Í opnu tímaritsins var svo komin undirfyrirsögn að auki þar sem fram kom að Hljómar hefðu verið í LSD við upptöku sjónvarpsþáttar.
MINNA MÁL EN ÆTLA MÆTTI
Málið var þó ekki eins alvarlegt og ætla mátti. Hér var aðeins verið að vísa til þess að hljómsveitin hefði mætt í Lista- og skemmtideild sjónvarpsins eða LSD eins og sjónvarpsmenn nefndu deildina sín á milli.
Lögin sem Hljómar léku í sjónvarssal voru af nýrri hljómplötu hljómsveitarinnar. Það voru lögin Saga dæmda mannsins, Er hann birtist og Ég elska alla, sem Shady Owens söng svo eftirminnilega.
KOM SÍÐAR TIL VANDRÆÐA VEGNA NEYSLU
Tíðindamaður Topp Korns fylgdist með upptökunum á þessum lögum og vað ekki var við að liðsmenn Hljóma væru undir öðrum áhrifum en frá tónlistargyðjunni. Það var ekki fyrr en þau Gunnar, Rúnar og Shady höfðu stofnað Trúbrot sem vafasöm neysla varð til þess að koma þeim í vandræði gagnvart ríkisfjölmiðlinum eins og fram kemur í endurminningum Rúnars á netinu:
"Trúbroti bauðst að leika á Fullveldisfagnaði íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn 1. desember 1969. Daginn sem hljómsveitin sveif um háloftin á leið til Danmerkur birtist frétt á forsíðu Vísis um að fjórir meðlima Trúbrots hefðu nokkru áður verið handteknir og færðir til yfirheyrslu vegna eiturlyfjaneyslu. Málavextir voru þeir að varnarliðsmaður á Keflavíkurflugvelli hafði útvegað Gunnari, Rúnari, Karli og Shady maríjúana og varð mikið fjölmiðlafár vegna málsins.
Þótt neysla maríjúna varðaði ekki við lög, þar sem bann við neyslu kannabisefna var ekki lögleitt fyrr en vorið 1972, varð allt vitlaust og Trúbrot var sett út í kuldann. Veitingamenn vildu ekkert af hljómsveitinni vita næstu mánuði, tónlist Trúbrots heyrðist varla í útvarpi og hætt var við sjónvarpsþátt sem hafði verið í deiglunni. Þetta hafði lamandi áhrif á starfsemi Trúbrots, æfingum fækkaði og lítið var að gera hjá sveitinni."
Sjá nánar á heimasíðu Rúnars Júlíssonar.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.