum sem renndu stoðum undir dánarfregnina. Kom þá margt furðulegt í ljós. Á umslagi plötunnar Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band var allt morandi í vísbendingum. Þar sést hönd fyrir ofan höfuð Pauls (og raunar á mörgum myndum af honum síðar) og á höndin að vera tákn dauðans samkvæmt ævafornri grískri goðafræði. Á sömu mynd er nafn hans myndað með blómum á leiði og er nafnið í laginu eins og gítar fyrir örvhenta. Aftan á umslaginu snýr Paul svo baki í myndavélina.
Á umslagi plötunnar Magical Mystery Tour sjást allir Bítlarnir með rauða rós í hnappagatinu - nema Paul. Hann er með svarta rós og varla þarf að taka fram að svart er tákn dauðans.
JARÐARFÖRIN YFIR ABBEY ROAD
Á umslagi Abbey Road sjást Bítlarnir ganga í halarófu yfir gagnbraut fyrir framan Abbey Road númer 3 í London.
John Lennon gengur fremstur í hvítum fötum, sem eins konar sálusorgari eða trúarleiðtogi, þá kemur Ringo Starr í svörtum fötum í hlutverki útfararstjóra, þar á eftir gengur Paul berfættur, trúlega í einhvers konar líkklæðum − og menn hafa tekið eftir því að það er dautt í sígarettunni hans – en það hefur auðvitað ákveðna merkingu – og loks kemur Georg Harrison síðastur, í vinnugalla. Hann er með öðrum orðum líkgrafari á myndinni.Þetta eru aðeins nokkrar af þeim vísbendingum sem þóttu blasa við á plötu- umslögum Bítlanna – en svo var líka talið að sjálfir textarnir og ýmis aukhljóð á plötunum gæfu ótvírætt til kynna að Paul væri ekki lengur ofanjarðar. Jafnvel voru Bítlalögin spiluð afturábak til að heyra hvort þannig mætti finna dulin skilaboð. Og viti menn, þau fundust …
Á einni af plötum Bítlanna má svo heyra John Lennon stynja upp, ef grannt er hlustað: I’m very bored (Mikið leiðist mér), en á sínum tíma héldu margir því fram að hann segði: I buried Paul (Ég jarðaði Paul.)
PAUL DAUÐLEYDDIST ALLT KJAFTÆÐIÐ
Eins og fyrr segir tók Paul að dauðleiðast þetta kjaftæði og í blaðaviðtali sagði hann: “Ef ég væri dauður, þá væri ég ábyggilega síðasti maðurinn sem væri látinn vita af því.”
Sjálfsagt væri hægt að leiða getum að því, að margur maðurinn sem er á meðal okkar sé í rauninni dauður, en Samúel er sannfærður um að Paul McCartney er sprelllifandi og þeir Íslendingar sem tóku þátt í pílagrímaförinni til Liverpool fyrr á árinu og sáu goðið á hljómleikum eru áreiðalega tlbúnir til að staðfesta að Bítillinn er hreint ekki dauður úr öllum æðum ennþá – þó hann sé orðinn rúmlega sixty four.
STAÐGENGILLINN ER LÖNGU DÁINN
Trúlega er að hægt að finna eðlilegar skýringar á öllu því sem sett hefur verið fram í þeim tilgangi að sanna dauða Bítilsins. Það mun t.d. vera góð og gild ástæða fyrir því að hann snýr baki við myndavélinni á bakhlið plötuumslagsins sem áður er getið. Paul var hreinlega ekki með á myndinni. Þegar hún var tekin var hann í Bandaríkjunum að halda upp á afmælisdag vinkonu sinnar, Jane Asher.
Sá sem gerðist staðgengill hans í myndatökunni hét Mal Evans og skipulagði tónleikaferðir Bítlanna. Hann er aftur á móti dáinn. Dó árið 1975.
ENN ÞRÁAST PAUL VIÐ OG SEGIST LIFANDI
Á netinu skiptast menn enn á skoðunum um sannleiksgildi gömlu dánarfregn- anna af Paul McCartney og telja sumir sig jafnvel hafa fundið vísbendingar í síðari tíma textum Bítilsins sem styðja eða afsanna fregnirnar.
En karlinn er sjálfur harður á því að hann sé lifandi. Trúi því svo hver sem vill. Þú getur hlýtt á Paul McCartney eða (Willie Campell) mótmæla dánarfregnunum með því að smella HÉR
Ef þú vilt sjá enn meira getur þú séð hér ágætlega unnin vídeó um vísbendingarnar sem menn þóttust hafa fundið máli sínu til stuðnings:
Fyrri hluti: http://www.youtube.com/watch?v=7lkA1GOQ_vU
Annar hluti: http://www.youtube.com/watch?v=_n3KOBKFa5s&NR=1
Að lokum er hér ein af fjölmörgum vefsíðum sem tileinkaðar eru dauða Paul McCartney’s. Hér eru tekin fyrir tíu af plötuumslögum Bítlanna hvert á fætur öðru: http://www.geocities.com/SunsetStrip/3674/pid.html
Hér fyrir neðan er fróðlegt sýnishorn af fréttaflutningi fjölmiðla 1969-70.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.