Trúlega ríkti ekki eins mikil kæti á Rás 2 og tilefni stóð til þegar útvarpsstöðin hélt upp á aldarfjórðungs afmæli sitt mánudaginn 1. desember. Afmælisfagnaðurinn fór fram í skugga hálfs milljarðs niðurskurðar í rekstri Ríkisútvarpsins og uppsagna margra starfsmanna þar á bæ.
Enn einu sinni er komin víða upp umræða um að réttast væri að selja Rás 2. Samúel á þó erfitt með að ímynda sér að menn standi beinlínis í röðum til að kaupa útvarpsstöð í dag á sama tíma og fjölmiðlar berjast í bökkum og leggja upp laupana hver á fætur öðrum.
Áður en Samúel náði að birta frétt um tilboðið á síðum tímaritsins hafði Þorgeir flutt sig yfir á frjálsa útvarpsstöð.
Við eigum eftir að rekja baráttusögu Samúels fyrir frjálsu útvarpi hér á vef- síðunni en látum nægja að sinni að óska Rás 2 til hamingju með afmælið.
Ljósm.: Magnús Hjörleifsson
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.