Listinn yfir þá er unnu að efni og upp- setningu Samúels var jafnan æði langur. Mörgum manninum brá í brún þegar hann renndi augunum yfir þann lista fremst í nóvemberhefti Samúels 1986. Þar voru kvenmannsnöfn í svo yfirgnæfandi meiri- hluta að svo virtist sem síðasta karlavígið væri fallið.
Óttuðust dyggir lesendur Samúels að efni um húsverk og barnauppeldi kæmi í stað efnis um útstáelsi og babes. Og myndasyrpur af flottum bílum og mótorhjólum vikju fyrir kynningu á heimilistækjum. En óttinn var ástæðulaus, ritstjórastóllinn var ekki gefinn eftir og öllum áskorunum kvenfólksins á Samútgáfunni um að sá siður yrði aflagður að skarta beru kvenfólki á forsíðu og litopnu var hafnað með þeim rökum að á tímariti sem svona mikið af kvenfólki starfaði að yrði það efni að skipa sinn sess.
Á myndinni hér fyrir ofan sést aðeins hluti starsliðsins á Samútgáfunni sem kom að útgáfunni um þessar mundir. Skvísurnar heita Helga Möller, Margrét Haraldsdóttir, Pálína Vagnsdóttir, Sigríður Friðjónsdóttir, Andrína Jónsdóttir og Bryndís Kristjáns- dóttir.
Þegar myndin var tekin voru að minnsta kosti fimm konur til viðbótar að störfum fyrir Sam, allar að skrifa í nóveberblaðið, þær Elín Albertsdóttir, Margrét Þ. Þórs- dóttir, Rósa Guðbjartsdóttir, Bergljót Davíðsdóttir og Auður Haralds. Þórarinn Jón Magnússon situr sem fastast í ritstjórastólnum.
Ókei, þó það spilli ötrlítið myndinni sem Samúel er að gefa með þessum skrifum, skal það viðurkennt, að Helga var auglýsingastjóri Húsa & Híbýla, Pálína var á sím- anum og Sigríður vann við tölvusetningu Samúels - og hinna tímaritanna sem Sam gaf út. En það breytir ekki þeirri staðrend, að á kreditlista Samúels voru um þessar mundir töluvert fleiri kvenmannsnöfn en karla.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.